Morgunblaðið - 24.08.1999, Page 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 24. ÁGÚST 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Finnur Ingólfsson viðskiptaráðherra leggur áherslu á dreifða eignaraðild
Vill fresta sölu á 51%
hlut rfkisins í FBA
FINNUR Ingólfsson, iðnaðar- og viðskiptaráð-
herra, kveðst telja ljóst að eigi að selja meirihluta
ríkisins í Fjárfestingarbanka atvinnulífsins til
eins aðila, sé það á skjön við það sem fram kom í
útboðslýsingu vegna sölu fýrri hluta ríkisins í
FBA. Hann kveðst þeirrar skoðunar að doka eigi
við í sambandi við sölu á hlut ríkisins í bankanum.
“í útboðslýsingunni er gert ráð fyrir dreifðri
sölu til að tryggja dreifða eignaraðild og sjálf-
stæði bankans á þessum markaði og halda
þannig uppi samkeppni," segir Finnur. „Þó er
rétt að halda því til haga að í útboðslýsingunni
kom einnig fram að við gerðum ráð fyiir að meta
árangurinn af þeirri dreifðu sölu á 49% áður en
við réðumst í að selja hin 51%. Ég tel að við séum
talsvert bundnir af þeirri yfírlýsingu sem við gáf-
um á sínum tíma um dreifða eignasölu. Ég byggi
þá skoðun mína á að hvaða fjárfestir sem tók
ákvörðun um að kaupa hlut í bankanum í upp-
hafi, hefur kannski keypt þann hlut í trausti þess
að ríkisvaldið myndi hafa sambærilegt fyrir-
komulag á sölu afgangsins og þá var lýst,“ segir
Finnur.
Skynsamlegt að kæla málið
Hann kveður ekki vera djúpstæðan ágreining
innan ríkisstjórnar um þetta mál og of mikið sé
gert úr slíkum sjónarmiðum. Hins vegar sé ljóst
að mikil umræða fari fram um FBA, langt út fyr-
ir ríkisstjóm.
„Það er samstaða innan ríkisstjórnarinnar um
þessi söluáfonn, þ.e. að selja fyrirtækið og einnig
hlut okkar í Búnaðarbanka og Landsbanka, en
við eigum eftir að ganga frá því með hvaða hætti
nákvæmlega við stöndum að þessari sölu. Um-
ræðan núna, og þá aðallega fyrir utan ríkisstjórn-
ina að mér finnst, gerir það að verkum að mér
finnst skynsamlegt af okkar hálfu að kæla málið.
Við mátum það svo í vor, þegar við ætluðum að
selja 51% í FBA, að þá væri komið svo nálægt
kosningum að salan gæti valdið einhverjum póli-
tískum deilum sem væru ekki hollar fyrir bank-
ann sem slíkan. Við þurfum að velta því fyrir
okkur fyrst og fremst hvemig við getum varð-
veitt þau verðmæti sem við eigum í þessu fyrir-
tæki og því ekki gott að vera með sölu í miklum
pólitískum hávaða, því það gæti orðið til þess að
verðmætin minnkuðu.
Það sem hefur tekist núna á undanfömum
tveimur ámm er að gera tugmilljarða króna
verðmæti úr fjárfestingasjóðum atvinnulífsins,
sem menn vildu á sínum tíma setja inn í banka-
kerfið og héldu að þeir væm langbest komnir
þar. Við höfum margfaldað verðmæti okkar í
Landsbankanum og Búnaðarbankanum og eigum
nú að leita allra leiða til að hámarka þessi verð-
mæti og halda þeim. Þess vegna verða menn að
fara varlega í þessari umræðu og það er ekki gott
fyrir þessi fyrirtæki að þurfa að ganga í gegnum
miklar pólitískar deilur ríkisstjómar og stjómar-
andstöðu. Þess vegna segi ég að við skulum doka
aðeins við, hugsa okkar gang og hafa að leiðar-
ljósi að hámarka verðmætin, ná fram dreifðri
eignaraðild og skapa frið um fyrirtækin,“ segir
Finnur.
