Morgunblaðið - 29.01.1999, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 29.01.1999, Blaðsíða 42
*42 FÖSTUDAGUR 29. JANÚAR 1999 MORGUNBLAÐIÐ Prófkjör og lýðræði Um málflutning samfylkingarsinna og sjálfstœbismanna, prófkjör og flokkshugsun. A N: A ia jt\s NNAÐHVORT er almenningur í þessu landi hættur að kippa sér upp við ósamkvæmni margra íslenskra stjómmála- manna eða málflutningur þeirra rennur einfaldlega saman við annað áreiti og hverfur út í et- erinn eins og annar hávaði í nú- tímanum. Sá skarpi greinar- munur sem gera ber á orðum og framgöngu í íslenskum stjóm- málum er til marks um að að- hald skortir. Sá skortur kemur aftur einkum til sökum vaxandi áhugaleysis almennings, „geng- issigs“ stjómmálanna, fmm- stæðrar ættbálkahyggju og gagnrýnislausrar hollustu við flokka og fylkingar. Á morgun, laugardag, fer UIHHORF fram PrófkÍör VIÐHQnr samfylkingar- Eftir Ásgeir innar svo- Sverrisson nefndu í Reykjavík. Vafalaust fagna margir því að erfiðum fæðingarhríðum sé nú lokið. AJmennt má ætla að þetta samstarf vinstrimanna muni teljast framfaraspor í íslenskum stjómmálum þegar fram líða stundir. Hins vegar er ástæða til að staldra við málflutning þeirra sem að samfylkingunni standa og fyrirkomulag það á prófkjör- inu sem sátt hefur náðst um. Talsmenn samfylkingarinnar hafa margítrekað lýst yfir því að vinstri flokkarnir þrír muni bjóða fram saman í næstu þing- kosningum að „kröfu fólksins." Stofnanir þær er stýri flokkun- um þremur hafi staðið frammi fyrir þessum þrýstingi sem hafi verið orðinn svo mikill að eitt- hvað hafi orðið undan að láta. Hér sé enda um „hreyfingu fólksins" að ræða, sem stefnt sé til höfuðs hagsmunavörslu stjómarflokkanna tveggja og tilhneigingum þeirra til grófrar valdníðslu. Framkvæmd prókjörs sam- fylkingarinnar í Reykjavík er hins vegar í engu samræmi við málflutning þennan. Hugsunin að baki þess er ekki sú að leiða fram raunverulegan „vilja fólks- ins“ heldur að tryggja hagsmuni flokka þeirra, sem að fylking- unni nýju standa og einstakra ráðamanna þeirra. Þetta er gert með „hólfum" og girðingum, básum og görðum til að tryggja að enginn sogist ofan í sjálfan fjóshauginn og hverfi þar sjón- um fyrir tilstilli almannaviljans. Hafi krafa „fólksins" verið sú að ný hreyfmg vinstrimanna yrði mynduð er morgunljóst að hún hefur verið hundsuð í Reykjavík. Kjósendur í próf- kjörinu geta ekki valið það fólk til forustu, sem þeir treysta best, heldur mega þeir einungis kjósa í einu „flokkshólfi" og raða þar upp frambjóðendum. Með öðrum orðum er hugsunin sú að menn kjósi eftir flokkslín- unum gömlu, sem talsmenn vinstri flokkanna þriggja hafa haldið fram að séu að hverfa með tilkomu fylkingarinnar nýju. Vitanlega stenst þetta ekki skoðun. Þetta fyrirkomulag er aukin- heldur í meira lagi ólýðræðis- legt og í engu samræmi við yfir- lýsingar helstu forustumanna framboðsins nýja um nauðsyn valddreifingar í stað hinnar nið- umjörvuðu, flokksbundnu hugs- unar, sem einkennir svo mjög íslensk stjórnmál að átakanlegt hlýtur að teljast. Sökum „hólfa“-fyrirkomulagsins geta