Skírnir - 01.01.1890, Blaðsíða 79
79
þYZKALAND.
sýning til að sýna, hvernig varna mætti slysum á sjó og
landi, og bjarga mönnum.
italía-
Crispi. Páfi. Banatilræði við Crispi. Abyssinía.
Francesco Crispi hefur nú stýrt ltalíu í meir en hálft
þriðja ár, síðan 7. ágúst 1887. Hann varð sjötugur 4. oktbr.
1889, og þess vegna nota jeg tækifærið til að segja frá æfi
þessa manns, sem er kallaður »ítalskur Bismarck». það er
haft eptir honum, að þegar sessunautur hans á þingi af vinstri
ilokk spurði hann : eruð þér Mazzinisti ?, þá svaraði hann,
nei; eruð þér Garibaldisti ? nei.— Hvað eruð þér þá ? — Jeg
er Crispi.
Hann er fæddur á Sikiley 4. okt. 1819. þegar haun var
18 ára, var gerð uppreisn á eynni, en hún var sefuð með
slíkri grimmd, að Crispi ofbauð og gekk í leynilegt byltinga-
félag, sem vildi hrinda böðlunum iir söðli. Hann tók próf í
lögum við háskólann, og var málaflutniugsmaður, þegar upp-
reisnin var gerð 1848. Hann komst þá á þing og barðist fyrir
því, að setja konung af. Uppreisnin var kæfð 1849. Crispi,
sem hafði glætt hatrið til konungs með penua og munni, var
gerður útlagur. Hann flýði til Túrin og varð blaðamaður
þar. þaðan var honum vísað burt 1853, af því hann var
bendlaður við upphlaup í Mílanó. Hann flýði til Möltu og
gaf þar út blað, sem slæddist inn á Ítalíu, og var því vísað
burt þaðan, fór þaðan til Lundúna og lifði svo bágu lífi í
París í tvö ár 1856—58 ; þaðan var honum vísað burt eptir
banatilræði Orsinis við keisarann ; fór hann þá til Lundúna
og hélt saman við Mazzini, hinu mikla þjóðsköruug, þó skoð-
anir þeirra um framtíð Italíu væru ólíkar. þaðau sendi hanu
opið bréf til Italíu. Pallbyssur Prakka og Englendinga eða
uppreisn yrði að bjarga hinni ófarsælu ættjörð. Hann vildi
gera úr henni sterkt ríki með stjórn eins og England og
Frakkland. það dygði ekki að fara moð góðu að konunguu-
um. »011 fylki Ítalíu elska jeg jafnheitt». Sámbandið viðNa-
póleon 1859 töldu þeir Mazzini vera ættjarðarsvik: að bjarga