Ekki eðlismunur á fyrirtækjum
í eigu íslendinga
Iðnaðar- og viðskiptaráðherra kveðst leggja á
það áherslu að stefna ríkisstjómarinnar hafi ver-
ið að ná fram dreifðri eignaraðild og honum finn-
ist hreint ótrúlegt ef kaupin á hlutnum í FBA
setji þá stefnu í uppnám. „Það er enginn eðlis-
munur á hlut Scandinavian Holding í FBA, er-
lends fyrirtækis í eigu íslendinga, sem síðan var
seldur til annars erlends fyrirtækis í eigu Is-
lendinga. Nú er komið í ljós hverjir það em, þ.e.
að baki stendur stór hópur fjárfesta," segir
Finnur. „Við eigum að stefna áfram að dreifðri
eignaraðild en ég geri mér hins vegar grein fyrir
því að það em talsverð vandkvæði fólgin í að
setja dreifða eignaraðild í lög og er ekki tilbúinn
að standa að lagasetningu um slíkt,“ segir Finn-
ur.
Hann kveðst telja að fara eigi aðrar leiðir í því
sambandi, t.d. að styrkja fjármálaeftirlit, sam-
keppnisyfirvöld, ákvæði í hlutafjárlögum og
skattalögum sem snúa að þessum efnum og ná
þannig fram með markvissum hætti dreifðri
eignaraðild að FBA.
Forstjóri Kaupþings svarar ummælum
forsætisráðherra um kaup á bréfum í FBA
Ekkert gert á skjön við
eða almennt siðferði
lög
SIGURÐUR Einarsson, forstjóri
Kaupþings hf., vísar því á bug
að Kaupþing hafi gert nokkuð
sem sé á skjön við lög eða al-
mennt siðferði við kaup á hluta-
bréfum í Fjárfestingarbanka at-
vinnulífsins. Við upphaf þings
Sambands ungra sjálfstæðis-
manna sfðastliðinn föstudag
sagði Davíð Oddsson forsætis-
ráðherra að hann hefði efa-
semdir um að aðila eins og
Kaupþingi væri stætt á að nota
aðila sem það hefði fjárvörslu
fyrir til að kaupa bréfín og
grípa siðan tækifærið og selja
þau og hirða hagnaðinn. Velti
forsætisráðherra upp þeirri
spurningu hvort það væri lög-
legt en siðlaust.
Sigurður Einarsson sagði í
samtali við Morgunblaðið að við
kaup bréfanna í FBA hefði verið
unnið eftir aðferðafræði sem
ríkissjóður hefði valið.
„Fyrsta fyrirtækið sem var
selt með þessum hætti var Fjár-
festingarbanki atvinnulífsins, og
í því útboði tóku þátt nær allar
íjármálastofnanir í landinu með
sama hætti. Síðan var þessi að-
ferðafræði einnig notuð við sölu
á Búnaðarbanka íslands og
Landsbanka íslands og þar
gerðist nákvæmlega það sama.
Fjármálafyrirtækin keyptu og
söfnuðu bréfum, og þetta er að
mínu viti ein af ástæðum þess
að einkavæðingin tókst jafn vel
og hún gerði. Eg held að það sé
hægt að segja að það hafi eng-
inn vísvitandi reynt að eyði-
leggja einkavæðingaráform rík-
isstjórnarinnar,“ sagði Sigurð-
ur.
Hann sagði jafnframt að sér
þætti mjög miður að forsætis-
ráðherra skyldi velja að taka
eitt af íjármálafyrirtækjunum
út með þessum hætti.
Ríkið á nú 51% hlut í FBA, Orca S.A. tæp 30% en aðrir hluthafar, sem
eru fjölmargir, ráða yfir smærri hlut.
