Morgunblaðið - 24.06.1993, Page 40
40
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. JÚNÍ 1993
Átta milljónir kr.
yeittar til hjálp-
ar flóttamönnum
Þróunarsamvinnustofnun hefur veitt Rauða krossi ís-
lands fimm miiljónir króna til að svara hjálparbeiðni Al-
þjóðasambands landsfélaga Rauða krossins til aðstoðar
flóttafólki í heiminum. Aður hafði Hjálparsjóður RKI svar-
að beiðninni með þriggja milljóna króna framlagi.
Áætlað er að á þessu ári muni
Alþjóðasambandið aðstoða 4,4 millj.
flóttafólks í 15 löndum. Til þessara
verkefna verður varið um 3,5 millj-
örðum íslenskra króna á þes'su ári,
sem er þreföldum frá í fyrra. Aukin
fjárþörf endurspeglar fjöigum flótta-
fólks og erfiðari skilyrði þess, sér-
staklega á Balkanskaga og í Sómalíu
þar sem fólk hefur þurft að þola
miklar þrengingar.
Talið er að um 18 milljónir séu
landflótta í heiminum og um 20 millj
á vergangi í eigin landi. En þrátt
fyrir að flóttafólki hafí fjölgað ár frá
ári hefur á einstaka stöðum tekist
að snúa þróuninni við. Til dæmis
sneru hálf önnur milljón landflótta
fólks heim í fyrra, langflest til Mós-
ambík, sem til skamms tíma átti við
mesta flóttamannavanda í Afríku að
glíma. Erfitt ástand heima fyrir hef-
ur ekki komið í veg fyrir að hópur
mósambísks flóttafólks hafi snúið
heim það sem af er þessu ári.
Alþjóðasamband landsfélaga
Rauða krossins starfar í flestum til-
fellum í nánu samstarfi við Rauða-
krossfélög viðkomandi landa. Flótta-
mannahjálpin er oft í höndum lands-
félaganna og sjálfboðaliða úr röðum
heimamanna þó að starfsemin sé
fjármögnuð af Alþjóðasambandinu.
(Fréttatilkynning)
Strokufangi gnm-
aður um innbrot
Margeir í
3. - 6. sæti
í Málmey
MARGEIR Pétursson varð í
3. - 6. sæti á alþjóðlega skák-
mótinu i Malmö i Svíþjóð, sem
Iauk í gær. Margeir hlaut 5 V2
vinning af 9 mögulegum en
sigurvegari varð heimamaður-
inn Hellers, sem hlaut 6 '/2
vinning og hafði forystu allt
mótið.
í öðru sæti varð Daninn Lars
Bo Hansen með 6 vinninga, en
jafnir Margeiri með 5 '/2 urðu
Ukraínumaðurinn Romanishin,
Ástralinn Rogers og Rosaentalis
frá Litháen.
Meðal þátttakenda á mótinu
var Reynir Helgason, sem er 25
ára gamall af íslensku foreldri
en hefur verið búsettur í Svíþjóð
frá 2 ára aldri. Hann varð í
9-10. sæti á mótinu.
Eyrarbakka.
FANGI sem strauk í fyrrinótt frá Litla-Hrauni gaf sig fram í Hegning-
arhúsinu í Reylqavík síðdegis í gær. Hann er grunaður um að hafa,
meðan á flóttanum stóð, brotist inn hjá Alpan á Eyrarbakka og stolið bíl
í Olfusi en var veikur þegar hann gaf sig fram í gær og var því hlíft
við yfirheyrslum.
í fyrrinótt var brotist inn í skrif-
stofur Alpan hf. á Eyrarbakka, rótað
í skrifborðsskúffum en litlu stolið.
Hins vegar virðist þjófurinn hafa
^fieymt 10.000 krónum sem hann
hafði tekið úr einni skrifborðsskúff-
unni og lagt til hliðar á borðshom.
Vitað er að vörubifreiðastjóri tók
strokufangann upp við Óseyrarbrú
um klukkan fjögur í gærmorgun og
ók honum að Þorlákshafnarvegamót-
um. I gærmorgun uppgötvaðist að
bíll var horfinn af bæ í Ölfusi og er
einnig talið líklegt að fanginn beri
ábyrgð á því.
Óskar
Golfmót kvenna á Svarfhólsvelli á kvennadaginn
Kylfingar í gróðurreit
HLUTI keppenda á afmælismótinu í gróðurreitnum Meyjarfaðmi sunnan undir Svarfhól.
Afram stelpur með líflegt
afmælismót á Selfossi
Selfossi.