innan við tíu atkvæði í sumum tilfellum tryggt öruggt þing- sæti. Þetta lýsir forvitnilegum skilningi á lýðræðishugtakinu. Loks er þeim sem ákveða að taka þátt í prófkjörinu með öllu hulið um hvað verið er að kjósa eða á hvaða forsendum taka ber afstöðu til frambjóðenda. Þetta kemur til af því að stefnuskrá samfylkingarinnar nýju liggur ekki fyrir. Birt var að vísu svo- nefnd „verkefnaskrá", sem vinstrimenn kepptust síðan við að afneita þegar í ljós kom að svo hroðvirknislega hafði verið staðið að gerð hennar að furðu sætti. Engu að síður geymir „verkefnaskrá" þessi margar nútímalegar hugmyndir, sem nauðsynlegt er að fái vægi í ís- lenskum stjórnmálum. Má þar m.a. nefna hugmyndir um for- gangsröðun verkefna, lög um fjárreiður stjórnmálaflokka, til- lögur um aukið eftirlit Alþingis með framkvæmdavaldinu og kröfu um að mótuð verði stefna um bætt siðferði í stjórnmálum og stjórnsýslu Við blasir að þar sem stefnu- skráin liggur enn ekki fyrir geta þeir sem þátt taka í prófkjörinu ekki tekið afstöðu til þeirra ein- staklinga, sem þar bjóða sig fram á grundvelli þess að til- teknum frambjóðendum sé best treystandi til að hrinda boðuð- um stefnumálum í framkvæmd. Staðan er því hin sama og áður í íslenskum stjórnmálum; persón- ur vega þyngra en málefni. Hlýtur það að teljast heldur dapurleg umsögn um þetta nýja stjórnmálaafl. Talsmenn samfylkingarinnar eni hins vegar ekki einir um að hafa iðkað undarlegan og mót- sagnakenndan málflutning á undanliðnum vikum og mánuð- um. Þannig hafa sjálfstæðisleið- togar í Reykjavík ákveðið að með öllu sé óþarft að fram fari prófkjör í höfuðstaðnum þar sem almenn ánægja ríki með frammistöðu fulltrúa flokksins, sem að auki hyggi allir á fram- boð í næstu þingkosningum. Menn kann að greina á um ágæti prófkjörs en þessi rök- stuðningur er ekki boðlegur. Sömu rökum var haldið fram í kommúnistaríkjum Austur-Evr- ópu en þar var lýðræðið með öllu óþarft því allt var jafnan í lukkunnar velstandi og flokks- forustunni best treystandi til að tryggja að það ástand breyttist ekki. „Flokknum" varjafnan fullkunnugt um vilja fólksins enda „fulltrúaráðin" mýmörg. Ef rétt er munað gerðu leið- togar og fylgismenn Sjálfstæð- isflokksins forðum ýmsar at- hugasemdir við þetta þjóðskipu- lag. Eitt hafa því samfylkingar- sinnar og sjálfstæðismenn í Reykjavík náð að sameinast urmþeir hafa misboðið dóm- greind almennings. ______UMRÆÐAN/PRÓFKJÖR__ Ungt fólk getur haft áhrif í stjórnmálum! MÖGULEIKAR ungs fólks til að hafa áhrif innan hefðbund- inna stjórnmálaflokka eru takmarkaðir. Gleggstu dæmin um þetta eru nýlegar upp- stillingar og prófkjör Sjálfstæðis- og Fram- sóknarflokks. Einkum er sláandi að verða vitni að því hve ungar konur eiga víða erfitt uppdráttar í stjórnmál- um, líkt og sannast með rýrum hlut þeirra á framboðslistum í prófkjöri Samfylking- arinnar í Reykjavík. Erjur innan gömlu stjórnmálaflokk- anna hafa skilið eftir sig djúp spor og gert margt ungt og efnilegt fé- lagshyggjufólk fráhverft stjóm- málastarfi. Kvennalistinn hefur ekki farið varhluta af innri