Morgunblaðið - 24.12.2000, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 24.12.2000, Blaðsíða 38
38 B SUNNUDAGUR 24. DESEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ hreint afbragð. í Steingrímsfirði kenndi ég í Heydalsá, en þar var einn elsti heimavistarskóli lands- ins. Þar kenndi ég eftir áramótin. Þarna voru um það bil tuttugu böm og auk kennslu varð ég að sjá um gæslu á þeim. En ráðskona var þarna, sem annaðist matargerðina. ^ Auðvitað gerðist svo sem eitt og annað í þessum stóra hópi. En allt gekk þetta áfallalaust. Eitt var það þó, sem mér líkaði ekki, en það var, að um vorið fóru krakkarnir að laumast til að fá lánaða báta og róa á þeim út á fjörð til að veiða hrogn- kelsi. Ég var hræddur um, að þau færu sér að voða. Þess vegna brá ég á það ráð, að bjóðast til að taka þau með mér í róður einhvern dag- inn. Og það gerði ég og við fisk- uðum vel. En ég hélt því vandlega leyndu, að ég hefði aldrei áður róið , til fiskjar.“ • En hvemig var það, fékkstu greidd kennaralaun á sumrin? „Nei, það fengu aðeins réttinda- kennarar. Á sumrin var ég heima í Hítardal og hjálpaði foreldrum mínum við búskapinn. Hann hafði reyndar dregist saman hjá þeim, því Leifur bróðir minn var tekinn við hálfri jörðinni. Nú, en veturinn eftir að ég kenndi í Strandasýslu, vantaði kennara á Snæfellsnes, það er að segja á Grundarfjörð. Og þar réðst ég til starfa. Ég fékk að fljóta þangað með þeim Hermanni Jón- assyni og Páli Zophaníussyni, en þeir vom að fara að halda fundi á Snæfellsnesi. Auðvitað hlustaði ég með andakt á þessa höfðingja á leiðinni.," segir Bergþór og er ekki laust við að brúnin léttist. Nei, að- spurður kveðst hann ekki hafa þeg- ið skoðanir sínar frá þessum ferða- félögum sínum. „Það var ekki íyrr en seinna, að ég fór að leiða hug- ann að pólitík. En hvað um það, að- koman á Gmndarfirði var ekki glæsileg,“ segir Bergþór. „Ég átti að kenna um fjömtíu krökkum í gamalli verbúð. Allur þessi skari átti að vera í einni kös, en ég skipti honum niður eftir getu. Og það -í-.skipti sér enginn af því. En það var ekki auðvelt að koma þessu öllu saman. Ungmennafélagið var að byggja þarna félagsheimili og mér hafði verið lofað að fá þar inni fyrir skólann eftir áramót. Og það stóðst. Það urðu mikil og góð um- skipti á andlegri líðan minni, þegar kennslan var flutt í það hús.“ En Bergþór, varstu ekkert far- inn að huga að kennaranámi? „Jú, það var þannig, að úti í sveit var gamall réttindakennari, sem kenndi tveimur eða þremur börn- um, meðan ég kenndi um fjömtíu bömum á Gmndarfirði. En vegna þess að hann hafði réttindin, þá var hann á tvöföldu ef ekki þreföldu kaupi á við mig. Þetta varð kveikj- > an að því, að ég fór að huga að því, hvemig ég gæti orðið mér úti um kennararéttindi. Það var nú ekki hlaupið að því fyrir eignalausan mann, síst vegna þess, að í Reykja- vík sat herinn um allt húsnæði, sem losnaði. En sumarið eftir Gmndarfjarðardvölina, gerðist ég vegavinnuverkstjóri við sýsluveg, sem verið var að leggja frá Stað- arhrauni og efst upp í