Morgunblaðið - 24.06.1993, Qupperneq 18
18
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. JÚNÍ 1993
Tónaflóð á Eyjafirði
TÓNAFLÓÐ á Eyjafirði er yfir-
skrift siglinga sem í boði verða
á föstudagskvöldum í sumar.
Fyrsta ferðin verður annað kvöld,
föstudagskvöldið 25. júní og er far-
ið frá Torfunefsbryggju kl. 21, en
siglingin tekur um þrjá tíma og því
komið til baka aftur um miðnætti.
Hljómsveitin Samherjar leika
ljúfa tónlist á meðan á siglingunni
stendur, en hana skipa þeir Pálmi
Gunnarsson, Karl Örvarsson, Niels
Ragnarsson og Sigfús Óttarsson.
Stefán Stefánsson hjá Sæfara
sagði að þarna væri um að ræða
nýstárlega skemmtun bæði fyrir
bæjarbúa og ferðamenn og ætlunin
væri að reyna að lífga upp á bæjar-
lífið, en síðar í sumar væri fyrirhug-
að að bjóða upp á ferðir sem ætlað-
ar væru fjölskyldum og væri ýmis-
legt á döfinni hvað þær varðar..
Morgunblaðið/MagTiús J. Mikaelsson
Við heita pottinn
LANGÞRÁÐUR draumur margra Hríseyinga rættist á dögunum þegar
tekin var í notkun heitur pottur við sundiaug staðarins. Þess er vænst
að aðsókn að lauginni vaxi í kjölfar þess að potturinn var tekin í notkun
og að heimamenn muni notfæra sér hann í ríkum mæli. Lionsmenn í
eynni unnu ötullega við fjársöfnun og eins við uppsetningu heita potts-
ins. Ferðamenn hafa ekki verið mikið á ferli í Hrísey að undanförnu, en
þeir láta sjá sig þegar hlýna fer í veðri, að því er starfsmaður í sundlaug-
inni sagði.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Frá París
UM 150 Frakkar komu í beinu leiguflugi frá París til Akureyrar í
gærmorgun, en þeir hafa einkum hug á að skoða miðnætursólina.
Samtök um sorg
og sorgarviðbrögð
Opið hús
í sumar
SAMTÖK um sorg og sorgarvið-
brögð hafa opið hús í Safnaðar-
heimili Akureyrarkirlyu í kvöld,
fimmtudagskvöldið 24. júní kl.
20.30.
í sumar verða samtökin með
opið hús hálfs mánaðarlega, á
fimmtudagskvöldum. „Það er full
þörf á að halda starfsemi samtak-
anna gangandi yfír sumarmánuð-
ina, sorgin tekur sér ekki sum-
arfrí,“ sagði Ólöf Halblaub í stjórn
samtakanna.
Beint frá París til að
fylgjast með miðnætursól
ÞOTA með um 150 ferðalöngum
frá París lenti á Akureyrarflug-
velli í gærmorgun, en þetta var
fyrsta beina flugið frá París til
Akureyrar.
Andri Már Ingólfsson fram-
kvæmdastjóri Heimsferða sagði að
tildrögin væru þau að fyrir nokkrum
mánuðum hefði tekist samstarf við
frönsku ferðaskrifstofuna Nouvelle
Liberte um íslandsferðir og yrði í
sumar flogið 9 sinnum milli Parísar
og Keflavíkur.
Miðnætursólin
Tekist hefði að vekja áhuga
Frakkanna á miðnætursólinni og
væri einn helsti tilgangur komu
þeirra norður til Akureyrar að líta
eigin augum miðnætursól við heim-
skautsbaug, en hópurinn sigldi til
Grímseyjar í gærdag og fylgdist
með sólarlaginu þaðan.
í dag, fimmtudag verður farið
að Mývatni og Dettifoss skoðaður,
en hópurinn heldur aftur út á morg-
un, föstudag.
