Morgunblaðið - 29.01.1999, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 29.01.1999, Blaðsíða 14
14 FÖSTUDAGUR 29. JANÚAR 1999 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI Úrskurður Hollustuverndar vegna Krossanesverksmiðju kærður til umhverfísráðuneytisins Morgunblaðið/Kristján VERKSMIÐJAN í Krossanesi er mjög mikilvægnr hlekkur í atviunukeðju bæjarins en trúlega er ekkert fyrir- tæki eins umdeilt. Forsvarsmenn verksmiðjunnar fullyrða að það sér hagur allra í bænum að leyfi fáist fyrir stækkun hennar. JÓHANN Pétur Andersen, framkvæmdastjóri Krossanesverksmiðjunn- ar, og kona hans, Erla Adolfsddttir, fluttu í vikunni í Einholt á Akureyri, sem er í næsta nágrenni við verksmiðjuna. A því svæði hefur verið mesta andstaðan við verksmiðjuna vegna lyktarmengunar en Jóhann Pétur vonaðist til að sér yrði vel tekið í hverfinu. MÁLEFNI fiskimjölsverksverk- smiðjunnar í Rrossanesi voru til um- ræðu í bæjarráði Akureyrar í gær. Forsvarsmenn verksmiðjunnar hafa kært úrskurð Hollustuverndar ríkis- ins að takmarka starfsleyfí hennar við eitt ár og að vinnslugetan sé tak- mörkuð við 550 tonn á sólarhring. Sótt var um starfsleyfi til fjögurra ára og 800 tonna vinnslugetu á sólar- hring. Umhverfisráðuneytið leitaði eftir umsögn bæjaryfirvalda um kæruna og í svarinu er bent á íyrri ábendingar bæjarráðs þar að lútandi. Þá telur bæjarráð fuil rök fyrir ábendingu fyrirtækisins um fjöguiTa ára starfsleyfi. í janúar á síðasta ári samþykkti bæjarráð bókun þar sem mælt var með því að gefið yrði út leyfi til að auka afkastagetu verk- smiðjunnar í tilraunaskyni á árinu 1998 en því hafnaði Hollustuvernd. Töluvert hefur verið kvartað yfir mengun frá Krossanesverksmiðjunni og hafa íbúar í næsta nágrenni henn- ar farið þar fremstir í flokki. I bókun sinni í gær tekur bæjarráð fram að aðaiskipulag bæjarins geri ráð fyrir umræddri starfsemi á svæðinu. Því sé mikilvægt að leita leiða til þess að mæta sjónarmiðum starfsleyfishafa og þeirra íbúa sem málið varðar. Hagsmunir fari saman Krossanesverksmiðjan hefur þrisvar fengið bráðabirgðastarfsleyfi, til eins árs í senn. Kristján Þór Júlí- usson, bæjarstjóri á Akureyri, sagði ekki hægt að Hollustuvernd byði upp á þannig starfsumhverfi. „Verksmiðj- an í Krossanesi er jafnvel búin meng- unarbúnaði og aðrar verksmiðjur og því spyr maður sig af hverju hún fær aðeins bráðabirgðastarfsleyfi." Kristján Þór sagði að hagsmunir fyrirtækisins og íbúa á Akureyri yrðu að fara saman. „Þetta getum við aldrei samræmt nema fyrirtækið sitji við sama borð og önnur sambærileg fyrirtæki í landinu og að íbúarnar sitji við sama borð og aðrir, varðandi atvinnustarfsemi í þeirra heima- byggð. Það er alveg Ijóst að sambýlið hér um þessar mundir mætti ganga betur. Eg hins vegar fulljrði að það er ekki bara fyrirtækinu eða íbúun- um að kenna og aðrir eiga líka sinn þátt í því.“ Yiðmiðun um „viðunandi“ lyktarmengun ekki til Kristján Þór sagði að samkvæmt þeim upplýsingum sem gefnar hafi verið, séu engin viðmiðunarmörk til varðandi það sem Hollustuvernd kallar viðunandi lyktarmengun. „Það hefur því í for með sér að matið verð- ur alltaf bundið þeirri persónu sem hefur málið á sinni könnu hverju sinni,“ sagði hann. Ekki setið við sama borð? Forsvarsmenn Krossaness telja sig ekki sitja við sama borð og aðrar sambærilegar verksmiðjur í landinu og slíkt skekki mjög samkeppnis- stöðu fyrirtækisins. Hefur í því sam- bandi verið rætt um brot á jafnræðis- reglu stjórnsýslulaga og að hlutverk Hollustuvemdar sé að veita aðstoð við úrlausn mála. Jafnframt hefur verið bent á að mengunarvarnabún- aður í Krossanesi sé sambærilegur og jafnvel betri en hjá öðrum verk- smiðjum en flestar