Hítardal. Þarna sá ég sem sagt um vegalagn- ingu yfir hraun og mýrar. Við feng- um nýjan vömbíl úr Borgarnesi og auðvitað bílstjóra með, til að bera ofan í veginn. Það var nú enginn annar en Teitur Jónasson. Nú, en allt þetta sumar var ég að hugleiða ~<það, hvemig ég kæmist í kenn- aranám. Og þegar Helgi Elíasson hafði samband við mig, til að fá mig í farkennslu, þá réð ég mig vestur á Dýrafjörð, bæði í Brekkudal, sem gengur upp af firðinum og á Þing- eyri. Þetta var ekki alveg full staða, svo ég hafði rúman tíma til að lesa og undirbúa mig undir það að taka kennaranámið í áföngum. Um vorið fór ég svo suður og tók þrjú próf við Kennaraskólann, þar af eitt lokapróf. Þó að erfitt væri um húsnæði í Reykjavík, þrátt fyr- ir að stríðinu væri lokið þegar hér *var komið sögu, tókst mér að koma mér þar fyrir. Ég fékk vinnu við Andakílsvirkjun, varð það sem kallað var matarstjóri þar. Það starf var fólgið í því, að sjá um inn- kaup fyrir matarfélag starfsmanna þarna. Þetta var sumarið, sem Norðmenn endurreistu Snorra á _ Reykholti, eftir að hafa látið fella hann þar forðum tíð, það er að segja sumarið 1947. Ég komst á Snorrahátíðina, en var veikur og lá þarna á túninu á meðan á Snorra- hátíðinni stóð. Best gæti ég trúað því, að fólk hafi haldið að ég væri drukkinn," segir Bergþór hlæjandi. „En þessi veikindi voru nokkuð þrálát, svo ég gat lítið stundað námið veturinn eftir. Nú, en lífið heldur áfram þótt einhver veikist og allt þokaðist þetta áfram. Ég gat lesið mér til. Freysteinn Gunn- arsson, skólastjóri Kennaraskól- ans, var mjög liðlegur við mig og lofaði mér að taka próf, þegar ég gat. Og árið 1949 tók ég svo loka- próf úr Kennaraskólanum.“ „En áður en lengra er haldið," segir Bergþór, „langar mig til að segja frá nokkru, sem gerðist í far- kennslunni. Það skiptir ekki máli, hvar þetta gerðist, en undarlegt þótti mér það. Þannig var, að for- maður skólanefndar, þar sem ég var að kenna, úthlutaði mér til- teknu heimili til kennslu. En þar stóð þannig á, að þar lá berkla- sjúklingur. Ég var auðvitað sér- staklega viðkvæmur varðandi þann sjúkdóm, eftir að Pétur bróðir minn hafði dáið úr honum. Og ég neitaði að kenna á þessu heimili. Skólanefndarformaðurinn ætlaði að þvinga mig til þess, svo ég brá á það ráð, að látast taka vel í það með einu skilyrði þó. Hann vildi auðvitað vita, hvert það skilyrði væri. Ég sagði honum þá, að ég skyldi kenna þarna, ef dóttir hans kæmi með mér. Þá tók kona skólanefndarformannsins af skarið og sagði, að það skyldi aldrei verða. En þetta sýnir, að berkl- arnir gátu breiðst út eftir ólíkleg- ustu leiðum, ef fólk hélt ekki vöku sinni. En þetta var nú útúrdúr," segir Bergþór, og snýr sér aftur að þeim tíma, sem hann lauk kenn- araprófinu. „En nú þegar ég var kominn með full réttindi, þá var það nú einhvern veginn svo, að mig langaði ekkert að halda áfram kennslu í bili,“ segir hann. „Ég sótti því um námsdvöl við Norræna lýðháskólann í Voss í Norgei, ekki langt frá Bergen. Guðlaugur Rós- enkranz, sem einmitt varð