Skírnir - 01.01.1890, Blaðsíða 60
VERKMENN 0. FL. ÁRIÐ 1889.
aðgjörðir hins, er áður var þar. þjóðverjar hafa beðið mikinn
skaða við þetta verkfall og er hann metinn á 9—14 milj. kr.
í desembermánuði lá við, að yrði aptur verkfall. það var
út af því, sem kallað er »sperre», þ. e. samkomulag milli
námueigenda, að taka ekki aptur í vinnu hjá sér námumenn,
sem hafði verið sagt upþ vegna óhlýðni. Námumönnum þótti
þetta vera hefnd fyrir verkfallið um vorið, og hótuðu að hætta
vinnu, ef þetta næði fram að ganga. Sáu námueigendur sér
þá ekki annað fært en láta undan.
1 miðjum ágústmánuði hættu verkmenn þeir, sem afferma
og ferma skip í Lundúnum, allri vinnu. Verzlun og iðnaður
stóð með meiri blóma en undanfarin ár, og þess vegna heimt-
uðu þeir hærra kaup, 6 pence ( = 45 aura) fyrir klukkustund í
stað 5 pence (=374 eyris), og ýmislegt fleira. Fjöldi af öðr-
um verkmönnum gekk í Iið með þeim. Blöðin og fólk flest
var meðmælt verkmönnum, og var óðum skotið saman fé
handa þeim. Frá Astralíu voru þeim sendar 200,000 kr.
þeir héldu stóra fundi í Hyde Park, enda voru þeir
milli 100 og 200 þúsundir. John Burns hét foringi þeirra.
Hann er mikill mælskumaður og skörungur í allri fram-
göngu sinni.
Nú má má nærri geta, að þetta var ómetanlegt tjón fyrir
bæinn. I Lundúnum koma og fara 216 skip á dag (79,000 á
ári), og þar er skipt vöru, fluttri á skipum, sem nemur að
andvirði hér um bil 4000 miljónum lcróna. þess vegna reyndu
ýmsir, sem áttu hlut að máli, að sætta verkmenn og hús-
bændur þeirra. Húsbændur vildu slaka til í ýmsu, en verk-
menn vildu hafa allt eða ekkert. Aðfluttar vörur skemmdust
og fúnuðu í skipunum, og bæjarbúar liðu skort á ýmsum
nauðsynjum. Loks linuðust húsbændur svo mil»ð, að þeir
vildu hækka laun verkmanna upp í 6 pence á klukkustund frá
1. jan. 1890. f>að var í septemherm.; en Burns heimtaði, að
þetta yrði gert þegar í stað eða ekki seinna en í nóvember-
byrjun. þeir, sem gengu bezt fram í að sætta og koma á sam-
komulagi, voru Manning, kaþólskur kardínáli, Lord Mayorinn
(bæjarstjórinn) í City og biskupinn í Lundúnum, og fyrir þeirra
orð var það, að húsbændur gengu að hinum síðari kosti Burns.
Eptir að verkfallinu var hætt, áttu verkmenn í ryskingum við
þá menn, sera höfðu tekið að sér vinnu þeirra, meðan verk-
fallið stóð yfir, en þeir voru fáir, og urðu þeir að víkja fyrir