Morgunblaðið - 24.09.1994, Blaðsíða 32
32 LAUGARDAGUR 24. SEPTEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
Ljóska
f>/to ek sarr/tÐ hafa
GLUS6ANA OPHA CXS
P/HHA HLÍ/XA
GOLUNA kOMA /NH
'AD ee œ'A&œr T1
ann/6 ærr/ þAPAUTArf
A£> VEKA
HEyweÐU þessA huno
eM ?! /H/eJuea *tla þau
AÐ HLE/PA HOHUM /NN ?
VE/STVHVAÐ É6 Z/LO/ ?
At> hlerar \/Æey Fy/zip.
QLU6&UHUA/ 3VO B6
HEy&>/ EK/d ÞB TTA
S/FELLPA GELT■
BREF
ITL BLAÐSINS
Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 691100 • Símbréf 691329
Ágœti Start-félagi!
Glaðningur fyrir tóníistarunnendur
Einn mcrkiicgasti tónlistarviðburöur ársins verður í Kaplakrika í Hafiiarfirði \
laugardaginn 24. septembcr. l»ar kcmur firam hljómsveitin THE PRODIGYsem eins og i
aliir vita er ein vinsælasta hljómsveit Bretlands um þcssar mundir. Sparisjóður"
Kópavogs er styrktaraðili þessara tónlcika og vegna þess þá bjóðum við Start-félögum
miðann á tónieikana á viidarkjörum, þ.e.a.s 1.950 kr., en almcnnt verð úr forsölu er
2.200 kr. Forsala á miðum verður hjá Japis Kringlunni/Brautarholti, X-tra búðinni á
f Laugavcgi og Músik & Myndir {Mjódd.
E.s Muniö að framvisa Start-kortunum við miðasöluna.
Meó bestu kvedjum,
slarfsjólk Sparisjöós Kópavogs.
MEÐ persónulegu bréfi sem þessu til barna undir lögaldri er
verið að ganga fram hjá foreldrum sem bera ábyrgð á uppeldi
barna sinna.
Opið bréf
til SPRON
ÞESSA dagana eru bömum og
unglingum sem eru félagar í Start-
klúbbi SPRON að berast 'tilboð um
ódýrari miða en annars staðar á
tónleika hljómsveitarinnar The
Prodigy. í bréfinu er fjallað á mjög
jákvæðan hátt um hljómsveitina og
í því felst hvatning til bamanna um
að fara á þessa tónleika. Miðaverð
til þeirra er „aðeins" 1.950 kr.
Samkvæmt upplýsingum frá
SPRON geta börn 12 ára og eldri
orðið félagar í START-klúbbnum
og hafa þau sennilega öll fengið
þetta bréf, sent til þeirra persónu-
lega. Þar sem þetta tilboð SPRON
vekur furðu okkar af mörgum
ástæðum, viljum við vekja athygli
á eftirfarandi:
1) Útivistartími barna undir 16
ára aldri er til kl. 22 en áætlað er
að tónleikarnir standi til kl. 24.
Þetta stangast á við fyrrgreindar
reglur.
2) Börn eru ekki fjárráða fyrr
en þau eru 18 ára gömul. SPRON
sendir bömum allt niður í 12 ára
tilboð sem hefur verulegan kostnað
í för með sér. Þetta stangast a.m.k.
á við almennt siðferði, ef ekki lög.
3) Með bréfi sínu er SPRON að
hvetja börn til að mæta á tónleika
sem ætla má að eldri krakkar sæki
líka. Ráðamönnum í SPRON er
eflaust kunnugt um að því miður
er svo, að alitof oft er vímuefni
haft um hönd á slíkum tónleikum,
þó reynt sé að stemma stigu við því.
4) Með persónulegu bréfi sem
þessu til barna undir lögaldri er
verið að ganga fram hjá foreldrum
sem bera ábyrgð á uppeldi barna
sinna. Það em foreldrar sem eru
ábyrgir fyrir útivist barna yngri en
16 ára og þurfa því að taka ákvarð-
anir með og fyrir böm sín.
Starfsmenn Unglingadeildar Fé-
lagsmálastofnunar Reykjavíkur
telja þetta tilboð í Start-klúbbi
SPRON stangast alfarið á við þá
stefnu sem taka ber í málefnum
barna og ungmenna. Við teljum að
virða beri ábyrgð foreldra í uppeldi
barna sinna, bæði ijárhagslega sem
aðra. Það er þó til þeirra sem spjót-
unum er beint þegar eitthvað fer
úrskeiðis. Mikið átak var gert síð-
astliðinn vetur til að vekja foreldra
til meðvitundar um leyfilega útivist-
artíma barna sinna en við teljum
að tilboð SPRON um „ódýra“ tón-
leika til kl. 24 stangist alfarið á við
þær reglur.
Að lokum, þó bréfí þessu sé að
gefnu tilefni beint til SPRON, þá
gildir þetta um marga aðra. Aðrar
bankastofnanir og ýmis fyrirtæki
hafa sent gylliboð til barna- og
unglinga sem ganga í sömu átt.
Það er kominn tími til að fyrirtæki
og stofnanir horfíst í augu við þá
samfélagslegu ábyrgð sem þau
bera, m.a. í uppeldi barna, og styðji
foreldra í viðleitni þeirra til ábyrgs
uppeldis á börnum sínum en vinni
ekki gegn þeim. 1
Fyrir hönd starfsfólks Unglingadeildar
Félagsmálastofnunar Reykjavíkur,
HUGO ÞORISSON.
Smáfólk
Fyrirgefðu, ég missti þennan
flugbolta, stjóri...
Hvaða afsökun hefurðu þá i þetta
sinn?
Það fór þotureykur í augun á
mér...
GSI7TT1
Ericsson
Pocket
GH 337
PÓSTUR
OG SfMI
Gagnasafn
Morgunblaðsins
Allt efni sem birtist í Morgun-
blaðinu og Lesbók verður fram-
vegis varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskil-
ur sér rétt til að ráðstafa efninu
þaðan, hvort sem er með endur-
birtingu eða á annan hátt. Þeir
sem afhenda blaðinu efni til
birtingar teljast samþykkja
þetta, ef ekki fylgir fyrirvari
hér að lútandi.