Þjóð- leikhússtjóri þetta sama ár, ann- aðist þá norræna samvinnu á þessu sviði fyrir Islands hönd. Ég ræddi við hann og það varð sem sagt úr, að ég færi til Voss. Þetta var ekki erfitt nám, en dvölin þarna var ákaflega skemmtileg. Þarna var ég veturinn 1950 til 1951. Þegar ég ætlaði að halda heim á leið hafði Rósenkranz samband við mig og bað mig að fara sem fulltrúi Is- lands til Genfar í Sviss, en þar var rekinn norrænn sumarskóli. Dvöl mín þar varð nokkuð endaslepp, því móðir mín lést þá um sumarið og ég varð auðvitað að komast heim til að fylgja henni til grafar. Faðir minn lést svo síðar þetta sama sumar, svo það varð stutt á milli þeirra. En hvað um það, ég kom flugleiðis heim, en fyrst varð ég að koma farangrinum um borð í skip. Á þessum árum voru flugvél- arnar svo litlar, að það var ekki hægt að hafa mikinn farangur með í þeim. Ég man, að þegar við flug- um inn yfir Island var komið með vínglös handa farþegum. Það var víst siður þá. Ég sat þarna með tveimur sænskum stúlkum og þær voru svo heillaðar af landinu, að þær horfðu bara út um gluggann. Svo ég fékk þrjú glös í staðinn fyr- ir eitt,“ segir Bergþór, og reynir ekki að ráði, að hemja hláturinn. Og hann heldur áfram. „Enda þótt stríðinu væri lokið fyrir sex árum, gætti áhrifa þess enn. T.d. var ekki hægt að ferðast að vild um Evrópu, hvorki vestan né austan við járn- tjaldið. Ég lenti í mesta basli með að fá vegabréfsáritun í gegnum Þýskaland. En allt hafðist þetta að lokum. Þegar ég kom heim, fór ég svona að huga að því hjá fræðslu- stjóra, hvort hann hefði nú ekki eitthvað annað handa mér en far- kennslu. Jú, jú, hann hafði svona eitt og annað. Það fór svo, að mér var skipað til sætis norður á Skagaströnd, eða Höfðakaupstað, eins og það hét þá. Skólinn þarna var í mótun og heldur mikill los- arabragur á hlutunum. Ég átti að kenna í unglingadeildinni. En raun- in varð sú, að þangað voru sendir böldnustu nemendurnir. Þarna Pólitíkin hörð Áður en ég skil við dvölina í Vík, langar míg að segja frá því, að þar voru tvær versl- anir. Kaupfélagið rak aðra og þar réðu auðvitað fram- sóknarmenn. Hin verslunin var pöntunarfélag, sem Ragnar Jónsson, bróðir Ing- ólfs á Hellu, rak. Þar versluðu íhaldsmenn. En ég, sem hvorki var íhald né framsóknarmaður, gekk í bæði félögin. Þetta þótti sumum svo undarlegt, að menn voru víst að velta því fyrir sér, hvort það væri lög- legt. Og vel var fylgst með því, á hvorum staðnum var verslað. Svona var nú póli- tíkin hörð þá. Til allrar ham- ingju er þetta liðin tíð. hafði fólk meiri áhuga á fiski en námi. Svona staðir voru fiskiþorp en ekki menntasetur, það var á hreinu." Stjórnmálin Þar sem spyrill er ekki alveg grunlaus um, að Bergþór hafi haft einhver afskipti af póhtík, leiðir hann talið að upphafi þeirra af- skipta. „Jú,“ segir Bergþór, „það var þannig, að ég hafði hjálpað Þor- steini Þorsteinssyni, sýslumanni í Dalasýslu, við að afla gagna í Ár- bók Éerðafélags Islands, 1953, en hún fjallar um Mýrasýslu. Þor- steinn var nefnilega Mýramaður. Nú brá svo við, að erfitt reyndist að fá kennslu. En Þorsteinn vildí launa mér greiðann í sambandi við Ferðafélagsbókina og kom mér í vinnu á Vellinum. Ég átti að vera offiserabílstjóri. En til að geta fengið það starf varð ég að gangast undir bílpróf, enda þótt ég hefði löngu tekið það og væri ágætis bíl- stjóri, þótt ég segi sjálfur frá. Og ég varð að fara í skoðun, þ.