verksmiðjur landsins hafi fengið leyfi til stækkun- ar og starfsleyfí til fjögurra ára í senn. Heilbrigðisnefnd Akureyrar fjall- aði um málið í byrjun síðasta árs og samþykkti fyrir sitt leyti stækkun verksmiðjunnar en að framkvæmdin færi fram undir eftirliti. Þeir sem Morgunblaðið hefur rætt við eru þess fullvissir að lyktarlaus verksmiðja sé ekki til. Hins vegar sé lyktin misjafnlega slæm, sem helgast fyrst og fremst af því hversu hráefnið er ferskt sem unnið er. Forsvars- menn Krossanes hafa bent á að með aukinni vinnslugetu, sé hægt að vinna hráefnið ferskara og um leið að minnka lykt. Hjá Hollustuvernd hafa þau svör fengist að ekki þýði að tala um stækkun meðan ekki hefur tekist að ráða við mengunarvandann. Þar á bæ er jafnframt viðurkennt að það sé geysilega erfitt mál. Einnig hefur komið fram að kvart- anir frá bæjarbúum hafi vegið mjög Blaðbera vantar í Dalsgerði - Vallargerði Lönguhlíð - Háhlíð, Akureyri. Blaðburður verður að hefjast um leið og blaðið kemur í bæinn. Góður göngutúr sem borgar sig. Morgunblaðið, Kaupvangsstræti 1, Akureyri, sími 461-1600 Morgunblaðið leggur áherslu á að færa lesendum sinum vandaðar og áreiðanlegar fréttir og upplýsingar. Morgunblaðið er eina dagblaðið á islandi sem er í upplagseftirliti og eru seld að meðaltali rúmlega 53.000 eintök á dag. Höfuðstöðvar Morgunblaðsins eru í Kringlunni 1 i Reykjavík þar sem eru hátt í 300 starfsmenn. Á Akureyri er starfrækt skrifstofa í Kaupvangsstræti 1. Morgunblaðið kom fyrst út 2. nóvember 1913. þungt varðandi ákvarðnir Hollustu- verndar. Ibúar í næsta nágrenni verksmiðjunnar stóðu fyrir undir- skriftasöfnun í lok síðasta árs og skrifuðu rúmlega 500 manns á listana. Þar voru gerðar alvarlegar athugasemdir við starfsleyfi og stækkun verksmiðjunnar og núver- andi ástand talið algerlega óviðun- andi. I kjölfarið buðu forsvarsmenn Krossanesverksmiðjunnar íbúum í nágrenninu til kynningarfundar, þar sem m.a. var gerð grein fyrir stöðu mála varðandi mengunaiTnál. Þar kom fram að forsvarsmenn Krossaness hafa á undanförnum ár- um kappkostað að bæta mengunar- varnir verksmiðjunnar. Jafnframt lýstu þeir vilja til að gera enn betur, enda markmiðið að ná sem bestri sátt um rekstur verksmiðjunnar í fram- tíðinni. Á síðasta ári gerðu Krossanes og Rannsóknarstofnun Háskólans á Akureyri, RHA, með sér samstarfs- samning er kveður á um rannsóknir og faglega ráðgjöf RHA hvað varðar stefnumótun í umhverfisstjórnun. Hafa Krossanesmenn lýst yfir vilja til að ráðast í enn frekari fram- kvæmdir til að stemma stigu við lykt- armengun frá verksmiðjunni. Þeir hafa gert Hollustuvernd grein fyrir afstöðu sinni. Eina forsendan sem þeir hafa sett fram er að fram- kvæmdir verði í samráði við Holl- ustuvemd, sem jafnframt segi til um með hvaða hætti stofnunin vilji að mengunarvarnir verði efidar þannig að viðunandi árangur náist. Hollustu- vernd hefur enn ekki kveðið uppúr með þetta. Verra ástand eftir brunann? Valdimar Brynjólfsson, fram- kvæmdastjóri Heilbrigðisnefndar Norðurlands eystra, sagði að bæjar- búar hafi kvartað sérstaklega mikið yfir lyktarmengun frá verksmiðjunni síðastliðin þrjú ár. „Mín persónulega skoðun er sú að hráefnið skipti öllu máli varðandi lyktarmengun. Hér hefur verið kvartað mikið og það hefur örugg- lega haft sitt að segja varðandi ákvörðun Hollustuverndar. Það var einnig nokkuð um kvartanir í kring- um 1980 en eftir breytingar á verk- smiðjunni upp úr því, sem virtust skila árangri, dró úr þessum kvört- unum. Hins vegar er talað um að eft- ir að verksmiðjan brann fyrir um 10 árum hafi ástandið ekki verið í eins góðu lagi og áður.