Morgunblaðið - 24.06.1993, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. JÚNÍ 1993
Úthlutun byggingalána Húsnæðismálastj órnar mótmælt
Átta félagasamtök
telja sig sniðgengin
NOKKUR landssamtök hafa lýst yfir mikilli óánægju með úthlutun
byggingalána úr félagslega húsnæðislánakerfinu fyrir árið 1993.
Samtökin, sem saman nefna sig Þak yfir höfuðið, telja sig hafa
verið sniðgengin við síðustu úthlutun en þar hlutu þau samtals 10%
lánanna. Þegar gagnrýnin var borin undir Sigurð E. Guðmundsson
framkvæmdastjóra Húsnæðisstofnunar ríkissins sagði hann enga
ástæðu til að ætla að félagasamtökin yrðu sniðgengin í ár frekar
en áður, enn ætti eftir að úthluta fjármagni fyrir 200 íbúðir.
Átta samtök, BÍSN, Búseti, Fé-
lagsstofnun stúdenta, Leigjenda-
samtökin, Samtök aldraðra, Sjálfs-
björg, Þroskahjálp og Öryrkjabanda-
lagið stóðu sameiginlega að yfírlýs-
ingu þar sem ný húsnæðismálastjórn
er harðlega gagnrýnd. Reynir Ingi-
bjartsson, framkvæmdastjóri Bú-
seta, sagði á blaðamannafundi þar
sem yfirlýsingin var kynnt að við
úthlutun lána hafí stjórnarmenn lát-
ið stjómast af pólitískum hagsmun-
um. Fjölmenn félagasamtök á borð
við Þroskahjálp og Samtök aldraðra
hafí til að mynda ekki fengið nein
lán. Hann bendir á þá misskiptingu
að eitt sveitarfélag, Akureyrarbær,
hafí fengið um 50 lán eða rúmlega
helmingi fleiri en öll fyrrgreind sam-
tök.
Samkvæmt yfírlýsingu samtak-
anna er krafa þeirra í fyrsta lagi sú
að öllum lánum verði úthlutað hið
fyrsta; í annan stað að félagasamtök
sitji við sama borð og sveitarfélög
og loks að félagsmálaráðherra fylg-
ist með úthlutun lána og taki í taum-
ana ef þörf krefur en það vald hafí
hann að lögum.
Aftur úthlutað í ágúst
„Ef allt fer samkvæmt áætlun
trúi ég því að samtökin fái þau svip-
aðan hlut í ár eins og áður en Hús-
næðismálastjórn er nú búin að ráð-
stafa lánum til að koma upp 300
íbúðum í ár af þeim 500 sem hún
hugsar sér að fjármagna ef allt fer
samkvæmt áætlun,“ sagði Sigurður
E. Guðmundsson jafnframt. „Við
höfum verið að vinna að samningum
við lífeyrissjóðina um kaup á skulda-
bréfum og væntum þess að vonandi
seinnipartinn í ágúst muni húsnæðis-
málastjórn á nýjan leik setjast á
rökstóla og ganga frá afgreiðslu á
síðari hluta lánveitingarinnar."
VEÐUR
VEÐURHORFUR I DAG, 24. JUNI
YFIRLIT: Yfir Grænlandi norðaustanverðu er heldur minnkandi 1.030
mb hæð og frá henni hæðarhryggur suður um ísland. Um 700 km suður
af Hvarfi er 995 mb lægð sem þokast norðnorðaustur.
SPÁ: Suðaustan og austan gola og síðar kaldi. Skúrir eða súldarvottur
við suðaustur- austurströndina en víðast léttskýjað vestanlands og í
innsveitum norðanlands. Hiti 7-17 stig, hlýjast vestan til.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á FÖSTUDAG: Austlæg eða suðaustlæg átt og fremur hlýtt,
einkum norðanlands. Strekkingur við suðurströndina og þykknar upp,
fer líklega að rigna síðdegis, en bjart veður á Norður- og Norðausturlandi.