FIMMTÍU konur fimmtíu ára og eldri
héldu upp á tíu ára afmæli golffélagsskap-
ar sem þær nefna Afram stelpur. Arlegt
golfmót þeirra var haldið á Svarfhólsvelli
á Selfossi kvennadaginn 19. júní.
Að vanda voru vegleg verðlaun á mótinu og góð
stemning meðal keppenda. Bráðabana þurfti til að
skera úr um úrslit í einum keppnisflokknum og var
það gott framlag í hressan mótsanda. Að lokinni keppni
afhenti félagsskapurinn Golfklúbbi Selfoss að gjöf tíu
grenitré sem gróðursett voru í skógarlundinum Meyj-
arfaðmi sunnan undir Svarfhól. Trén eru þakklæt-
isvottur til klúbbsins fyrir veitta aðstoð við mótshald
á hveiju ári. Auk þess var samþykkt undir borðhaldi
og verðlaunaafhendingu að stofna sjóð með hluta
mótsgjalda til þess að styrkja efnilegar stúlkur í golfi.
Sig. Jóns.
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Gróðursetning í Meyjarfaðmi
KRISTÍN Sveinbjörnsdóttir afhendir Jóni Ágúst
Jónssyni formanni GOS gjafabréf.
Islenskir Kiwanis-menn á faraldsfæti í sumar
Fjölmenni fer héðan á
Heims- og Evrópuþing
KIWANISFELAGAR og makar þeirra halda nú til Nice í
Frakklandi til þinghalds. Fyrst fer fram Evrópuþing Kiwanis-
hreyfingarinnar í Evrópu dagana 26. og 27. júní. Áætlað er
að til Evrópuþings muni koma allt að 1.000 manns en á Heims-
þing um 7.500 frá ölium heimshlutum. Þar af á annað hund-
rað þátttakenda frá Islandi. Islenska Kiwanishreyfingin hefur
um langan tíma látið að sér kveða á alþjóðavettvangi, bæði
í líknarstarfi og hinu félagslega starfi hreyfingarinnar.
Islenskir kiwanisfélagar hafa
setið í trúnaðarstörfum á vegum
Evrópuhreyfíngarinnar um árabil.
Fjórir íslendingar hafa gegnt stöðu
Evrópuforseta á síðastliðnum 25
árum og fímmti íslendingurinn er
nú í framboði til Evrópuforseta-
framboðs, Ævar Breiðfjörð fram-
kvæmdastjóri úr Reykjavík. Allt
bendir til þess að hann verði kjör-
inn þar sem ekki hafa ennþá borist
nein mótframboð.
í Heimsstjórn hreyfingarinnar
situr nú fyrir hönd Evrópu Eyjólfur
Sigurðsson, útgáfustjóri úr Rekja-
vík. Hann hefur setið í stjórninni
síðastliðin 5 ár. Hann gefur nú
kost á sér í starfi féhirðs Heims-
hreyfingarinnar en þrír frambjóð-
endur eru um það embætti. Sá
frambjóðendanna sem vinnur þá
kosningu verður forseti Heims-
hreyfíngarinnar 1. október 1995
án frekari kosninga, þannig að
framboð til féhirðis er um leið fram-
boð til forseta. Mótframbjóðendur
Eyjólfs eru tveir Bandaríkjamenn.
Verði Eyjólfur kosinn verður hann
fyrsti Kiwanisfélaginn frá Evrópu
sem tekur við forsetastörfum.
Undirbúningur framboðsins hefur
staðið í tvö ár og stendur Evrópu-
hreyfíngin einhuga að baki honum.
Eitt af þeim málum sem eru til
umræðu á Heimsþinginu eru
líknarverkefni sem stefnt er að, að
verði framkvæmt í samvinnu við
Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna
(UNICEF) en það er að eyða joðs-
korti í heiminum. Milljónir manna
þjást af joðskorti en talið er að
Kiwanishreyfingin með um 330
þúsund félaga eigi að geta útrýmt
joðskorti fyrir árið 2000. Kostnaður
við þetta verkefni er talinn í millj-
örðum króna en engu að síður eru
kiwanisfélagar um allan heim til-
búnir til þessa verkefnis.
Finnbogi G. Kristjánsson, um-
dæmisstjóri íslensku kiwanishreyf-
ingarinnar, hefur setið í alþjóðlegri
nefnd á vegum hreyfíngarinnar og
fór nýlega til Bólivíu til þess að
kynna sér hvernig sjúkdómar heija
á fólk sem þjáist af joðskorti.
(Fréttatilkynning)