Morgunblaðið - 24.06.1993, Qupperneq 32
32
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. JÚNÍ 1993
fclk í
fréttum
RÉTTARSÁLFRÆÐI
Aðferðir nýútskrifaðs doktors
notaðar í Bandaríkjunum
Gunnar Hrafn Birgisson lauk
fyrr í þessum mánuði dokt-
orsprófí í klínískri sálfræði frá
Califomia School of Professional
Psychology í Los Angeles. í dokt-
orsverkefni sínu rannsakaði hann
persónuleikamun kynferðisaf-
brotamanna sem höfðu verið
fundnir sekir. Annars vegar voru
menn sem játuðu sekt sína en hins
vegar menn sem höfðu verið
dæmdir en neituðu glæpnum. „Mig
langaði að afla nýrrar þekkingar
og bæta þær aðferðir sem eru
notaðar til áð meta sekt eða sak-
leysi þessara manna,“ sagði Gunn-
ar.
Niðurstöður hans sýndu mark-
tækan mun á persónuleika og
vamarháttum kynferðisafbrota-
manna. „Aðferðir og niðurstöður
rannsóknar minnar hafa þegar
verið notaðar í Los Angeles af rétt-
arsálfræðingum við mat á vafa-
málum þar sem hinn ákærði neitar
að hafa framið kynferðisafbrot.
Auk þess eru niðurstöðurnar hjálp-
legar við gerð meðferðaráætlana
sem henta fyrir kynferðisafbrota-
'menn.“
Nemendur fóru sjálfir í
sálræna meðferð
Megináhersla námsins sneri að
greiningu og meðferð geðrænna
vandamála hjá einstaklingum, pör-
um og fjölskyldum, en einnig að
hagnýtingu sálfræðilegra rann-
sókna í starfí. „Tilgangurinn með
starfsþjálfuninni er sá að gera
okkur hæf í klínísku starfí. Með
sama markmið í huga er ein af
í doktorsverkefni sínu gerði
Gunnar Hrafn Birgisson rann-
sókn á persónuleikamun kyn-
ferðisafbrotamanna sem höfðu
verið fundnir sekir.
kröfum skólans að nemendur fari
sjálfír í sálræna meðferð vikulega
í eitt ár.“
Af þeim meðferðarstofnunum
sem Gunnar var kandídat á í Los
Angeles taldi hann sig læra mest
á geðdeildinni „Metropolitan
Clinical Counseling, Manhattan
Beach“ því þar fékkst hann við
flestar gerðir geðrænna vanda-
mála.
Lenti þrisvar í bankaráni
„Það kom mér á óvart hve marg-
ir hafa gengið í gegnum ótrúlega
lífsreynslu. Stundum er raunveru-
leikinn ótrúlegri en skáldsaga, t.d.
var ein kona sem hafði lent í þrem-
ur bankaránum á einu ári. í eitt
skiptið var henni haldið í gólfínu,
byssu miðað að höfði hennar og
hótað að skjóta, væru peningar
ekki látnir af hendi þegar í stað.
Skiljanlega leiddi þessi reynsla til
streitu- og kvíðaeinkenna hjá kon-
unni,“ sagði Gunnar.
Hann kveðst hafa líkað vel dvöl-
in í Los Angeles. „Þetta hefur ver-
ið góð reynsla fyrir mig sem mun
nýtast mér vel sem sálfræðingi.
Ég þurfti að takast á við mörg
mismunandi vandamál í starfs-
þjálfuninni. Mikil áhersla var lögð
á að við öðluðumst þekkingu og
færni í notkun sálfræðilegra prófa,
túlkun niðurstaðna og ritun
skýrslna. Sú blöndun sem er á
bóklegu námi og hagnýtu starfí
hefur gefíð mér gott tækifæri til
að læra og bæta mig í greininni.“
Gunnar hefur fengið tvö at-
vinnutilboð í Bandaríkjunum en
hefur samt sem áður ákveðið að
snúa heim að námi loknu.