HORFUR Á LAUGARDAG OG SUNNUDAG: Suðaustlæg átt. Dálitil rign-
ing öðru hverju sunnanlands og vestan en þurrt norðaustanlands. Frem-
ur hlýtt, einkum norðanlands.
Nýir veðurfregnatímar: 1.30, 4.30, 7.30, 10.45, 12.45, 16.30, 19.30,
22.30. Svarsími Veðurstofu Isiands - Veðurfregnir: 990600.
o & -A
Heiðskírt Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað
Alskýjað
/ / / * / *
/ / * /
/ / / / * /
Rigning Slydda
* * *
* *
* * *
Snjókoma
V V
Skúrir Slydduél
V
Él
Sunnan, 4 vindstig.
Vlndörin sýnir vindstefnu
og fjaðrimar vindstyik,
heil fjöður er 2 vindstig.^
10° Hitastig
v Súld
= Þoka
itig-.
FÆRÐA VEGUM:
(Kl. 17.30 (gær)
Vestfjörðum eru
iíar, fært er um
Norðausturlandi
Það er yfirleitt góð færð á þjóðvegum landsins. Á
Þorskafjarðar-, Tröllatungu- og Steinadalsheiðar ófa
Steingrímsfjarðar-, Dynjandis- og Hrafnseyrarheiðar. /
er fært orðið um Hólssand og öxarfjarðarheiði. Hálendisvegir eru lokað-
ir vegna snjóa og aurbleytu, nema jeppafært er inn í Veiðivötn, Jökul-
heima og Herðubreiöarlindir. Uxahryggir hafa verið opnaöir. Viðgerðir á
klæðingum eru víða hafnar og eru vegfarendur beðnlr eindregið að virða
hraðatakmarkanir vegna grjótkasts.
Upplýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftirliti í síma 91-631500 og
á grænni línu, 99-6315. Vegagerðin.
VEÐUR VIÐA UM HEIM
kl. 12.00 í gær að ísl. tíma
hiti veður
9 léttskýjað
12 léttskýjað
Akureyri
Reykjavik
Bergen 16 skýjað
Heleinkl 14 skúr
Kaupmannehöfn 14 skúr
Narssarasuaq 16 hálfskýjaö
Nuuk 8 rigning
Ósló 17 ekýjað
Stokkhólmur 17 úrkoma
Þórshöfn 7 skýjað
Algarve 22 léttskýjað
Amsterdam 18 skúr
Bartelona 24 skýjað
Berlín 18 skúr
Chicago 18 heiðskfrt
Feneyjar 27 hélfskýjað
Frankfurt 22 hálfskýjað
Glasgow 16 léttskýjað
Hamborg 17 skýjað
London 19 skýjað
LosAngeles 18 heiðskfrt
Lúxemborg 19 skýjað
Madrtd 24 skýjað
Malaga 30 léttskýjað
Mallorca 29 léttskýjað
Montreal 14 léttakýjað
NewYork 18 heiðskirt
Orlando 23 alskýjað
Parfs vantar
Madelra 22 skýjað
Róm 26 skýjað
Vín 22 skýjað
Washington 22 heiðskírt
Winnípeg 17 skýjað
IDAGkl. 12.00
Heimitd: Veðurstofa íslands
(Byggt á veðurspá kl. 16.15 í gær)
Morgunoiaoio/juiius
Komið til Reykjavíkur
HLUTI af áhöfninni á Henry A. Hálfdánarsyni í förínni kringum
landið við komuna til Reylqavíkur. Frá vinstri eru Arnbjörn Ás-
grímsson leiðangursstjóri, Guðmundur Bernódusson, Kjartan Gísla-
son, Haildór Ásgrímsson, Ari Gústafsson og Pétur Kristjánsson.