ám. augnskoðun. Þar kom í ljós, sem ég hafði svo sem alltaf vitað, að ég var ekki með jafna sjón á báðum aug- um. Þetta er fæðingargalli. En sá sem stjórnaði prófinu, sagði að þetta kæmi í veg fyrir, að ég gæti ekið offiserum. Þessi maður var ís- lendingur í vinnu hjá ameríska hernum. Og hann þurfti að sanna sig. Þess vegna gerði hann svona mikið mál úr þessum ómerkilega sjóngalla. Mér sárnaði þetta; fannst landi minn hafa lagst lágt fyrir útlendan her. Það getur verið, að ég hafi eitthvað verið farinn að leiða hugann að pólitík áður, en þetta atvik varð að minnsta kosti til að beina þeim hugsunum í ákveðinn farveg. En ég var nú samt ráðinn á Völlinn. Ég fór að af- greiða varahluti í flugyélar; til þess þurfti ekki fulla sjón. Ég sá líka um matarinnkaup fyrir eldhúsið. í því sambandi þurfti ég oft að fara út af flugvellinum. Og þá sá ég alla þessa spillingu, sem fylgdi hernum. Menn stálu frá honum eins og þeir mögulega gátu. Sumir stálu t.d. svo miklu timbri, að þeir byggðu sér hús úr því, þarna í Keflavík. Einum kynntist ég, sem alltaf var að keyra drasl út af Vellinum í hjólbörum. Kanarnir voru alveg vissir um, að eitthvað væri gruggugt við þessar ferðir hans, en höfðu ekkert á hann. Hann trúði mér fyrir því, að það væri nú ekki draslið í hjólbör- unum, sem máli skipti, heldur hjól- börurnar sjálfar. Þeim stal hann sem sagt frá hernum og var auðvit- að alltaf að keyra nýjar hjólbörur gegnum varðhlið Ámeríkananna. Sjálfur keypti ég einu sinni út- varpstæki þarna á Keflavíkurflug- velli og smyglaði því út, með því að smokra því undir girðingu. Þannig slapp ég við að greiða tollinn, en hann var talsvert hár. Nú, en hvað um það; mér leiddist alltaf að vinna þarna á Vellinum.“ Hreinar línur í Vík í Mýrdal - haldið á Selfoss Varstu kominn með fjölskyldu á þessum árum? „Jú, ég gekk í hjónaband árið 1953. Konan mín heitir María Jak- obína Friðriksdóttir, Júlíussonar og er frá Sauðárkróki. Við eigum tvö börn, Teit og Kristínu Fjólu. Og þau eru bæði kennarar, eins og svo margir í ættinni. En spurðu mig ekki um ættfræði; ég veit ekk- ert um hana.“ Varla hefur þér hentað flakkið lengur, fjölskyldumanninum? „Nei, ég sótti um skólastjóra- stöðu í Vík í Mýrdal og fékk hana. Okkur líkaði mjög vel þarna að öðru leyti en því, að húsakosturinn var mjög þröngur. Við höfðum eina stofu og deildum eldhúsi með öðr- um. Við vorum orðin þrjú, því son- ur okkar Teitur fæddist þetta sum- ar. Og þarna var svo mikil húsnæðisekla, að það var ekki nokkur leið að ráða bót á þessu. Þess vegna vorum við aðeins einn vetur í Vík. Ég sé alltaf eftir því, að hafa ekki verið þar lengur. En það þýðir ekki að tala um það. Áð- ur en ég