Morgunblaðið - 24.12.2000, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 24.12.2000, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. DESEMBER 2000 B 9 Af ein- skærri forvitni AUGNLÆKNIRINN kom í héraðið á hverju sumri með glerin sín í kassa og spjald með misstórum bókstöfum á. Magurt telpukorn á ellefta ári var sent til hans, hún sá ekki lengur á grænu krítartöfluna. Nokkrum vikum síðar fékk hún pakka með póstinum. í honum voru fyrstu gleraugun, bleik og falleg. Eftir þetta fékk hún ný gleraugu á hverju sumri, svolítið sterkari en þau sem hún fékk árið áður. Alltaf varð hún jafnánægð. Henni var sama um rispur og móðu og hún kippti sér lítið upp við það þótt armarnir væru skakkir og skældir. Henni var líka sama um uppnefnin. Hverju skiptu þau þegar valið stóð um að sjá skýrt eða í þoku. Það var að vísu dýrt spaug þegar gleraugun brotnuðu í þrígang árið sem hún fermdist. Eftir það fór hún sér hægt. fþróttir og ærsl heyrðu fortíðinni til. Þykkar bækur urðu að ómótstæðilegum freistingum. Gleraugun urðu með tímanum bæði skjól og vörn. Aldrei hvarflaði að henni að til væri líf án gler- augna. Hún fór meira að segja í sund og steypibað með þau á nef- inu. Fáir fengu að sjá hana án þeirra og hún sneri sér undan til að pússa glerin. Tæpum þijátíu árum og mörgum gleraugum síðar bárust fréttir af sársaukalitlum augnaðgerðum í Ármúlanum í Reykjavík. Það var eitthvað fyrir aðra, hún ætlaði ekki að reisa sér skýjaborgir um gler- augnalaust líf. Af rælni var samt spurt á árlegu stefnumóti við augn- lækni með gler í kassa hvort þetta væri eitthvað sem gefa ætti gaum. Því ekki það, sagði læknirinn. Eitt leiðir af öðru. Án þess að málið væri hugsað til hlítar var ákveðið að láta til skarar skriða. Forvitnin tók yfir höndina. Það er satt að aðgerðin er sárs- aukalaus. Tveir dropar af stað- deyfilyfi sjá til þess. Á meðan lækn- irinn skar horfði hún róleg í fallegt, rautt ljós. Það sveið ofurlitið í augun þegar deyfingin var að fara. Það var ekki verra en í sundi. En í marga daga saknaði hún gleraugnanna sárt og fannst hún nakin og berskjölduð. Hún varð aftur 10 ára gömul. Hálfum mánuði síðar var hún far- in að þekkja konuna í speglinum. Hún prófaði gömlu gleraugun sín og fannst þau í fyrsta skipti á æv- inni óþægileg. Þau voru eins og heftiplástur yfir nefið þvert. Morgunblaðlð/Ásdís ,Ég gat lesið á hvert einasta skilti í versluninni. ■ .J Nærsýni, fjarsýni og sjónskekkja Um 25-30% Vesturlandabúa eru háðir því að nota gleraugu til að geta séð skýrt. Þrennt ákvarðar sjónlag, sem sé hversu kröpp hornhimnan er, ljósbrot auga- steinsins og lengd augans. I aug- um nærsýnna, þ.e.a.s. þeirra sem sjá illa frá sér, er myndin skörpust fyrir framan sjónhimnuna. Fólk verður yfirleitt nærsýnt á tánings- árum. Augu fjarsýnna eru þannig að myndin er skörpust fyrir aftan sjónhimnuna. „Öll fæðumst við fjarsýn en augasteininn getur framan af ævinni leiðrétt hana. Hæfni hans til þess dvín með ár- unum, sbr. aldursfjarsýni,“ segir Þórður. „Augað á að virka eins og hin fullkomna hálfkúla. Allir geislar sem skína á hana fókuserast í einn punkt, brennipunkt. Hornhimnan í þeim sem hafa sjónskekkju er mis- kröpp þannig að myndin fókus- erast ekki í einum punkti,“ út- skýrir hann enn frekar. Sjónlag erfist, „eins og sjá má t.d. í giftingarveislum," bendir Þórður á brosandi. „Auðvelt er að greina hver tilheyrir hvorri ætt, því allir eru með gleraugu í ann- arri ættinni en enginn í hinni.“ Kínverjar eru sagðir hafa tekið sjóngler í sínar þarfir löngu áður en þau sáust á Vesturlöndum. At- ÚTSÝNIÐ frá kaffistofunni í Grafarholti í Reykjavík, þar sem Egill Rúnar Iljartarson sýpur á kaffinu sínu í hádegishléinu, hefur aldrei verið fallegra en í haust. Svo er að minnsta kosti í augum Egils Rúnars, sem í september fór í leysiaðgerð á augum til að láta laga í sér nærsýni. „Ég get talið húsin uppi á Kjalarnesi og greini húsin í sundur á Akranesi," segir hann og bætir við að hann sjái Snæfellsjökul svo vel að „það liggur við að ég sjái snjósleðana fara upp á jökulinn". Egill Rúnar fékk fyrstu gleraugun sín þrettán ára. Hann notaði mikið linsur þegar hann var unglingur í skóla en eftir að hann komst á fullorðinsár hefur hann verið háður því að nota gleraugu. „Ég hef alltaf unnið vinnu þar sem óhrein- indi eru mikil og það gekk ekki upp að vera með linsur. Ég hef lengi fylgst með og beðið eftir því að farið yrði að gera þessar aðgerðir hérna. Ég vissi af fólki sem fór í aðgerð til Noregs og Danmerkur en það var auðvitað mjög dýrt. Konan mín sá síðan frétt í sjón- varpinu um að nú væri farið að gera aðgerð á augum hér heima og ég pantaði mér tíma um leið og ég komst að því hvað læknarnir hétu.“ Egill Rúnar segir að það hafi komið sér verulega á óvart hversu vel hann sá strax eft- * ir aðgerðina. „Ég hefði getað keyrt heim sjálfur. Við hjónin fórum í Hagkaup til að kaupa augndropa og þá strax gat ég lesið á hvert einasta skilti í versluninni." Egill Rúnar frestaði aðgerðinni í haust þar sem hann þurfti að fara i göngur norður í Húnavatnssýslu. „Þá hefði ég viljað vera bú- inn að fara í aðgerðina. Veðrið var afleitt, rigning, norðanátt og vindurinn 25 m/sek. Ég sá ekki neitt í gegnum gleraugun." Egill Rúnar fór til vinnu sinnar strax dag- inn eftir aðgerðina. Hann ók m.a. upp á Sand- skeið og naut þess að horfa í kring um sig. „Það var geggjað. Ég sé svo miklu lengra en áður. Konan mín kom alltaf auga á hluti í um- hverfinu löngu á undan mér en nú er það ég sem er á undan henni,“ segir hann. „Ég hef ekki fundið fyrir neinum óþæg- indum nema fyrst, þá fann ég stundum eins og til þreytu í augunum. Ég fer stundum með fingurna upp undir gleraugnaspöngina en þegar ég átta mig á að ég hef engin gleraugu klóra ég mér bara á nefinu í staðinn. Maður er svo ótrúlega fljótur að aðlagast þessu. Ég færi frekar í þessa aðgerð en til tann- læknis. En þetta er auðvitað dýrt og Trygg- ingastofnun tekur engan þátt í kostn- aðinum."
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.