Ef þetta lukkast vel, sem mér
sýnist að muni vera, er fyrirhugað
að setja upp fleiri ferðir frá París
til Akureyrar," sagði Andri Már.
ísland heldur 3. sæti eftir
naumt tap gegn Frökkum
Menton, Frakklandi. Frá Guðmundi Sv. Hermannssyni, bláðamanni Morgunblaðsins.
Lokadagur Kringlukasts
UNDANFARNA tvo daga hafa staðið yfír markaðsdagar í Kringlunni,
sem nefnast Kringlukast, og áætla aðstandendur markaðsdaganna að
25-30 þúsund manns hafí gert sér ferð þangað. Að sögn Bjöms Gunn-
laugssonar, markaðsstjóra Kringlunnar, hefur einnig verið efnt til ýmissa
leikja fyrir gesti og efnt var til samkeppni á milli fyrirtækja um frumleg-
ustu útfærsluna og sigraði matvömdeild Hagkaups vegna litríkra skreyt-
inga og sérstæðs klæðaburðar starfsfólks. Alls taka 65 verslanir og þjón-
ustufyrirtæki þátt í Kringlukasti og bjóða yfír 300 tilboð á nýjum vömm
með afslætti sem hvergi er lægri en 20%, að sögn Bjöms.
Fyrsta skemmti-
ferðaskipið að nýja
Miðbakkanum
ÍSLENDINGAR töpuðu naum-
lega fyrir Frökkum, 14-16, í 24.
umferð Evrópumótsins í brids og
voru áfram í 3. sæti en í 27.
umferð í gærkvöldi sátu þeir
yfir. Kvennaliðið tapaði fyrir
Búlgariu, 9-21, í 16. umferð
kvennamótsins og fór í 6. sætið
en á áfram möguleika á því að
ná einu af fjórum efstu sætunum
sem gefa rétt til þátttöku í næsta
heimsmeistaramóti.
Eftir 24. umferð vom Pólveijar
efstir með 467,5 stig, Danir höfðu
447 stig, íslendingar 440 stig,
Norðmenn 431 stig, Hollendingar
430 stig, Frakkar 426 stig og Svíar
418 stig. í kvennaflokki höfðu ítal-
ir 307,5 stig, Svíar 298 stig, Þjóð-
veijar 286 stig, Finnar 283 stig,
Frakkar 281, stig og ísland 269
stig. í gærkvöldi spilaði kvennaliðið
við_ Svía í 17. umferð.
íslendingar spiluðu við Frakka á
sýningartöflu og leikurinn var fjör-
ugur. Jón Baldursson fékk gott
RANNVEIG Guðmundsdóttir hef-
ur samþykkt að taka við þing-
klapp frá áhorfendum í sýningar-
salnum fyrir vömina í þessu spiii:
Norður
♦ K973
▼ 8
♦ D96
♦ DG875
Vestur Austur
♦ ÁG52 ♦ 106
V G765 V D1092
♦ 1075 ♦ KG843
♦ K4 * 63
Suður
♦ D84
¥ÁK43
♦ Á2
♦ Á1092
Við annað borðið spiluðu Guð-
mundur og Þorlákur 3 grönd eftir
að norður hafði sýnt 4-lit í spaða.
Herve Mouiel fann hjartaútspil og
útlitið var ekki gott. Þorlákur drap
drottningu austurs með kóng, spil-
flokksformennsku í Alþýðu-
flokknum. Rannveig varð undir í
leynilegri atkvæðagreiðslu í þing-
flokknum á milii hennar og Ossur-
ar Skarphéðinssonar um hver
tæki við umhverfisráðuneytinu 7.
júní sl.
Fólst í tillögu Jóns Baldvins
Hannibalssonar formanns að sá sem
tapaði kosningunni tæki að sér for-
mennsku í þingflokkum. Rannveig
óskaði eftir umhugsunarfresti þar til
hún kæmi til baka úr fríi erlendis og
í gær sendi hún svar sitt.
aði spaða á kóng og svínaði laufa-
drottningunni. Inni á laufakóng var
Mouiel ekki viss á hjartastöðunni.
