Morgunblaðið - 24.06.1993, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. JUNI 1993
15
Skortir nemendur í Stýri-
mannaskólann í Reykjavík
Ungir menn komast ekki í skipsrúm
GUÐJÓN Ármann Eyjólfsson
skólameistari Stýrimannaskól-
ans í Reykjavík segir að á
undanförnum árum hafi stór-
lega dregið úr aðsókn að skólan-
um. Hann segir einnig að nú sé
erfitt að hefja sjómennsku, því
skipsrúm iiggi ekki á lausu.
Skólameistari vill að menn við-
urkenni að sjómennska sé fag-
vinna og það verði að veita ung-
um mönnum tækifæri til að fá
skipspláss. Ekki sé ósanngjarnt
að viðvaningar verði ráðnir á
lægri kjörum heldur en vanir
sjómenn. Hér áður fyrr hafi
menn byijað sem hálfdrætting-
ar.
Framtíð íslenskrar kaupskipaút-
gerðar og færri störf íslenskra sjó-
manna hafa verið nokkuð til um-
ræðu undanfarin misseri. Morgun-
blaðið innti Guðjón Ármann Ey-
jólfsson skólameistara Stýri-
mannaskólans í Reykjavík eftir því
hver áhrif þessarar þróunar og
umræðu hefðu verið á nemenda-
ijölda í hans menntastofnun.
Menntun þarf til siglinga
Skólameistari Stýrimannaskól-
ans lýsti óánægju og gremju yfir
þeim málflutningi sem fram hefur
komið í Víkingi, málgagni far-
manna- og fiskimannasambands-
ins. Þar væri því haldið fram að
það væri óðs manns æði að fara í
skipsstjórnarnám. Skólameistari
sagði rétt vera að kaupskipaút-
gerðin hefði orðið fyrir áföllum en
menn yrðu að horfa til framtíðar.
Ef við gæfumst upp þyrfti enga
skóla en ef íslendingar ætluðu sér
að beijast og sigla á höfunum
þyrftu þeir menntaða sjómenn.
Hann sagði alþjóðlega skipaskrán-
ingu á Islandi gefa möguleika á
að íslensk farskip og farmenn
sigldu áfram. Þá hefði því verið
lýst yfir af Eimskipafélagi íslands
að það væri eindregin stefna fé-
lagsins að manna áfram skip sín
með íslenskum áhöfnum eins og
væri í dag.
Skólameistari Stýrimannaskól-
ans lagði áherslu á að menntun
stýrimanna yrði að vera breið
menntun og almenn. Skólastjórar
stýrimannaskólanna þriggja á
landinu, í Reykjavík, á Dalvík og
í Vestmannaeyjum, hefðu gert til-
lögur um að námið yrði lengt og
fleiri greinar kenndar, s.s. veiða-
færagerð, fiskmeðferð, haf- og
fiskifræði, stjórnun og vinnuvist-
fræði.
Nemendum fækkað
Guðjón Ármann greindi frá því
að undanfarin 10 ár hefðu að með-
altali um 50 nemendur útskrifast
árlega af fyrsta stigi, sem veitti
réttindi á 200 rúmlesta skip í
innanlandssiglingum. Þeim til við-
bótar útskrifuðust af fyrsta stigi
um 30 nemendur á Dalvík og í
Vestmannaeyjum, 15 á hvorum
stað. Að meðaltali hefðu 40 nem-
endur útskrifast af öðru stigi, sem
veitti ótakmörkuð réttindi á fiski-
skip og undirstýrimannsréttindi á
kaupskip. Og af þriðja stigi hefðu
að meðaltali útskrifast 12. Fjórða
stigið sem veitti skipherraréttindi
á varðskipum, væri kennt á fjög-
urra fimm ára fresti, 6-12 nemend-
um í hvert skipti. Af hinum ýmsu
stigum hefðu um 105 nemendur
útskrifast árlega. Nú í ár hefðu
einungis 73 nemendur sent inn
fullnægjandi gögn með umsókn um
skólavist.
Morgunblaðið innti skólameist-
ara Stýrimannaskólans eftir því
hver væri þörf flotans fyrir nýja
stýrimenn og hve nemendur þyrftu
að vera margir. Guðjón Ármann
taldi að frá sínum skóla yrði út-
skrifa um 110 nemendur af fyrsta
skipstjómarstigi en í vor hefðu 27
nemendur útskrifyst. Og 40 ýrðu
að útskrifast af öðru stigi og um
15 af þriðja stigi.
Skólameistari benti á að starfs-
tími manna til sjós hefði styst vera-
lega. Starfið væri erfitt og einnig
vildu menn og ekki síður börn og
eiginkonur njóta fjölskyldulífins
heima hjá sér. Það væri því ekki
óraunhæft að ætla að menn end-
ust ekki nema 15-20 ár í starfi til
sjós.
