Skírnir - 01.01.1890, Blaðsíða 53
BOULANGER.
53
reknir burt og missbu embætti sin, og eins var farið með
ýmsa aðra, sem grunaðir voru um vináttu við hann. Plokkur
Boulangers gaf þessum mönnum fé í skaðabætur, en það fór
að verða þurrður á því, þegar þeir fjölguðu. Greifinn af Paris
sendi sínum fylgismönnum opið bréf og bað þá að vera sam-
taka öllum, sem óskuðu breytingar á stjórnarskipuninni. Yar
auðskilið, að hann ætlaðist til, að þeir tækju höndum saman
við Boulanger. Nú hófust kjörfundir um allt land og voru svo
mikil ólæti á þeim, að fram úr hófi keyrði. A einum fundi í
París voru 100 Boulangistar teknir höndum fyrir óspektir, og
opt voru menn svo ákafir á fundum þar, að hélt við meiðingum
og manndrápum og ræðumenn komu engu tauti við þá. Blöð-
in ætluðu að rifna af skömmum og einkum fékk Constans þær
óþvegnar. þegar Georg Grikkjakonungur kom til Parísar á
sýninguna, þá fréttist, að Constans ætlaði að hitta hann; dag-
inn áður stóð í blaði Rocheforts grein og fyrirsögn á þrem
málum: Varið ykkur d þjófum, eins og stóð víða á sýning-
unni. Var konungur beðinn að gæta þess, að láta ekki stela
frá sér vasaúri, gripum o. fl. þess konar. Hús og hallir, lík-
neski og leikhúströppur var allt þakið ávörpum, sem voru límd
hvert ofan á annað, svo að sumstaðar sátu margra þumlunga
þykkar pappírsklessur á húsunum. Herlið var haft til taks í
París þann dag, er kosningarnar voru. þær fóru fram eptir
héraðakosningalögunum (scrutin d’arrondissement), sem voru
samþykkt í byrjun ársins. f>að datt ofan yfir menn, þegar
þjóðveldismenn fengu fleiri atkvæði 22. september en liinir, en
þó voru fleiri en einn, sem fengu svo mörg atkvæði í 200 kjör-
dæmum, að í þeim var kosið aptur 6. október. Eptir kosning-
arnar urðu á þinginu: 245 «opportunistar» (hægfara þóðveldis-
menn), 120 «radikalir» (hraðfara þjóðveldisménn) og 205 mót-
stöðumenn stjórnarinnar; af þeim eru um 100 Orleanistar, 58
Bonapartistar og 47 Boulangistar. Nú mátti segja með sanni,
að hér var Boulanger af baki dottinn, og reyndist það hér sem
optar, að ekki er lengi veður að breytast í lopti hjá Frökkum.
Eiginhandarrit eða nafn Boulangers hafði lengi selzt á 8 krón-
ur hingað og þangað um landið, en nú féllu þau í verði. Bou-
langer hafði verið kosinn í einu kjördæmi í París, en stjórnin
kallaði kosninguna ólögmæta, kvað þann mann skyldi vera
þingmann, er flest atkvæði hafði fengið næst honum, og ónýtti
atkvæði þau, sem voru greidd með Rochefort og Dillon. A