Morgunblaðið - 29.01.1999, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 29.01.1999, Blaðsíða 26
26 FÖSTUDAGUR 29. JANÚAR 1999 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Irska ríkisstjórnin hélt velli í þingumræðu um Flynn-hneykslið Hefur skaðað samstarf stj órnarflokkanna Viagra hættulegt frjósömum körlum? Lundúnum. Reuters. MISNOTKUN getuleysis- lyfsins Viagra í því skyni að auka kynorku karlmanna, sem ekki þjást af getuleysi fyrir, getur orsakað varanlegt getuleysi. Þetta fullyrðir brezkur læknir í grein sem birtist í gær. Roger Kirby, sem er þvag- færasérfræðingur við St. Ge- orges-sjúkrahúsið í Lundún- um, sagði „bláu undrapilluna“ sem hefur endurlífgað kynlíf milljóna manna, geta valdið viðvarandi og sársaukafullri holdreisn á karlmönnum, sem ekki þjáðust fyrir af getu- leysi. Kirby segir þetta geta valdið óbætanlegum skaða á viðkvæmum vöðvavefjum. „I fyrsta lagi liggja ekki fyrir neinar staðfestar upp- lýsingar um að sildenafil [Vi- agra] bæti að neinu leyti heil- brigt holdris né opni nýjar víddir í upplifun fullnæging- ar,“ skrifar Kirby í brezka læknavísindaritið Student BMJ. Misnotkun orsakar truflun í starfsemi kynfæra Misnotkun lyfsins geti enn- fremur orsakað sjúklega truflun í starfsemi kynfæra karlmannsins, sem lýsir sér í því að limurinn er alltaf meira eða minna stífur. „Sildenafil hefur lítið að bjóða eðlilega frjósömum karlmönnum og þeir sem nota það taka áhættu," segir Kir- by. Tekist á í Alsír SAMTOK ættingja fórnarlamba vargaldarinnar í Alsír efndu í gær til ljöldagöngu í Algeirs- borg til minningar um látna ástvini. Kom til nokkurra átaka fyrir framan þjóðþing landsins þegar göngumenn reyndu að brjóta sér leið í gegnum varnar- múra lögreglunnar í því skyni að krefja þingmenn um aðgerð- ir til að binda enda á ódæðis- verk í landinu. RÍKISSTJÓRN Berties Aherns, leiðtoga Fianna Fáil og forsætis- ráðherra Irlands, hélt velli á líf- legum þingfundi í fyrradag þegar írska þingið kom saman að nýju eftir jólafrí. Hafði fyrirfram jafn- vel verið búist við því að stjórnar- andstaðan bæri fram vantrausts- tillögu á stjórnina vegna ásakana Toms Gilmartins, umsvifamikils byggingaverktaka, um að Ahern hefði verið fullkunnugt um að Pa- draig Flynn, fulltiúi Irlands í framkvæmdastjórn Evrópusam- bandsins og fyrrverandi gjaldkeri Fianna Fáil, hefði stungið fimmtíu þúsund punda fjárframlagi Gilmartins til flokksins í eigin vasa. Flynn-hneykslið, og ekki síst hugsanleg aðild Aherns að yfir- hylmingu þess, þykir hins vegar mjög hafa veikt stjórnina og vildi Mary Harney, leiðtogi Fram- sækna demókrataflokksins (PD) sem situr í stjórn með Fianna Fáil, ekkert segja í gær um fram- hald stjórnarsamstarfsins. Viður- kenndu fulltrúar þingmeirihlut- ans í fyrsta sinn í fyrradag að svo gæti farið að boðað yrði til kosn- inga. Segja fréttaskýrendur dag- blaðsins The Irish Times að e.t.v. hafi þetta riðið baggamuninn. Stjómarandstaðan, með þá John Bruton, leiðtoga Fine Gael, og Ru- airi Quinn, leiðtogi Verkamanna- flokksins, í fararbroddi, hafi allt í einu áttað sig á að kosningar gætu verið á næsta leiti en það kæri þeir sig alls ekki um að svo stöddu og því hafi þeir gert jafn harða hríð að Ahern á þingfundinum og búast hefði mátt við. Segir blaðið að hvorki Bruton né Quinn vilji ganga til kosninga nú. Þeir vilji fyrst ná góðum ár- angri í Evrópuþingkosningunum í júní og jafnframt að niðurstöður sérstakrar rannsóknarnefndar, sem sett var á stofn til að rann- saka spillingu í írskum stjórnmál- um, verði orðnar ljósar því þær muni mjög skaða Fianna Fáil, sem um áratugaskeið hefur verið stærsti flokkurinn á írlandi og oft- ar en ekki farið með völdin. Morðið á IRA-uppljóstraranum Eamon Collins vekur athygli á Bretlandseyjum Margir sagðir hafa viljað hann feigan TALIÐ var líklegt í gær að lýðveldis- sinnar hefðu staðið á bak við morðið á Eamon Collins, þekktum IRA-upp- ljóstrara og höfundi bókar um starfsemi IRA, en lík hans fannst illa útleikið á fá- fömum vegi í bænum Newry á Norður-ír- landi snemma í fyrradag. Hver nákvæm- lega á sök á dauða Collins er óljóst en þar era margir nefndir til sögunnar enda ljóst að margir töldu sig eiga Collins skuld að gjalda. Lík Collins fannst í morgunsárið í fyrra- dag og var