Morgunblaðið - 24.12.2000, Blaðsíða 54

Morgunblaðið - 24.12.2000, Blaðsíða 54
54 B SUNNUDAGUR 24. DESEMBER 2000 DÆGURTONLIST MORGUNBLAÐIÐ Brestur i RATM FAAR hljómsveitir hafa notið ann- arrar eins hylli hér á landi og Rage Against the Machine, RATM, um það leyti sem sveitin kom hingað til lands á sínum tíma. Það er því harmur kveðinn að fjölmörgum aðdá- endum sveitarinnar að fregna að söngvarinn Zack De La Rocha hafi gengið úr skaftinu því þótt félagar hans láti líklega með að ráða annan söngvara verður það ansi ólík hljóm- sveit ef af verður. I samtali við Tom Morello, gítar- leikara sveitarinnar, skömmu áður en sveitin kom hingað til lands að leika í Kaplakrika íyrir sjö árum, lýsti hann undrun sinni á að sveitin nyti eins mikiila vinsælda hér á landi og áhugi fyrir tónleikunum benti til, en ekki leið á löngu að sveitin naut viðlíka vinsælda um heim allan. Rage Against the Machine sendi frá sér fyrstu skífuna 1992, sam- nefnda sveitinni, en þótt hún hafi ver- ið áberandi í fréttum og dugleg við tónleikahald var hún ekki eins dugleg að taka upp því ekki liggja eftir sveit- ina nema fjórar breiðskífur, Rage Against the Machine 1992, Evil Emp- ire 1996, The Battle of Los Angeles 1999 og Renegades sem kom út íyrir stuttu. Reyndar eru plötumar ekki ' nema þrjár með frumsöndu efni, því á Renegades er að finna útgáfur þeirra félaga af lögum eftir hina og þessa tónlistarmenn sem þeir hafa dálæti á. Þannig taka þeir og gera að sínum lög eins og Microphone Fiend sem rapp- tvieykið Eric B og Rakim gerði frægt á sínum tíma, Street Fighting Man Rolling Stones, Maggie’s Farm eftir Bob Dylan, Cypress Hill-slagarann 35 Juan De Marcos og Luis Frank. Pio Leyv og Rudy Calzado. Kúbverskir höfuðpaurar Hljómsveitin Rage Against the Machine. How I Could Just Kill a Man og rokk- lagið fræga Kick Out the Jams sem var bannað á sínum tíma með MC5. Samstarfið innan RATM hefur alltaf verið eldfimt, ekki síst þar sem pólitísk sannfæring Zack De La Rocha virtist vera sterkari en félaga hans og hann hefur hvað eftir annað lýst óánægju sinni með frægðina og sölumennskuna sem henni fýlgdi. Eins og getið er segjast þeir félagar hans sem eftir sitja leita sér að öðrum söngvara, en ekki er gott að segja hver getur fetað í fótspor De La Rochas. Zack De La Rocha er fráleitt hætt- ur í tónlistinni, er með sólóskífu í smíðum, og herma fregnir að hún verði rappskotnari en það sem hann hefur áður komið að. Þó má ekki gleyma stjörnuleik hans á Lyricist Lounge-safnskífunni á þarsíðasta ári þar sem hann fór á kostum með KRS One og Last Emperor. Cypress Hill á tón- * leikum EKKI ER langt síðan menn töldu rappflokkinn Cypress Hill feigan, enda bentu yfirlýsingar liðsmanna til þess að þeir væru búnir að fá nóg í bili. Annað kom á daginn, eftir sólóskífur og tilheyr- andi útúrdúra tóku menn upp þráðinn eins og ekkert hefði í skor- ist; í sumar kom út sterk rokkuð rappskífa og fyrir stuttu tónleika- plata. A annan áratug er liðið síðan fyrsta Cypress Hill-platan kom út, en eins og heyra mátti á plötu sem þeir félagar sendu frá sér í vor, Skull & Bones, voru þeir fráleitt búnir með innblásturinn. Skífan var enda tvöföld og vakti athygli að annar diskurinn var hlaðinn rokk- rappi af bestu gerð og rétt til að undirstrika það var fyrsta smáskíf- an af diskinum gefin út í tveimur útgáfum, rokkaðri og rappaðri. I kjölfar Skull and Bones lögðu þeir Cypress-liðar upp í langt tón- leikaferðalag, enda hefur sveitin verið spilaglöð með afbrigðum. I þeirri ferð tók sveitin meðal annars upp tónleika í Filmore-tónleika- höllinni í San Francisco í ágúst síð- astliðnum og fyrir nokkrum dögum ^kom út safn laga frá þeim tón- leikum. Á diskinum, sem kallast einfaldlega Cypress Hill Live at the Filmore, eru sautján lög og í raun er hann líkari safnskífu bestu laga en kynningu á Skull and Bon- es, þvi ekki eru nema tvö laganna sautján af skífunni, hitt allt gamlir r Cypress-slagarar. Andkristur ÆÐIÐ fyrir kúbverskri tón- list er fráleitt búið, enda af nógu að taka. Allir þekkja Buena Vista-ævintýrið þar sem gamlir listamenn létu ljós sitt skína eftir margra ára vanrækslu, en það eru fleiri aldnir tónhöfðingjar í Hav- ana eins og heyra má á nýútkom- inni skífu, Soneros de verdad. Höfuðpaur skífunnar er Luis Frank, söngvari Afro Cuban AU Stars, sem tileinkar hana Juan de Marcos Gonzalez fyrir þann þátt sem sá átti í því að koma Kúbu- tónlist á kortið að nýju, en