sviptingum. Kvamast hefur úr samtökunum vegna ágreinings um leiðir í kvennabaráttunni, t.d. hvort yfir- leitt eigi að taka þátt í baráttu um sæti í sveitarstjómum og á Alþingi og hvort réttlætanlegt sé að standa að þeirri samfylkingu sem nú er orðin að vemleika. Kvennalistinn hefur þurft að færa fómir og sjá á bak mörgum góðum konum sem lagt höfðu baráttu hans lið um margi-a ára skeið. A-flokkarnir svokölluðu hafa lent í sýnu verri hremmingum en Kvennalistinn og hafa jafnvel klofn- að hvað eftir annað. í sumum tilvik- um virðist sem ástæður klofnings séu ekki ágreiningur um málefni heldur frekar persónuleg sam- búðarvandamál innan flokkanna. Því er ekki að neita að sum þeirra vandamála sem upp komu í aðdraganda Samfylkingarinnar virtust eiga rætur sínar að rekja til gamalla persónulegra væringa í þessum flokkum og á milli þeirra. Vonandi verða sárindi og per- sónuerjur úr fortíðinni ekki til frekari vand- ræða í samstarfi í Sam- fylkingunni í framtíð- inni. Hvað kosti eiga ungir samfylk- ingasinnar í þessari stöðu? Kvennalistinn og unga fólkið Kvennalistakonur ganga til próf- kjörs Samfylkingarinnar með opn- um huga og vilja kalla sem flest ungt fólk til starfa. Við viljum opna ungu fólki leið til að búa til og taka þátt í starfsemi nýs stjórnmálaafls á eigin forsendum, án þess að þurfa að híma í fortíðarskugga. í vöfflu- kaffi Kvennalistans á Sóloni Is- landusi sl. laugardag mátti greini- lega merkja að ungt fólk vill hlýða þessu kalli. Frambjóðendur listans voru allir á staðnum og kynntu áheyrendum stefnumál sín. Fullt var út úr dyrum allan tímann og sérstaklega ánægjulegt að sjá hversu stór hluti gestanna var ungt fólk. Frambjóðendur Kvennalistans eru margir ungir að árum og það kann unga fólkið greinilega að Mikill fengur er í því fyrir Kvennalistann og íslenska stjórnmálaumræðu, segir Hulda --7------------------ Olafsdóttir, að ungar konur skuli gefa kost á sér í prófkjöri Samfylkingarinnar. meta. Mikill fengur er í því fyrir Kvennalistann og íslenska stjórn- málaumræðu að ungar konur á borð við Ásgerði Jóhannesdóttur, sem er þrítug, og Fríðu Rós Valdimars- dóttur, sem er 21 árs, skuli gefa kost á sér í prófkjöri Samfylkingar- innar. Þær, og öflugur hópur ungra baráttukvenna sem kalla sig Bríet- urnar og eru í góðum tengslum við tónlistar- og menningarlíf ungs fólks í Reykjavík, hafa nú fundið sér starfsvettvang innan Kvennalistans. Þessar ungu konur vilja leggja sitt af mörkum til að byggja upp öfluga samfylkingu kvenfrelsis, jöfnuðar og félagshyggju. Eg skora á ungt fólk að taka þátt í prófkjöri Samfylkingarinnar á laugardaginn kemur og styðja við bakið á ungum konum með því að setja X við Kvennalistann. Höfundur tekur þátt í prófkjöri Samfylkingarinnar og sækist eftir 1. eða 2. sæti Kvennalistans. Hulda Ólafsdóttir Jafnrétti og stjórnarskrá SJÁLFSTÆÐIS- YFIRLÝSING Banda- ríkjanna hefst á orðun- um: „Við teljum það sannleika, yfir allan vafa hafinn, að allir menn eru fæddir jafn- ir.