“ Valdimar sagðist ekki geta sagt til um hvort verksmiðjan á Akureyri væri betur eða verr búin mengunar- varnarbúnaði en aðrar sambærilegar verksmiðjur í landinu í dag. „Hér hefur að sumu leyti verið unnið mjög vel. Löndunarbúnaður er góður, þannig að það er hægt að hreinsa vel úr skipunum og eins er þró fyrir frá- rennsli frá verksmiðjunni góð. Þá hefur ýmislegt verið reynt varðandi mengunarmál, m.a. settur upp olíu- Morgunblaðið/Kristján Bflvelta í Kaupvangsstræti Sluppu ómeiddar en bfllinn er ónýtur TVÆR ungar stúlkur sluppu ómeiddar úr bílveltu í Kaupvangs- stræti á Akureyri í gærdag, en jeppi sem önnur þeirra ók skemmdist mik- ið og er jafnvel ónýtur. Jeppanum var ekið niður Kaup- vangsstræti, Gilið sem svo er nefnt, en í beygju sem þar er ofariega missti ökumaður stjórn á bílnum. Að sögn varðstjóra í lögreglunni má rekja óhappið til hálku á götunni og reynsluleysis bílstjóra, sem fékk öku- leyfi á síðasta ári. Missti ökumaður framhjól upp í ruðning við götuna með þeim afleiðingum að jeppinn valt. Þykir mildi að ekki fór verr, en bíllinn er nánast ónýtur eftir óhapp- ið. Tafir urðu á umferð um Gilið, en því varð að loka um tíma vegna þessa. ketill til að brenna útloftun, auk þess sem ýmislegt annað er til skoðunar. Þó finnst okkur að þessi ketill sem settur var upp hafi ekki skilað þeim árangri sem við vonuðumst eftir.“ Áður ótímabundið starfsleyfi Krossanesverksmiðjan hefur lengst af verið í eigu Akureyrarbæj- ar að stærstum hluta en í desember 1995 var 80% hlutur bæjarins seldur á 150 milljónir króna. Jafnframt var kaupendum gert að aflétta bæjará- byrgðum sem hvíldu á fyrirtækinu upp á hátt í 300 milljónir króna. Sam- kvæmt því sem Morgunblaðið kemst næst var verksmiðjan með ótíma- bundið starfsleyfi á þeim tíma sem hún var í eigu bæjarins. Eftir að nýir eigendur tóku við, var þeim gert skylt að sækja um starfsleyfi vegna breytinga á eignaraðild. Frá þeim tíma hefur verksmiðjan fengið starfs- leyfi til eins árs í senn og beiðni um stækkun verið hafnað. Þórarinn Kristjánsson, fram- kvæmdastjóri Gúmmívinnslunnar, og Jóhann Pétur Andersen, fram- kvæmdastjóri Krossaness, fóru fyrir hópi fjárfesta við kaup á hlut bæjar- ins. AIls tóku um 40 aðilar þátt í kaupunum, þar á meðal Isfélag Vest- mannaeyja, sem á um 40% hlut í verksmiðjunni í dag. Reksturinn hefur tekið miklum stakkaskiptum nú í seinni tíð. Eins og komið hefur fram hefur rekstur- inn gengið mjög vel frá því nýir eig- endur tóku við og hlutabréf í fyrir- tækinu margfaldast í verði. Krossanesverksmiðjan varð eldi að bráð að morgni gamlársdags árið 1989 og nam tjónið mörg hundruð milljónum króna. Þetta var jafnframt mesti bruni á Akureyri í 20 ár en verksmiðjan, vélar og tæki voru tryggð fyrir um 900 milljónir króna. Kærunefnd jafnréttismála Akureyrar- bæ stefnt KÆRUNEFND jafnréttismála hefur stefnt Akureyrarbæ fyrir hönd Ragnhildar Vigfúsdóttur, fyrrverandi jafnréttis- og fræðslu- fulltrúa bæjarins. Kæran er fram komin þar sem bæjaryfirvöld höfn- uðu sl. sumar kröfu Ragnhildar um samning á grundvelli úrskurðar Kærunefndar. Forsagan er sú að Ragnhildur lagði fyrir Kærunefnd jafnréttis- mála kæru á hendur Akureyrarbæ á þeim forsendum að laun hennar væru lægri en annar stjórnandi hjá bænum fékk en störfín væru sam- bærileg. I kjölfar úrskurðar Kæru- nefndar um mitt síðasta ár, sem var Ragnhildi í hag, fór hún fram á bætur. Bærinn vildi ekki una þeim úrskurði og hafnaði samningsum- leitunum Ragnhildar. Næsta skref hennar var því að sækja málið fyrir dómstólum og það er Kærunefnd jafnréttismála nú að gera fyrir hennar hönd. Málið var þingfest í Héraðsdómi Norður- lands eystra í gær en Akureyrarbæ svo gefínn kostur á að skila inn greinargerð um málið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.