Um síðustu áramót hefðu verið
skráð 1.107 þilfarsskip í landinu,
þar af 960 fiskiskip. Á þennan flota
þyrfti umtalsverðan fjölda mennt-
aðra stýrimanna. Guðjón Ármann
Eyjólfsson sagði að miðað við
stærð flotans og um 15 ára starfs-
tíma sjómanna þyrfti að útskrifa
um 140 nemendur af fyrsta stiginu
á landinu öllu. Þ.e.a.s. ef nemenda-
fyöldi væri óbreyttur á Dalvík og
í Vestmannaeyjum þá yrði að út-
skrifa 110 nemendur af fyrsta stigi
frá Stýrimannaskólanum'í Reykja-
vík. Nú hefðu 40 sótt um nám á
fyrsta stigi en einungis 25 enn
skilað fullnægjandi gögnum. Menn
væru margir ragir við að sleppa
skipsplássi. 25 hefðu sótt ákveðið
um nám á öðru stigi, þeim til við-
bótar hefðu 10 spurst fyrir en
ættu eftir _að skila inn fullkominni
umsókn. Á þriðja stig hefðu nú
15 sótt um. Og á fjórða stig sem
veitti skipsstjómarréttindi á varð-
skipum hefðu 8 sótt um.
Ráða verður viðvaninga
Guðjón Ármann Eyjólfsson
skólameistari lagði áherslu á nauð-
syn þess að menn hefðu a.m.k.
18-24 mánaða siglingartíma áður
en þeir færu í Stýrimannaskólann
en nú væri reyndin sú að mjög
erfítt væri fyrir unga menn að
komast í skipspláss og ná tilskyld-
um siglingatíma. Guðjón Ármann
sagði menn verða að horfast í augu
við að það væri fagvinna að vera
til sjós. Ekki væri óeðlilegt að skip-
stjórar og útgerðarmenn vildu
vana menn með starfsreynslu í
skipsrúm, en það yrði líka að gefa
ungum og óreyndum mönnum
tækifæri til að hefja sjómennsku
og öðlast reynslu. Nú þegar loðnu-
veiðarnar væru að hefjast vildi
hann hvetja skipstjóra og útgerð-
armenn til að taka einn eða tvo
viðvaninga í skipsrúm. Hann sagð-
ist verða að hvetja til þess að við-
vaningar yrðu ráðnir á öðrum og
lægri kjörum heldur en vanir sjó-
menn til að tryggja þeim skips-
pláss. Hér áður fyrr hefðu byijend-
ur án starfsreynslu verið ráðnir
sem hálfdrættingar.
íslenski dansflokkurinn
°g
Kammersveit Hafnarjjarbar
ásamt nemendum úr Listdansskóla íslands
Sýningar í Kapalkrika:
í kvöld, 24. júní, kl. 22.00
Laugardaginn 26. júní kl. 20.30
Sunnudaginn 27. júní kl. 17.00
Efnisskrá:
Minótaros:
Tónlist: Tryggvi Baldvinsson
Danshöfundur: Ingibjörg Björnsdóttir
Dansarar úr Listdansskóla Islands.
Bach svítun
Danshöfundur: William Soleau
Dansarar úr íslenska dansflokknum.
Evridís:
Danshöfundur: Nanna Ólafsdóttir
Tónlist: Þorkell Sigurbjörnsson
Dansarar úr íslenska dansflokknum.
Stravinski skissur:
Danshöfundur: William Soleau
Dansarar úr íslenska dansflokknum
ALÞJÓÐLEC
LISTAHÁTIÐ
I hafnarfirði
4.-50. IUNI
LISTIN ERFYRIRALLA!
Pantið miða tímanlega! Upplýsinglr og miðapantanir í síma 65 49 86.
Aðgöngumiðasala:
Bókaverslun Eymundsson í Borgarkringlunni og við Austurvöll. Hafnarborg,
Strandgötu 6, Hafnarfirði. Myndlistarskólinn í Hafnarfirði, Strandgötu 50.
Heimssöngvarakeppnin í Cardiff
Dönsk sópran-
söngkona sigraði
DÖNSK sópransöngkona, Inger
Dam-Jensen, sigraði i Heims-
söngvarakeppninni í Cardiff sl.
laugardag. Söngvarar frá 25
löndum tóku þátt í keppninni og
voru 5 þeirra valdir í úrslit. Ólaf-
ur Árni Bjarnason, tenórsöngv-
ari, tók þátt í keppninni en hann
komst ekki í úrslit.
Sérstök verðlaun voru veitt fyrir
ljóðasöng og þau hlaut Paul Whelan
frá Nýja Sjálandi. Aðrir sem kom-
ust í úrslit voru sænska sópransöng-
konan Nina Stemme, baritónsöngv-
arinn Vassily Guerelo frá Úkraínu
og Tito Beltran, tenórsöngvari frá
Chfle.
STÓRÚTSALA
50-80% afsláttur
Verslunin hættir
L>A *
Otmt,r
FAXAFENI5
Við leggjum út rauðan dregil fyrir þig!
Leigjum út rauða dregla fyrir hátíðleg tækifæri.
SKEIFAN 11
SÍMI: 812220