„Meginástæða þess að ég ákvað
að fara heim var löngum dætra
minna til að fara heim. Ég er líka
skuldbundinn til að snúa heim að
námi loknu í að minnsta kosti tvö
ár, sem tengist því að ég fékk
Fullbrightstyrk til náms í Banda-
ríkjunum. Um leið og ég þáði þann
styrk var ég skuldbundinn til að
fara heim í tvö ár að námi loknu,“
sagði Gunnar, sem mun hefja störf
hjá Bamaverndarráði íslands í
hlutastarfí.
Texti: Hildur H. Karlsdóttir
3 ódýrastir
Hvar færðu mest og
best fyrir peningana
þína ?
Stúdentamyndatökur
6 fullunnar stækkair 13x18
cm og tvær stækkanir 20 x 25
cm. verð aðeins kr. 9.000,00
Ljósmyndastofa Kópavogs
sími: 43020
Bama og fjölsk. ljósmyndir
sími.677644
Ljósmyndastofan Mynd sími:
65 42 07
ZANC\STER
SURACTIF
EFTIR 40 ER ÞAÐ BESTA
EKKI LENGUR MUNAÐUR
Með aldnnura lebf húðin nóttúrulegum breytingum.
Hennj hættir liíaS þ«na, verðq þreyfifteg; pg f ínðt..:
hcukkur lara að myndasl. Húðin þarlnost þvi
sérstakror umhirðu 5era tekur ó vandamólum
þroskoðrar húðor, hverju fyrir sig, og meáhöndlar
þau af visindalegri nákvæmni;
LANCASTER SURACTIF
Mjög virk efni smjúga inn i öli lög hú&arinnar.
ÁRANGURINN: HÚÐIN VERÐUR UNGLEG OG AÐLAÐANDI - ÞANNIG LÍÐUR ÞÉR BEST
HVERS VEGNA AÐ SÆTTAST A MINNA?
Morgunblaðið/Einar Falur
Þungt rokk eða þungarokk? Hin ofurþétta rokksveit Hún andar.
tónSt
Ferskir tónar
í Tunglinu
Að kvöldi 16. júní komu tólf ís-
lenskar rokksveitir saman í
Tunglinu og fögnuðu útkomu
geislaplötunnar Núll & nix. Tónlist
þeirra gaf góða mynd af því nýj-
asta sem er að gerast í íslensku
rokki í dag. Eins og flestir hafa
eflaust tekið eftir er mikill gróandi
í íslensku tónlistarlífí og fjölbreytn-
in hefur sjaldan verið meiri. Tón-
leikamir í Tunglinu voru gott dæmi
um þetta. Margar athyglisverðar
og efnilegar sveitir stigu á svið og
sýndu fagmannleg tilþrif.
Meðal hljómsveita sem fram
komu má nefna sigurvegara
tveggja síðustu músíktilrauna,
Kolrössu Krókríðandi og Yukatan.
Einnig vakti óskipta athygli ný-
bylgjuhljómsveitin Curver. Birgir
Öm Thoroddsen er hinn eini mann-
legi meðlimur sveitarinnar og kem-
ur hann jafnan fram í kjól. Birgir
leikur á rafmagnsgítar en um
trommu- og bassaleik sér tölva sem
hann hefur forritað. En Curver er
ekki aðeins athyglisverð heldur
einnig áheyrileg eins og flestar
hljómsveitirnar í Tunglinu þetta
kvöld.
Aðstandendur tímaritsins „0“ og safndisksins Núll & nix. Frá vinstri
eru Jökull Tómasson, Þorsteinn Högni Gunnarsson og vinkona hans
Christina og Gunnar Hjálmarsson.
ÍÞRÓTTAMENN
Van Basten kvænist
Fótboltahetjan Marco van Basten á tröppum Haarzuilen-kastala síð-
astliðinn mánudag eftir bjónavígslu hans og sambýliskonu hans
til nokkurra ára, Liesbeth. Van Basten heldur á eldri dóttur þeirra
hjóna, Rebekku, sem er 2 Vi árs en Liesbeth heldur á Angelu, sem er
rétt ársgömul. Aðeins er hálfur mánuður síðan van Basten gekk undir
uppskurð á hné, en búist er við að hann geti aftur farið að æfa fót-
bolta eftir fjóra mánuði.
Reuter