Morgunblaðið - 24.06.1993, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. JÚNÍ 1993
29
TJALDASALA - TJALDALEIGA - TJALDAVIGERÐIR
Allur vlðlegu- og ferðabúnaður
til sölu og leigu á einum stað
Sumarhátíð í blíðviðri
Morgunblaðið/Kristinn
BÖRN og starfsfólk á leikskólanum Nóaborg í Reykjavík héldu á dögunum árlega sumarhátíð sína en þá er
aðstandendum barnanna boðið að heimsækja skólann, taka þar þátt í grillveislu og skoða teikningar og vinnu
barnanna. Leiksvæði leikskólans var skreytt blöðrum og haldin var grillveisla. Milli þess sem börn og gestir úðuðu
i sig grilluðum pylsum var farið í útileiki í blíðviðrinu.
Arlegt fnðarhlaup haldið í
fjórða skipti um næstu helgi
NÚ í sumar fer Friðarhlaupið
fram fjórða sinni. Hlaup þetta
hefur verið haldið annað hvert
ár síðan 1987. í ár eru þátttöku-
þjóðirnar 83 frá öllum sjö heims-
álfunum, m.a. frá Suðurskauts-
landinu, Japan, Tansaníu, Astral-
íu, Mexíkó, Bandaríkjunum og
Eystrasaltslöndunum. Hlaupið
hófst 13. apríl fyrir utan aðal-
stöðvar Sameinuðu þjóðanna 1
New York og lýkur á sama stað
14. ágúst.
Verndarar hlaupsins eru Lech
Walesa, forseti Póllands, Paul Keat-
on, forsætisráðherra Ástralíu, Silvia
Svíadrottning og Vigdís Finnboga-
dóttir, forseti íslands. Friðarhlaupið
á fjölda annarra velunnara og má
þar t.d. nefna Vaclav Havel, forsæt-
isráðherra Tékklands, Desmond
Tutu, erkibiskup, leikarana Arnold
Schwarzenegger og Joanne Wood-
ward, hlaupadrottninguna Grete
Waitz 'og Carl Lewis, margfaldan
heims- og ólympíumeistara. ís-
lenskir stuðningsmenn hlaupsins
eru m.a. Ellert B. Schram, forseti
ÍSÍ og Sigrún Eðvaldsdóttir, fiðlu-
leikari.
Hvatamaður Friðarhlaupsins er
friðarfrömuðurinn Sri Chinmoy en
skipulagningin er í höndum alþjóð-
legra hlaupasamtaka, Sri Chinmoy
maraþonliðsins, og sér hver deild
innan þeirra um framkvæmdina í
sínu landi.
Á íslandi verður hlaupið helgina
26. og 27. júní. Framkvæmd
hlaupsins verður þannig að laugar-
daginn 26. júní verður lagt af stað
frá Hafnarfirði (Thorsplani) kl.
11.30 og Mosfellsbæ (íþróttamið-
stöðinni við Varmá) kl. 12.00 og
hlaupið að Hljómskálagarðinum í
Reykjavík. Friðarhlaupið kemur til
Garðabæjar (Flataskóla) kl. 12.00
og Kópavogs (Rútstúns) kl. 12.45.
í tengslum við hlaupið verða fyrr-
nefndir bæir lýstir friðarbæir með
stuttri athöfn á hveijum stað og
að þeim loknum hlaupa bæjarstjór-
ar með friðarkyndilinn. Rúta verður
með í för frá Mosfellsbæ og Hafnar-
firði fyrir þá sem vilja hlaupa stutt-
ar vegalendir.
Klukkan 14.00 hefst í Hljóm-
skálagarðinum opnunarathöfn að
samfelldu 24 tíma hlaupi umhverfis
Tjörnina og þá verður Reykjavík
tilnefnd friðar-höfuðborg. Hlaupinu
lýkur á sunnudaginn kl. 15,00.
Markmiðið með hlaupinu er að
efla samlyndi og frið milli manna
og þjóða heims. Þátttaka í Friðar-
hlaupi ’93 er ókeypis og á vegum
þess fer ekki fram söfnun af neinu
tagi.
Jónsmessuvarðeldur skáta
SKATAFELOGIN í Reykjavík
standa fyrir varðeldi vestan meg-
in Öskjuhlíðar í kvöld, fimmtu-
daginn 24. júní. Varðeldurinn
hefst kl. 20.