Stjórnarformaður
Orca S.A.
Kvíði ekki
samstarfí
við ríkið
EYJÓLFUR Sveinsson, stjórnar-
formaður Orca S.A., segist ekki
kvíða samstarfi við rfldð, eða
hvem þann sem ríkið kýs að selja
hlut sinn í bankanum, um rekstur
og áframhaldandi uppbyggingu
Fjárfestingarbanka atvinnulífsins.
Eyjólfur var spurður út í um-
mæli sem Davíð Oddsson forsæt-
isráðherra lét falla á þingi Sam-
bands ungra sjálfstæðismanna
um helgina. Þar sagði hann að ef
ekki tækist að tryggja sölu á 51%
hlut ríkisins í FBA í dreifðri
eignaraðild kæmi til greina að
selja hann í einu lagi.
„Að baki þeirra Ijögurra hlut-
hafahópa sem mynda Orca lágu
þau ein sjónarmið að hér væri
um mjög áhugaverða fjárfest-
ingu að ræða og trú á framtíð
þessa fyrirtækis. Það voru engin
önnur sjónarmið sem lágu að
baki. Við hlökkum til að vinna
með ríkinu, sem hluthafa í Fjár-
festingarbanka atvinnulífsins,
eða hveijum þeim öðmm sem
ríkið kann að selja.“
Eyjólfur var einnig spurður
hvort ekki fylgdi áhætta hluta-
bréfakaupum Orca í FBA þegar
ekki fengjust skýr svör frá ríkis-
stjórninni um hvernig yrði staðið
að frekari sölu á hlut ríkisins i
bankanum. Að sögn forsvars-
manna sparisjóðanna átti þessi
óvissa stærstan þátt í þeirri
ákvörðun þeirra að selja hluta-
bréfin í FBA.
„Fjárfestingahóparnir sem
mynda Orca hugsa þetta sem
langtfmafjárfestingu og því kvíði
ég því alls ekki að vinna málefn-
um FBA framgang í samstarfi við
ríkið sem meðeiganda okkar.“
Aðspurður sagði Eyjólfur að
eigendur Orca litu ekki á það
sem sitt hlutverk að svara því
hvenær ríkið ætti að selja hlut
sinn í FBA.
Fulltrúar verðbréfafyrirtækja um sölu á hlut ríkisins í FBA
Hærra verð myndi fást
fyrir ráðandi hlut
Mercedez Benz
3QOSL 24V
Til sölu Mercedez Benz 300SL 24V, árgerð 1991, ekinn 86
þús. km, sjálfsk., ABS, leðurinnrétting, hard top/soft top. Raf-
magn í sætun, rúðum, speglum, stýri og veltigrind. Þjófavörn,
rafstýrö spólvörn, cruise control, hiti ( sætum, tölvustýrð
miðstöð, fullkomið hljómkerfi. 18" Lorinzer álfelgur ásamt 16"
Benz álfelgum. Ný sumar- og vetrardekk og margt fleira.
Upplýsingar veittar í síma 896 6745.
„ALMENNT hefur reynslan sýnt að
þegar borin er saman dreifð sala á
föstu verði, annars vegar, og upp-
boðsfyrirkomulag, hins vegar, skilar
síðamefnda leiðin hærra verði fyrir
eignina," segir Þorsteinn Þorsteins-
son, framkvæmdastjóri Búnaðar-
bankans-verðbréfa. „I öðru lagi má
segja að yfirleitt fáist hærra verð á
markaði íyrir ráðandi hlut en fyrir
minni hluti. Þetta hefur meðal ann-
ars komið fram erlendis í tilvikum
þar sem bankar hafa yfirtekið aðra
banka. Þá hefur gjarnan verið greitt
hærra verð fyrir ráðandi hlut en sem
svarar verði á hlutabréfamarkaði al-
mennt fyrir ráðandi hlut í fjármála-
stofnunum."
