Kirkjublaðið - 01.01.1893, Side 7
7
og að slá á hina rjettu strengi hjarta þess, — og með
þessu er einnig ráðin bót á því, sem ábótavant var i
barnaskólunum. — Þessar samræður milli kermaranna og
barnanna er hin aðallega hlið sunnudagaskólans. — En
sunnudagaskólinn hefir einnig sína prjedikun, barnaprje-
dikun, sniðna eptir hugsunarhætti og skilningsþroska barn-
anna. — Þegar kennararnir hafa talað hver við sína deild
og útskýrt texta þann, sem valinn hefir verið fyrir þann
dag, fyrir börnunum, heldur forstöðumaður skólans eða
einn af kennurunum ræðu til allra barnanna, út af texta
þeim, sem þegar hefir verið útskýrður. — