Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1976, Page 86
88
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
Hlöðudyr. Göngin milli fjóss og hlöðu voru um 1.4 m að lengd og
um 0.7 m að breidd. 1 þeim var moldargólf.
V Elstu byggðaleifar.
Byggðaleifar fundust undir skálatóft bæjarrústanna sem rann-
sakaðar voru á Sámsstöðum. Það voru elstu byggðaleifar á þessum
stað. 1 dagbók frá rannsókninni segir um jarðveg þann sem var
undir skálagólfinu að þar hafi verið „víða eitlar og linsur af svartri
eldfjallaösku og raunar meðal mannvistarlaganna sjálfra undir
skálagólfi .. ..“ Hér er átt við jarðvegssnið eða lóðskurð E—F (sjá
teikningu) úr skála, en mannvistarlög þau sem um er talað í dagbók
eru kölluð kolablandið torf á lóðskurðarmynd. Gæti þetta bent til
þess að þarna hafi staðið hús þegar svarta gjóskulagið féll.
Sjá má á tveimur lóðskurðarmyndum úr skála, E—F og G-—H
(sjá teikningu), hvernig þessar elstu byggðaleifar komu fram í lóð-
skurðunum og hvernig afstaðan var milli byggingaskeiðanna. Þegar
lóðskurðirnir voru gerðir voru grafnir tveir 50 sm breiðir skurðir
niður úr skálagólfi og niður á óhreyft. Flatarteikning af þessum
tveimur 50 sm beiðu skurðbotnum gefur ekki miklar upplýsingar um
þessar byggðaleifar. Helst er að nefna að undir nyrðra seti skálans
við E—F komu fram þrír hellusteinar, sem að vísu sá ekki fyrir
endann á, en þeir vii'tust hafa verið lagðir þarna til að mynda stétt
eða samfellda steinalögn. Sunnar komu fram smásteinar og steina-
brot, sumt basalt en sumt sandsteinn, allt augljóslega þangað komið
af mannavöldum. Þessir smásteinar takmörkuðu um 10 sm þykkt
lögótt, ef til vill troðið, mannvistarlag með lítils háttar kolaleifum.
Þetta lag varð greint um 2.5 m til suðurs undir skálanum. Það var
beint ofan á undirstöðuvikrinum.
Þegar skurðurinn við E—F var grafinn og tekið burt hið neðsta
af mannvistarlögunum rétt við steinana sem þau takmörkuðust af
kom í Ijós „hola í botnvikurinn um 4.5 sm víð og renndi ég mjóurn
tommustokk í hana og nam hann staðar í hörðum botni og sýndi
30 sm við barmbrún. Þessi hola var tóm þegar hún birtist." Þannig
segir frá þessu í dagbók.
Þegar fengist var við lóðskurð G—H úr skála gerðist hið sama
og segir í dagbók: „Undir framvegg skála kom svo sennilega sama
bygging í ljós og í fyrra skálaprófíl. Einkennilegt var að það sama
kom í ljós og í gær þegar ég skóf niður á botnvikur við steinana við