Sungin verða vinsæl skátalög,
skemmtiatriði sýnd og spilað á gít-
ar. A eftir varðeldinum mun hvert
félag bjóða sínu fólki kakó. Varðeld-
urinn er liður í undirbúningi Reykja-
víkurskáta fyrir landsmót sem hald-
ið verður 25. júlí til 1. ágúst. Öllum
er velkomið að koma á staðinn og
taka þátt í varðeldinum.
(Fréttatilkynning)
■ SSSÓL leikur nú um helgina
fyrir vestan, nánar tiltekið á Bíldu-
dal á föstudagskvöld og á Ólafsvík
á laúgardagskvöld.
■ SULTUR leikur laugardags-
kvöld á Plúsnum v/Vitastíg.
Hljómsveitina skipa Harrý Óskars-
son, Alfreð Alfreðsson, Jóhann
Vilhjálmsson og Ágúst Karlsson.
■ PLÁHNETAN og NÝ DÖNSK
halda dansleik á Hlöðum á Hval-
fjarðarströnd (ca. 40 mín. akstur
frá Reykjavík) föstudagskvöldið 25.
júní. Laugardagsvöldið 26. júní leik-
ur síðan Pláhnetan í Njálsbúð í
Vestur-Landeyjum. Gestir
kvöldsins verður hljómsveitin
Bone China. Sætaferðir frá helstu
bæjum á Suðurlandi.
»hummel^P
SPORTBÚÐIN
ÁRMÚLA 40,
símar 813555 og 813655.
S?07T
ÚTIVISTARBÚÐIN
viö Umferðarmiðstöðina,
simar 19800 og 13072.
Trekker
2 - 3 m.
göngutjöld,
aðeins 2,5 kg.
Verð kr. 7.900
■ KK-BAND leikur á útitónleik-
um á torginu við Gerðuberg laugar-
daginn 26. júní kl. 15 í tilefni tíu
ára afmælis menningarmiðstöðvar-
innar Gerðubergs og sjötíu ára af-
mælis útibús Borgarbókasafnsins í
Gerðubergi.
■ SKRIÐJÖKLAR leikur á dans-
leik í Ýdölum í Aðaldal á laugar-
dagskvöldið. Danleikurinn hefst kl.
23. Hljómsveitin hefur nýverið gef-
ið út hljómplötuna Búmm tsjagga
búmm.
son, Lárus Már Hermannson,
Ríkharður Mýrdal Harðarson og
Pétur Sverrisson.
■ GRÆNI BÍLLINN HANS
GARÐARS leikur fyrir dansi í Fé-
lagsheimilinu Sandvík á laugar-
dag. Hljómsveitma skipa: Bjami
Þór, Matthías Ágústsson, Viðar
Ástvaldsson og Þórarinn Hann-
esson. Dansleikurinn hefst kl. 29
Catanía hústjöld - Falleg og vönduð, 3, 4 og 5 manna.
Bómullardúkur 280 gr. pr. m2, 22 mm stálsúlur.
Verð frá kr. 29.900
Napoli
4 manna tjöld
m/fortjaldi.
St. 170+ 190 +75 x
240x180/150 cm
Verð kr. 19.900
3 - 4 m. kr. 15.900
Mehler
3 - 4 m. kúlutjöld.
Verð kr. 8.900
Svefnpokar frá
kr. 2.900
Bakpokar
kr. 2.900
Ferðadýnur
kr. 890
o.m.fl. á frábæru
verði.
Alpina gönguskór
fyrir meiri- og minniháttar
gönguferðir.
Verð frá kr. 5.500
K2 útivistarfatnaður
CORE-TEX
Hentar jafnt til útivistar
og daglegra starfa.
■ DRAUMALANDIÐ semkemur
frá Borgarnesi og hefur starfað í
tæp tvö ár, spilar á Tveimur vinum
föstudagskvöld. Laugardaginn 26.
júní leikur svo hljómsveitin í Hreða-
vatnsskála í Borgarfirði. Hljóm-
sveitina skipa: Einar Þór Jóhanns-
d_____v,
IÞROTTAGALLI
st. S - XL
TILBOÐSVERÐ
3.990,-
SKEMMTANIR