eins og menn muna átti Marcos Gonzalez hugmyndina sem varð að Buena Vista Social Club-samstarfinu, kvikmyndinni og skífunum ótelj- andi. Frank og Marcos Gonzalez hafa báðir starfað að tónlist frá því þeir voru unglingar, en sá síðamefndi var í fararbroddi ungra tónlistar- manna sem tóku þátt í að endur- eftir Árna Matthíasson FÁIR tdnlistarmenn hafa vakið annað eins umtal vestan hafs á síðustu árum og Brian Warner sem kallar sig Marilyn Manson. Þótt Em- inem virðist hafa tekið við hlutverki skelmisins um þessar mundir var fátt betur til þess fallið að hleypa öllu í bál og brand en nefna nafh Mansons á kristilegum samkomum eða samráðs- fundum for- eldraráða um miðjan áratug- inn. Sex ár eru liðin sfðan fyrsta breiðskífa Marilyn Manson kom út, samnefnd sveitinni, sem þá var hljómsveit. Smám saman náði mesti villingurinn í sveitinni, áðurnefndur Brian Warner, yfirráðum í sveitinni og tók sér á endanum nafnið Marilyn Manson með góðum ár- angri. Upp frá því má segja að allt hafí snúist um hann og hug- myndafræði hans sem gekk út á þau einföldu sannindi að ekkert er betur til þess fallið að vekja á sér athygli en að ganga lengra en allir aðr- ir. Þannig tók hann sitthvað sem aðrir höfðu hneykslað með á undan honum, Alice Cooper meðal helstu áhrifavalda, og gerði enn betur, ýkti og afskræmdi. Tónlistin var í upphafi fremur einfalt þungt rokk en smám saman þyngdist undiraldan, skrautið varð æv- intýralegra og yrkisefnið óhugn- anlegra og vinsældimar blöstu við. Helsta skífa sveitarinnar að flestra mati er Antichrist Superstar sem kom út fyrir fjórum árum og seldist í millj- reisa son-hefðina í Kúbu, meðal annars með hljómsveit sinni Sierra Maestra. í ítarlegum bækl- ingi sem fylgir skífunni segir ein- mitt að Frank hafi vfijað stefna saman ungum listamönnum og öldnum til að sýna og sanna að hefðin lifir góðu lífi og að báðir hafi sitthvað til málanna að leggja. Hann kallaði því til hinn 85 ára gamla söngvara Pio Leyva, Juan de Marcos, Manuel „Puntillita" Licea, sem er á áttræðisaldri en var á sjötta áratugnum með þekktustu son-listamönnum Kúbu, og söngvarann Rudy Calz- ado, sem er 71 árs. Þessir eru helstir en við sögu á skífunni koma einnig gítarleikar- inn Manuel de la Cruz, píanóleik- arinn goðsagnakenndi Guillermo Rubalcaba, Yulien Oviedo Sánch- es, Maracaibo Oriental og svo má telja. Þótt allir séu þeir félagar miklir áhugamenn um son fara þeir um víðan völl og bregða íyrir sig son, danzón, djassi og svo má telja, svona rétt til að sýna að enn sé mikið ósagt í kúbverskri tónlist. Nafnið á skífunni, sem má út- leggja höfuðpaurar son-söngv- anna, undirstrikar að fáir eru betur til þess fallnir að segja það sem þarf. ónaupplagi. Manson, sem tók upp á því að kalla sig And- krist á þeim tíma, átti einkar auðvelt, með að ná til utanveltu ungmenna sem klæddust gjarn- an svörtu og máluðu sig í takt við það sem fyrirmyndin gerði á tón- leikum og í myndböndum. Eftir því sem vinsældirnar jukust jókst og þrýstingur frá þeim sem vildu banna tónlist Mansons og texta og alsiða að tónleikum væri mótmælt eða þeir blásnir af fyrir atgang hægrimanna eða trúarleiðtoga vestur í Bandaríkjunum. Ekki varð það svo til að draga úr deilum um Manson þegar ungmenni frömdu fjöldamorð í mennta- skóla fyrir tveimur árum. Margir urðu til að skella skuldinni á Manson og ofbeld- isfulla tölvuleiki og þótt deil- urnar í kjölfarið hafí orðið til þess að auka sölu á nýlegri breiðskífu Mansons hefur hann lýst því að allt þetta hafí fengið á hann og um tíma var sem hann héldi sig til hlés. Eins og getið er í upphafí hamast allir á Eminem nú um stundir og því þarf meira en lítið til að ná athygli vestan hafs, ekki síst ef menn róa á sömu mið. Breiðskífan Mechanical Animals sem kom út 1998 þótti mörgum heldur dauf og Iitlaus og því þurfi Manson að leggja hart að sér til að ná eyrum fyrrum aðdáenda sinna. Nið- urstaðan varð Holywood, sem kom út í haust, og þykir afbragðs rokkskífa, kraftmikil og vel saman sett. Hneykslunarhellurnar fá svo sitt þeg- ar þær heyra textana, því þeir eru uppfullir með andkristilegan boðskap og daður við dimma dulspeki. Þótt platan sé talin með þvf besta sem Marilyn Manson og félagar hafa sent frá sér virðist sem tími hans sé liðinn, því platan hefur ekki selst nema miðl- ungi vel. Hann þarf því að grípa til enn róttækari ráða vilji hann halda sér á toppnum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.