skil við dvölina í Vík, lang- ar mig að segja frá því, að þar voru tvær verslanir. Kaupfélagið rak aðra og þar réðu auðvitað fram- sóknarmenn. Hin verslunin var pöntunarfélag, sem Ragnar Jóns- son, bróðir Ingólfs á Hellu, rak. Þar versluðu íhaldsmenn. En ég, sem hvorki var íhald né framsókn- armaður, gekk í bæði félögin. Þetta þótti sumum svo undarlegt, að menn voru víst að velta því fyrir sér, hvort það væri löglegt. Og vel var fylgst með því, á hvorum staðn- um var verslað. Svona var nú póli- tíkin hörð þá. Til allrar hamingju er þetta liðin tíð. Eftir kennsluna í Vík, sótti ég um kennarastöðu í barnaskólanum á Selfossi og fékk hana. Það voru tvær kennarastöður lausar og mig minnir að umsókn- irnar hafi verið fimmtíu og fjórar. Þú sérð hvernig atvinnuástandið hefur verið á þessum árum. Og hér hef ég verið síðan og líkað vel. Seinustu þrjá veturna, sem ég kenndi, starfaði ég þó ekki hér á Selfossi,“ segir Bergþór. „Ég kenndi tvo vetur í Hveragerði og síðasta veturinn áður en ég fór á eftirlaun, var ég skólastjóri austur á Bakkagerði. Það þorp þekkja flestir sem Borgarfjörð eystri. Nú, nú, en hvað um það; bróðir minn, Kristján, bjó hér á Selfossi þegar við komum hingað og til að byrja með fengum við inni hjá honum, þar til við höfðum komið okkur fyr- ir. Fljótlega fórum við út í það að byggja, ekki langt frá þar sem við búum nú. Síðar seldum við þar og byggðum þetta hús. Auðvitað var fjárhagslegt basl á manni og við gátum ekki leyft okkur mikið. Þó komumst við einu sinni á þjóðhátíð í Vestmannaeyjum og sigldum í kringum eyjarnar." Stjórnmálavafstur á Suðurlandl Og pólitíkin? „Já,“ svarar Bergþór, „það er þetta með pólitíkina. Ég gekk í það ásamt ýmsu góðu fólki, að stofna Alþýðubandalagsfélag hér á Sel- fossi. Það var árið 1959. Það féll í minn hlut að gegna formennsku í félaginu, auk þess, sem ég var lengi formaður kjördæmaráðs Al- þýðubandalagsins á Suðurlandi. Ég var formaður Alþýðubandalagsins á Selfossi fram til ársins 1972. Árið 1961 eða 1962 sat ég sem varamað- ur Karls Guðjónssonar á Alþingi í nokkrar vikur.“ Hvort Bergþór hafi flutt ein- hveija tillögu meðan hann sat á Al- þingi? „Jú, ég gerði það nú, þó að ég færi óundirbúinn á þing. A þessum árum var vegakerfið enn mjög óburðugt og hvergi varanlegt slit- lag á vegum, nema á Keflavíkur- vegi, sem var malbikaður um þetta leyti. En ríkið rak Ríkisskip, sem þjónustaði þorp og bæi við strönd- ina. Ég flutti því tillögu um að ríkið tryggði lágmarks flutninga til þorpa inni í landi. En auðvitað var hún svæfð í nefnd,“ segir Bergþór og vindur sér í annað Viðeyjar- klaustur. „Nú, en það er nú þannig með pólitíkina, að þar leiðir eitt af öðru. Ég lenti í hreppsnefndinni hér á Selfossi og sat þar eitt kjör- tímabil, 1970 til 1974. Og ég var lengi ritstjóri Jötuns, málgagns Al- þýðubandalagsins hér á Suðurlandi og raunar stofnandi þess blaðs. Það var oft æði erfitt, að halda því gangandi. Til þess þurfti auglýs- ingar og mörg fyrirtæki vildu ekki auglýsa hjá okkur kommunum. Þetta átti meira að