Steinþór Pálsson, aðstoðarfram-
kvæmdastjóri Islandsbanka-F&M,
tekur undir það sjónarmið að hærra
verð muni fást verði bankinn seldur í
einu lagi. „Við teljum að það séu
ákveðin hagræn rök fyrir því að
hærra verð fengist fyrir hlut ríkisins
í FBA ef hann yrði seldur í einu lagi.
Þannig gæti einn aðili, sem hugsan-
lega hefði áhuga á að ná yfirráðum í
bankanum, náð þeim með skjótari og
einfaldari hætti en ef hann þyrfti að
kaupa af mörgum öðrum. Rétt er þó
að geta þess að hugsanleg lagasetn-
ing um hámarkseignaraðild að bönk-
um skapar óvissu í þessu sambandi.
Við teljum hins vegar að ríkið ætti
að horfa á heildarmyndina í sam-
bandi við sölu bankanna. Ríkisvaldið
vill vitanlega fá hámarksverð fyiúr
eignir sínar en við teljum ekki síður
mikilvægt að útkoman verði þjóð-
hagslega hagkvæm þannig að við-
skiptavinir bankanna muni njóta
þess í framtíðinni hvernig að málum
er staðið. Því væri farsælla að móta
breytingu á eignaraðild ríkisins á
öðrum bönkum á sama tíma,“ segir
Steinþór.
Áform um samruna
eru Iykilatriði
Gunnar Helgi Hálfdanarson, for-
stjóri Landsbréfa, telur að vænting-
ar um samruna FBA við aðra fjár-
málastofnun skipti miklu máli við
verðlagningu bréfanna í FBA.
„Ef líkur eru taldar minni á því en
áður að um samruna verði að ræða
við aðra stofnun munu fjárfestar
eiga erfitt með að réttlæta fyrir sér
að taka einhvern ávinning af hugsan-
legum samruna inn í verðlagningu
bréfanna. Því er eðlilegt að bréfin
lækki, eins og þau eru reyndar að
gera núna, þegar menn telja sig vera
að færast fjær því marki. Sameining-
aráform mundu hins vegar styrkja
það verð sem fengist fyrir bréfin því
að þá geta menn reiknað með ein-
hverjum ávinningi af hugsanlegri
sameiningu.
Forsætisráðherra hefur áréttað
það sjónarmið að ætlunin hafi verið
að bréfin yrðu í dreifðri eigu og að
þau hefðu ekki átt að komast í hend-
ur fárra aðila. Það þarf í sjálfu sér
ekki að þýða neina stefnubreytingu
þótt bankinn verði seldur í einum
hluta sem er eða verður í mjög
dreifðri eigu. Jafnframt er með því
verið að bjóða upp á sameiningar-
möguleika og þar með að styrkja
verð bréfanna. Þetta getur því alveg
farið saman. Að hann selji þetta ein-
um aðila, hámarki verðið og nái
dreifðri eignaraðild.
Verði bréfin hins vegar seld í
dreifðri sölu og gerðar einhverjar ráð-
stafanir sem klái-lega hindruðu sam-
einingu, þ.e. skýlaus ki'afa um dreifða
eignaraðild og framkvæmd sölu með
það í huga, gæti það haft áhrif til verð-
lækkunar,“ segir Gunnar Helgi.
--------------------
Fyrirlestur um
náttúruvernd
ROGER Crofts, framkvæmdastjóri
Scottish Natural Heritage heldur
fyrirlestur um reynslu Skota af nýt-
ingu náttúruauðlinda og verndun
náttúrunnar og hvernig sú reynsla
geti nýst á íslandi. Fyi-irlesturinn
verður haldinn á Hótel Borg í dag,
þriðjudag, klukkan 12 en Landvemd,
Landgræðsla ríkisins og Náttúru-
vernd ríkisins standa að honum.