Honum fannst einnig spaðaíferðin
lykta af því að Þorlákur hefði verið
að reyna við 9. slaginn á spaða, og
taldi ekki ólíklegt að Alaín Lévy í
austur ætti spaðadrottninguna.
Mouiel tók því spaðaás og spilaði
meiri spaða og þar með var Þorlák-
ur kominn með 9 slagi.
Við hitt borðið sýndi suður 4-lit
í hjarta í sögnum og því spilaði Jón
Baldursson út spaðatvisti. Michel
Perron hugsaði sig um góða stund
en drap síðan tíu Sævars með
drottningu og spilaði meiri spaða.
Jón hoppaði upp með ásinn og í
sömu andrá lá tígultían á borðinu.
Þar með var spilið tapað því Perron
gat ekki komið í veg fyrir að vöm-
in fengi laufaslag og fjóra tígul-
slagi svo spilið var tvo niður.
Dómnefnd mótsins þurfti að
fjalla um tvær áfrýjanir frá íslend-
ingum eftir leikinn og dæmdi hún
Frökkum í vil í báðum málunum.
Skor var breytt í einu spilinu og
því unnu Frakkar leikinn 16-14 en
aö öðrum kosti hefði hann verið
jafn.
Óleyfilegar stellingar
íslenska kvennalandsliðið hefur
einnig fengið umfjöllun hjá keppnis-
stjóm og dómnefnd mótsins, þó
ekki vegna mála sem bridsdóm-
nefndir fjalla venjulega um. Ljósbrá
Baldursdóttir mætti nefnilega einn
daginn í skyrtubol með „vafasöm-
um“ myndum. Keppnisstjóri og
keppnisstjóm hafa gantast sín á
milli með þessar myndir og hvort
refsa ætti Ljósbrá og íslenska liðinu
vegna þeirra. Sagan komst í dag-
blaðið Nice-Matin sem birtir dag-
lega ýtarlegar fréttir af Evrópumót-
inu í Menton.
FYRSTA skemmtiferðaskipið,
m/s Kazakhstan, kemur að nýja
Miðbakkanum í gömlu höfninni í
dag, fimmtudag. Af þessu tilefni
mun borgarstjóri, Markús Öm
Antonsson, opna þennan nýja
hafnarbakka með ávarpi við komu
skipsins kl. 7.40 en skipið leggst
að bryggju kl. 7 og lúðrasveit leik-
ur nokkur lög. Þá mun hafnar-
stjóri afhenda skipstjóra gjöf.
í ár koma 40 skemmtiferðaskip
til Reykjavíkur, þar af munu 21 skip
koma í gömlu höfnina. Miðbakkinn
er sérstaklega hannaður með tilliti
til þess að taka á móti skemmtiferða-
skipum og ferðamönnum, en höfnin
vill gjaman styrkja þá viðleitini að
hleypa nýju lífi í Miðbæinn.
Með því að taka á móti skemmti-
ferðaskipum við Miðbakka er stuðlað
að því að hann endurheimti þá ímynd
í hugum borgarbúa að vera hlið ís-
lands fyrir þá sem kjósa að ferðast
sjóleiðina til og frá landinu.
Hinn nýi Miðbakki er steinlagður
og 205 metra langur. Við hann er
upphækkuð stétt þar sem gömlu eim-
reiðinni verður komið fyrir ásamt
sjávarlífskerum. Stéttin er afgirt og
sérstaklega hugsuð fyrir ýmiskonar
samkomur og skemmtanahald.
Að Miðbakka geta allt að 170
metra löng skip lagst að bryggju. í
sumar munu 21 skemmtiferðaskip
koma í gömlu höfnina og er farþega-
fjöldi hvers skips allt frá 200 og upp
í 600 manns og fjöldi í áhöfn
200-300 manns.
(Fréttatilkynning)
Rannveig formað-
ur þingflokksins