“ Yítrlýsingin skýrir síðan jafnan rétt allra til lífs, frelsis og ham- ingjuleitar og að menn kjósi sér stjórnvöld til að framfylgja þessum sjálfsögðu réttindum til velferðar. Ef stjórn- völd þjóni ekki þessu markmiði þá eigi fólkið rétt á að skipta um stjóm. Stjórnarskrá okkar tekur ekki með jafn afdrátt- arlausum hætti á jafnrétti. Þess- vegna líðst stjómvöldum svo dæmi sé tekið að brjóta mannréttindi á Reykvíkingum þannig að nær helmingur þjóðarinnar býr við skertan atkvæðisrétt. Enn í dag er meirihluti þingmanna fulltrúar fer- metra en ekki fólks. Þetta við- gengst þótt það stríði gegn hags- munum okkar, vegna þeirrar sam- kenndar og samúðar sem er ein- kennandi fyrir menningu okkar. Stjórnarskrárbrot, Á nokkurra vikna tíma hefur ríkisstjórn íslands þrívegis orðið uppvís að því að setja lög í krafti þingræðis, sem brjóta í bága við stjórnarskrá. Þrívegis á skömmum tíma brýtur ríkisstjórnin stj órnarskrárvarinn rétt landsmanna með lögum. Fyrst í kvóta- máhnu, síðan í Land- mælingamálinu og nú í máli öryrkja. Líkleg- asta atburðarás nú er sú að ríkisstjórnin láti þingið fikta enn einu sinni í lögunum til að réttlæta enn og aftur virðingarleysi sitt fyrir lýðræðinu, stjórnarskránni og þjóðinni. Aldrei í sögu lýðveldisins hefur nokkur ríkisstjórn varið mis- rétti eins hatrammlega og hafnað jafnrétti með jafn afdráttarlausum hætti. Það er orðið brýnt að dregið verði úr valdi ríkisstjómar yfir þingi og að samskiptum löggjafar- valds og framkvæmdavalds verði skipað þannig að þingið hafi raun- verulegt eftirlitsvald gagnvart rík- Stefán Benediktsson isstjórn. Það er réttlætismál sem snertir frelsi einstaklinga og vel- ferð. Fyrsta skrefið er að ráðherr- ar gegni ekki þingmennsku, því ráðherrar eiga ekki að hafa eftirlit með sjálfum sér. Þjóðarkakan og jafnréttið Það er svo sannarlega ekki vel- ferðarríki þar sem fólk þarf að kæra ríkisvaldið til að ná rétti sín- um til þátttöku í menningar- og mannlífi. Það er sannarlega ekki velferðarríki þar sem margskatt- lagðir lífeyrisþegar halda eftir 2 krónum af 10 við tekjuöflun um- fram lífeyri. Hvemig dettur mönn- um í hug að skerða 12.000 krónu vasapeninga háaldraðs fólks vegna Þrívegis á skömmum _______tíma brýtur___________ ríkisstjórnin, segir Stefán Benediktsson, stj órnarskrárvarinn rétt landsmanna með lögum tekna maka? Munum að við erum ein tekjuhæsta þjóð Vesturheims. Kakan er stór. Þjóðartekjur lækka ekki þótt við hækkum útgjöld til velferðar. Burt með skerðingarnar. Fjárfestum í heilbrigðu mannlífí og menntun. Tryggjum jafna hlutdeild í auðlindum allra landsmanna. Kvótaverslun í dag sannar að sú fullyrðing stenst ekki að uppboð á veiðiheimildum rústi útgerð. Kvóta- verslunin sannar líka að nógir pen- ingar era til í þessu landi til að ör- yrkjar , aldraðir og barnafólk nái rétti sínum og geti hfað við fulla reisn. Allir eiga jafnan rétt til þátt- töku í menningar- og mannlífi. Velj- um velferð og samstöðu. Tökum þátt í prófkjöri Samfylkingarinnar á laugardaginn, þann 30. janúar. Höfundur er arkitekt, þjóðgarðs- vörður og þátttakandi í prófkjöri Samfylkingarinnar i Reykjavík.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.