með mikla höfuðáverka þannig að í fyrstu var talið að hann hefði orðið fyr- ir bíl, sem svo hefði horfið af vettvangi. Ollu áverkarnir því einnig að ekki tókst að bera kennsl á líkið fyrr en liðið var á daginn. Þegar Ijóst var að hér var um að ræða Eamon Collins - einn af allra þekktustu uppljóstruram úr röðum IRA - vöknuðu strax grunsemdir um að um morð væri að ræða og fékkst það staðfest við krufningu en þar kom í ljós að fjöldi stungusára var á líkinu, auk annarra áverka. Sérfræðingar sögðu í gær að af ásig- komulagi líksins mætti ráða að um „óopin- bera“ aftöku hefði verið að ræða, þ.e. að einhver hatursmanna Collins hefði myrt hann af persónulegum ástæðum. Á hinn bóginn gæti líka verið að þessi háttur hefði verið hafður á til að sjá til þess að ekki væri hægt að rekja morðið til neinna samtaka, en á það er t.a.m. bent að þegar IRA fyrir- skipar aftökur séu menn oftast nær skotnir til þana. Nefndi fréttaskýrandi The Irish Times í gær nokkra þekkta einstaklinga úr forystu IRA (þó ekki á nafn) sem sérstaka ástæðu höfðu til að vilja Collins feigan. Mun einn þeirra vera sá hinn sami og Andrew Hunt- er, þingmaður Ihaldsflokksins, hugleiddi í síðustu viku að nafngreina í skjóli þinghelgi sinnar sem höfuðpaur hópsins sem stóð fyr- ir sprengjutilræðinu í Omagh á síðasta ári þar sem 29 manns fórast. Ritaði bók um feril sinn í IRA Collins gekk til liðs við IRA árið 1979 og varð fljótt mikilvægur hlekkur í herferð samtakanna í Newry og nágrenni. Taldist Collins sjálfum til að fimmtán manns hefðu týnt lífinu af hans völdum. Hann tók að vísu aldrei sjálfur í gikkinn heldur safnaði upp- lýsingum um væntanleg fórnarlömb og skipulagði morðin. Lýsir hann í bók sinni Killing Rage af hve miklu miskunnarleysi þau vora síðan framkvæmd. Collins neitaði því síðast í liðinni viku að í bígerð væri að kvikmynda bókina en í henni rekur Collins feril sinn í IRA, hvernig hann vann sig upp í samtökunum og hversu mjög hann tráði á málstaðinn. Stóð hann á því fastar en fótunum að írland yrði aldrei frjálst fyrr en Bretar væru á bak og burt. Og lyrst þeir ekki vildu fara af sjálfsdáðum varð að hrekja þá á brott, grafa undan stjórn þeirra, myrða þá og bandamenn þeirra ef þörf krafði. Efasemdir um að ódæðisverkin ættu rétt á sér tóku þó smám saman að gera vart við sig og þegar Collins var handtekinn árið 1985 brotnaði hann saman við yfirheyrslur lögreglunnar, játaði á sig óteljandi glæpi og Reuters Eamon Collins nefndi um leið nöfn ýmissa samstarfs- manna sinna. Voru fjöratíu þeirra hand- teknir í kjölfarið. Sjálfur var Collins ákærð- ur fyrir aðild að fimm morðum en við rétt- arhöldin dró hann játningu sína til baka, enda hafði þá jafnvel eiginkona hans snúið við honum bakinu fyrir svikin, og úrskurð- aði dómari síðan að játningin hefði verið þvinguð fram með ólögmætum hætti. Sl- uppu fyrrverandi félagar hans með skrekk- inn. Ofyrirgefanleg svik IRA-menn íyrirgefa hins vegar ekki svik svo auðveldlega og það eina sem kom í veg fyrir að IRA lyrirskipaði aftöku hans var sú staðreynd að hann hafði séð að sér. Coll- ins var engu síður skipað að hafa sig á brott frá Newry eða verða drepinn ella. Seinna ákvað hann að virða þessa skipun að vettugi og bætti síðan um betur og ritaði bók um feril sinn í IRA sem ekki var liðs- mönnum hersins mjög að skapi. Gerðist hann einnig talsmaður friðarsamkomulags á N-írlandi. Sem vænta má var sambúð Collins með fyrrverandi félögum sínum, sem hann hafði svikið í hendur lögreglunnar, allt annað en auðveld. Varð hann ítrekað fyrir aðkasti og í gær mátti sjá nýlegt veggjakrot í hverfum kaþólskra í Newiy, „Eamon Collins er svik- ari“, og „Collins - þú deýrð árið 1999“. En Collins virtist ákveðinn í að flýja ekki fortíð sína og gjörðir heldur mæta örlögum sínum af æðraleysi. Hann yrði ekki neyddur í út- legð, þeir yrðu þá bara að drepa hann. Collins særðist illa þegar gei’ð var til- raun til að keyra hann niður árið 1997 og í fyrra var hús sem hann átti í Armagh- sýslu brennt til grunna. „Þeim tókst loks- ins ætlunarverk sitt,“ hafði The Irish News eftir Bernadette Collins, eiginkonu uppljóstrarans, í gær, mannsins sem drýgt hafði versta glæp sem meðlimir IRA geta hugsað sér.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.