segja við um opinberar stofnanir, þó ekki sýslu- mannsembættið hér í Árnessýslu. Sýslumaðurinn hér var að vísu stækur íhaldsmaður, en hann aug- lýsti alltaf í Jötni. Svo var ég líka að vafstra í félagsmálum kennara og var lengi formaður Kennara- félags Suðurlands, eftir að hafa gengist fyrir stofnun þess. En ég hafði mig lítið í frammi í pólitíkinni út á við. Það þýðir ekki, að sama fólkið sjái um innra starf stjórn- málaflokka og hitt, sem út snýr. Til þess vinnst einfaldlega ekki tími.“ Hvernig var þvi tekið, að barna- kennari væri að vafstra í pólitík? „Það var nú þannig á þessum ár- um, að við alþýðubandalagsmenn vorum kallaðir kommúnistar og höfðum því á okkur misjafnt orð. Ég vissi, að sumum foreldrum var það ákaflega erfitt, að senda börnin í skóla til kommúnista. Það er ekki auðvelt fyrir fólk að trúa þessu nú, en svona var þetta hér áður fyrr.“ Nú voru þingmenn Alþýðu- bandalagsins á Suðurlandi lengst af úr Vestmannaeyjum. Kom það niður á samstarfi við þá? „Nei, við Karl Guðjónsson áttum ágætis samstarf, þar til hann gafst upp 1971 og fór yfir til Hannibals. Jóhann Hafstein var þá forsætis- ráðherra og orðinn fársjúkur. Það þótti því einsýnt, að hann leiddi ekki ríkisstjórn eftir kosningarnar 1971. Hugur Hannibals var aldrei fjarri krötum. Ég held, að Gylfi Þ., sem þá var menntamálaráðherra og viðskiptaráðherra, hafi gert sér vonir um að verða forsætisráð- herra eftir kosningar og þá m.a. með aðstoð Hannibals. Karl hefur þá væntanlega gert sér vonir um menntamálaráðherrastólinn. En þetta eru nú bara mínar tilgátur. Þó held ég að eitthvað sé til í þeim. En svo aðeins sé vikið að Alþýðu- bandalaginu hér á Suðurlandi, þá leið starf þess lengi fyrir það, að 1959 var gerð kjördæmabreyting, þannig m.a., að Vestmannaeyjar og sýslurnar á Suðurlandi urðu eitt kjördæmi. Og þá voru samgöng- urnar til Eyja ekki eins góðar og síðar varð, auk þess sem aðstæður voru þar allt aðrar. Sko, það er ekki nóg að sameina kjördæmi - það þarf líka að sameina fólkið sem í þeim býr.“ Finnst þér ekki hafa verið hugað að því, við yfirstandandi kjör- dæmabreytingar? „Nei,“ svarar Bergþór, „ég er hræddur um ekki.“ En nú vill spyrill vita hvernig á því hafi staðið, að á meðan allt log- aði í illdeilum í Alþýðubandalaginu í Reykjavík, ríkti „drottins dýrðar koppalogn“ í flokksfélögunum úti á landi. Bergþór lætur ekki lengi bíða svars: „Ætli það hafi nú ekki bara verið vegna þess, að úti á landi nennti fólk ekki að koma saman til að rífast. Oft var deyfðin svo mikil, að ég var alveg að gefast upp á þessu. En svo kom að kosningum og þá varð maður auðvitað að láta hendur standa fram úr ermurn." Ertu trúaður á sameiningu vinstri manna? „Nei, ég sé ekki um hvað menn þykjast vera að sameinast. Vinstri stefna virðist mér það alla vega ekki vera. Sjálfur gekk ég til liðs við Vinstri græna í síðustu kosn- ingum og var á lista hjá þeim. En mér var það ekkert kappsmál,“ segir sá gamli baráttujaxl Bergþór Finnbogason að lokum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.