Sólarorka lýsir
nú vitana í stað
gashylkja áður
BJÖRGUNARBÁTURINN Henry A. Hálfdánarson er kominn úr
mánaðarferð hringinn í kringum landið en verkefni hans í för-
inni var að koma sólarskermum og sóiarrafhlöðum fyrir í um
20 vita og taka þaðan í staðinn gömlu gashylkin. Ferðin hófst
þann 23. maí s.l. og átti upphaflega að standa í hálfan annan
mánuð. Arnbjörn Ásgrímsson leiðangurssljóri segir hinsvegar að
ferðin hafi gengið vonum framar og alls að voru 23 vitar heim-
sóttir í henni. Átta manna áhöfn var á Henry, þar af fimm frá
Vitastofnun ísiands og þrír frá Slysavamarfélagi íslands.
Eftir þessa ferð eru aðeins 4 af
um 110 vitum landsins enn knúðir
með gasi en allir hinir hafa verið
rafvæddir. Að sögn Arnbjarnar
sinnti áhöfnin eftirlitsstörfum í
ferðinni auk þess að koma sólarraf-
hlöðunum fyrir í vitunum sem
heimsóttir voru. Aðspurður um
hvort ekki væri bjartsýni að ætla
að knýja vita á íslandi með sólar-
orku segir hann ekki svo vera.
Norðmenn hafí reynslu af slíku á
svipuðum breiddargráðum og ís-
land er á og sé árangurinn góður.
Að vísu komi fyrir um tveggja og
hálfsmánaðartímabil á vetrum
þegar raforkuframleiðslan sé eng-
in en slík tímabil séu brúuð með
öflugum rafgeymum.
„Við settum þennan búnað í
flesta vitana sem við heimsóttum
en í þijá þeirra settum við einnota
rafgeyma," segir Arnbjöm. „Segja
má að svo vel hafí tekist til sem
raun bar vitni sökum þess að
mannskapurinn um borð var mjög
samtaka í verkefninu."
Að sögn Ambjarnar hamlaði
veður ekki förinni að ráði og var
veður skaplegt allan tímann utan
Vestfjarða en þar var kalt og snjó-
koma er Henry sigldi þar um
snemma ferðarinnar. Áhöfnin gisti
í landi megnið af ferðinni ef frá
eru taldar lengstu siglingarleiðim-
ar eins og frá Vestmannaeyjum til
Reykjavíkur en þá var gist um
borð.
Ánægðir með samstarfið
Hálfdán Henrysson fram-
kvæmdastjóri SVFI segir að þeir
séu ánægðir með samstarfíð við
Vitastofnun og þykir vel hafa tek-
ist til. „Félagar okkar fá á þennan
hátt tækifæri til að, kynnast að-
stæðum og lendingarstöðum við
vitana sem heimsóttir voru og gott
Morgunblaðið/Ambjörn
Sólarskermur
EINS og sést á Seleyjarvita er
sólarskeraiunum sem hlaða raf-
hlöðurnar komið fyrir á miðj-
um vita mót suðrí.
er að hafa þá reynslu,“ segir Hálf-
dán.
Að sögn Hálfdáns var byrjað
að ræða samvinnu Vitastofnunar
og SVFÍ upp úr síðustu áramótum
og úr varð að SVFÍ leigði stofnun-
inni Henry A. Hálfdánaron með
áhöfn. Þessir aðilar hafa einnig
átt víðtækara samstarf og nefnir
Hálfdán sem dæmi að SVFÍ hefur
aðstoðað við eftirlit með vitanum
á Hornbjargi og Galtarvita.
Aðspurður um hvort um frekari
ferðir Henry A. Hálfdánarsonar
verði að ræða segir Hálfdán að
framtíðiií' sé alveg órædd. „Þetta
var hinsvegar ánægjulegt samstarf
og við fyrir okkar leyti erum já-
kvæðir á framhald þess,“ segir
hann.