Morgunblaðið - 24.06.1993, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. JUNI 1993
19
Morgunblaðið/Kristinn
Vel þegin aðstoð
Frá vinstri: Stefán Aðalsteinsson, starfsmaður Pokasjóðs Landvernd-
ar, Kristinn R. Árnason, markaðstjóri hjá Heklu hf. og Gísli Júlíus-
son, varaformaður Landverndar.
Markaðs- og kynn-
ingarátak hjá Poka-
sjóði Landverndar
POKASJÓÐUR Landverndar hefur hafið markaðs- og kynningará-
tak og ráðið til þess starfsmann tímabundið, en Hekla hf., Olíufé-
lagið hf. og Tryggingamiðstöðin hf. hafa lagt til bifreið, elds-
neyti og tryggingar í þetta verkefni. „Þótt allir stærstu matvöru-
markaðir landsins, ásamt mörgum öðrum matvörukaupmönnum
hafi lagt pokasjóði Landverndar lið, vantar allmarga matvörukaup-
menn enn í samstarfið og allar sérverslanir landsins eru ennþá
óplægður akur,“ segir Stefán H. Aðalsteinsson, sem sér um mark-
aðsátak Pokasjóðs.
Landvernd er frjálsmynduð
heildarsamtök yfír 70 aðildarfé-
laga um land allt. Aðildarfélögin
vinna óeigingjarnt starf í al-
mannaþágu við náttúru- gróður-
og umhverfisvernd, ásamt land-
græðslu, skógrækt og megnunar-
vörnum og árlega leggja þúsundir
íslendinga virka hönd á plóginn
við að vernda dg fegra landið'og
skapa börnum okkar bjartari
framtíð og betri lífsskilyrði með
ómældri sjálfboðavinnu. Land-
vernd er algjörlega óháð öllum rík-
isafskiptum og hefur tekjur sínar
eingöngu af Pokasjóði Landvernd-
ar og árgjöldum aðildarfélaganna.
Starfsemi Pokasjóðs hefur ekki
verið mikið aulýst í fjölmiðlum,
enda fylgir auglýsingum kostnað-
ur og kostnaður þýðir að sjálf-
sögðu minna fé til úthlutunar.
Kostnaður er því bannorð í hvers
manns munni innan þessara vé-
banda.
Pokasjóður fjögurra ára
Pokasjóður Landverndar var
stofnaður fyrir um það bil fjórum
árum, þegar plastpokabruðl lands-
manna var orðið svo mikið að til
stórvandræða horfði, bæði vegna
mengunar og kostnaðar verslunar-
fyrirtækja, sem þá gáfu viðskipta-
vinum sínum alla umbúðapoka.
Þessa plastpoka hittum við síðan
hvarvetna á fömum vegi, jafnt í
byggð sem óbyggðum. Landvernd,
Kaupmannasamtök íslands og
Samtök samvinnuverslana fengu
þá undanþágu Verðlagsráðs til
þess að selja burðarpoka í mat-
vöruverslunum gegn því að helm-
ingur andvirðis þeirra rynni í poka-
sjóð Landverndar.
Pokasjóður Landverndar hefur
síðan úthlutað fengnu fé til aðila
um allt land, sem hafa heill og
jákvæða framtíð landsins okkar
að leiðarljósi. Á þennan hátt hefur
Landvernd auðnast að gera hug-
sjónina að raunverulegu, virku
afli, sem almenningur ber hlýhug
til og virðir umyrðalaust með po-
kakaupum sínum. Ennfremur hef-
ur plastpokabruðlið minnkað til
muna.
Stefán H. Aðalsteinsson sagði
um aðstoð fyrirtækjanna þriggja,
sem styðja það markaðs- og kynn-
ingarátak, sem nú fer af stað, að
stuðningur þeirra sé Landverndar-
hugsjóninni ómetanlegur og
reyndar öllum íslendingum, því að
umhverfisvernd, mengunarvarnir,
uppgræðsla landsins og betra
mannlíf er ekkert einfalt mál, sem
einhver aðili hristir fram úr er-
minni einhvern tíma, þegar hann
er í góðu skapi, heldur er það þrot-
laus barátta allra hugsandi íslend-
inga um ókomin ár gegn eyðandi
náttúruöflum og myrku hugarfari.
„Stöndum því öll saman og biðjum
kaupmanninn um burðarpoka með
merki Landverndar á handfang-
inu. Með því móti stuðlum við að
áframhaldandi umhverfisvernd í
landinu okkar allra“, sagði Stefán
'H. Aðalsteinsson.
URVALS..
LAMBAKJOT
ÁÚTSÖLU!!
/
Ameðan
Lambaskrokkar í birgðir endast:
1/1 og 1/2
Niðursagaðir að ósk kaupenda
449.-
Lambalæri
í heilu
598.=
Lambahryggur
í heilu
559.-
Lamba-
framhryggur í 1/2
Niðursagaður beintágrillið
399."
Lambakótilettur
679.=-
Lamba-
framhryggur í 1/2
Niðursagaður í súpukjöt
399."
Lambarif
beintágriUið
þurrkrydduð, marineruð,
B.B.Q.
99."
Lambaframhryggur
sneiðar 1. fl.
pr.kg.
A.M.K.
15%
AFSLÁTTUR
659.
Lambalæris-
sneiðar 1. fl.
698."
Lambalæris-
sneiðar 2. fl.
pr.kg.
499.-
f staðgreiðslu- OPIÐ: Fimmtudag kl. 9.00 - 18.
afsláttur fimmtudag,
föstudag, laugardag.
30
Föstudag kl. 9.00 - 19.00
Laugardag kl. 10.00 -18.00
MATVÖRUVERSLUNIN
mmvERj
Verið vandlát - það erum irið!
Sælureitur fjölskyldunnar!
Heitu pottarnir frá Trefjum eru fyllilega sambærilegir við þá bestu erlendu,
bæði hvað varðar verð og gæði. Þeir eru mótaðir úr akrýli, níðsterku p/ast-
efni, það er hart sem gler og hita- og efnaþolið.
Þá er auðvelt að þrífa og hægt er að fá laust lok eða létta og trausta
öryggishlíf, sem dregin er yfir pottinn, þegar hann er ekki í notkun.
Pottana má hafa frístandandi eða grafa þá í jörð og ýmis auka-
búnaður er fáanlegur, svo sem loft- og vatnsnuddkerfi.
Akrýlpottarnir frá Trefjum fást í ótal litaafbrigðum og 5 stærðum,
sem rúma frá 4 - 12 manns. Það er auðvelt að láta drauminn rætast, því
verðið er frá aðeins 69.875 krónum!
Komið og skoðið pottana uppsetta í sýningarsal okkar, hringið eða
skrifið og fáið sendan litprentaðan bækling og verðlista.
Trefjar hf. Stapahrauni 7, Hafnarfirði, sími 5 10 27