Morgunblaðið - 24.06.1993, Blaðsíða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. JÚNÍ 1993
Arkitektafélag Islands
Gísla Sigurðssyni
veitt viðurkemimg
ARKITEKTAFÉLAG íslands hefur veitt Gísla Sigurðssyni rit-
stjórnarfulltrúa á Lesbók Morg-unblaðsins viðurkenningu fyrir
skrif hans um byggingarlist, en í tilkynningu frá félaginu segir,
að hann hafi allt frá 1955, er hann fyrst var blaðamaður við
Samvinnuna, ritstjóri Vikunnar og síðan 1967 við Lesbókina birt
fjölda greina um byggingarlist, þar sem kynntar voru nýjustu
hugmyndir í húsagerð og hýbýlaháttum með innlendum og erlend-
um dæmum.
í tilkynningu félagsins segir
m.a.: „Frá 1967 hefur Gísli verið
ritstjórnarfulltrúi og umsjónar-
maður Lesbókar Morgunblaðsins.
í Lesbókina hefur Gísli ritað fjöl-
margt um innlenda og erlenda
byggingarlist og þar hafa auk
þess birst margar greinar um
þetta efni eftir arkitekta og aðra.
Gísli hefur reyndar leitað sérstak-
lega eftir því að fá greinar eftir
arkitekta í þau blöð sem hann
hefur starfað við.
Árið 1967 ritaði hann bókina:
Úrval íslenskra einbýlishúsa þar
sem kynnt voru níu íslensk einbýl-
ishús eftir ellefu arkitekta. Sumar
myndanna í bókinni tók Gísli sjálf-
ur og einnig sá hann um útlits-
hönnun hennar. Þetta er mjög
vönduð bók og mikilsverð heimild
sem víða hefur verið vitnað til
m.a. í bókinni: „Neue Wohnháus-
er“ eftir Walter Meyer-Bohe og í
tímaritinu Iceland Review. Þá
birtist lofsamleg umfjöllun um
bókina í danska fagtímaritinu
Arkitekten, 6.tbl. 1968.“
Morgunblaðið/Kristinn
Viðurkenningin afhent
ORMAR Þór Guðmundsson formaður Arkitektafélags íslands (t.h.)
afhendir Gísla Sigurðssyni viðurkenninguna.
Höföar til
.fólksíöllum
starfsgreinum!
Örtröð við Miklagarð
MÖRG þúsund manns fóru í gær á rýmingarútsölu þrotabús verslunarinnar Miklagarðs. Þessi mynd er
tekin rétt áður en verslunin var opnuð en talið er að hátt í tvö þúsund manns hafi beðið opnunarinnar
um tíuleytið.
Rýmingarútsala á lager Miklagarðs
Mörg þúsund manns
flykktust á útsöluna
Umferðaröngþveiti skapaðist og sló lögregluna út af laginu
Úr mörgu að velja
AÐ SÖGN verslunarsljóra Miklagarðs er vöru-
úrval jafn mikið og venjulega en útsalan mun
standa yfir svo lengi sem birgðir endast.
Einar H. Bridde
MIKLAR biðraðir mynduðust
fyrir utan Miklagarð við Sund í
gær en þar hófst rýmingarútsala
á lager þrotabús Miklagarðs. Að
mati Einars H. Bridde verslunar-
stjóra biðu hátt í tvö þúsund
manns eftir því að verslunin
væri opnuð klukkan tíu og stöð-
ugur straumur fólks var í versl-
unina allan daginn. Að sögn lög-
reglunnar fór að bera á umferð-
aröngþveiti strax upp úr klukkan
tiu og allir tiltækir lögreglumenn
voru sendir á vettvang.
„Fólk var farið að stilla sér upp
í biðröð um klukkan átta,“ sagði
Einar í samtali við Morgunblaðið
rétt í þann mund er verslunin var
opnuð. „Hér er örugglega helmingi
fleira fólk en ég átti von á og allt
bendir til að hingað streymi fólk í
allan dag.“ Einar segir útsöluna
munu standa yfir svo lengi sem
birgðir endast en hann á von á að
nóg verði til í nokkra daga.
Einar upplýsti að á svona anna-
dögum gæti verslunin annað um
40 þúsund manns á dag og sagði
að ekkert benti til annars en að
slíkur dagur rynni upp í dag. Einar
sagði að stöðugt yrði fylgst með
fjölda útsölugesta innan dyra og
ef með þyrfti yrði hleypt inn í holl-
um. „Satt best að segja held ég að
þessi útsala sé hin stærsta sinnar
tegundar frá upphafi verslunar á
íslandi," sagði Einar að lokum.
Útsölugestir virtust flestir vera
ánægðir með útsöluna og þau kaup
sem gerð voru. Einn þeirra sagðist
einungis vera kaupa þær matvörur
sem hefði þurft að kaupa hvort eð
var og því væri mjög gott að fá
15% afslátt af heildsöluverði allra
vara við kassann. Annar sagðist
vera kominn á útsöluna vegna þess
að hann vissi að þar væru einungis
seldar góðar vörur.
Umferðaröngþveiti
Að sögn Jóns Otta Gíslasonar
varðstjóra umferðardeildar lögregl-
unnar í Reykjavík myndaðist mikið
umferðaröngþveiti upp úr klukkan
tíu. „Þessi umferðarhvellur kom
okkur gjörsamlega í opna skjöldu,“
útskýrði Jón Otti. „Við vissum af
þessari útsölu en höfðum ekki gert
neinar ráðstafanir enda áttum við
ekki von á þvílíkum mannfjölda og
bílaörtröð. Við sendum því strax á
vettvang alla þá lögreglumenn sem
tiltækir voru. Umferðin stóð jafnvel
í stað í fyrstu og gekk mjög hægt
í lengri tíma.“ Jón tók það fram
að fljótlega hefði tekist að leysa
úr umferðarhnútnum en eftirlit hafi
verið haft allan daginn. Lögreglan
telur að bílar, sem var lagt um allt
svæðið og á öllum túnum, hafi ver-
ið um 1.500 talsins á ellefta tíman-
um.
með ONE TOUCH háreyðingarkremunum losar þú þig við óæskileg hár á þægilegan og sársaukalausan hátt
Regular
• fyrir venjulega húð.
■
WM
|r
Bikini
íyrir "bikini" svæði.
o kreminu er einfaldlega
rúllað á hársvæðið og
skolað af í sturtu eða
baði eftir tiltekinn tíma
(sjáleiðb.)
o húðin verður mjúk
- ekki hrjúf
o ofnæmisprófað
- fyrir viðkvæma húð.
Útsölustaðir:
Flestar snyrtivöru-
verslanir, apótek og
snyrtivörudeidir
stórmarkaða.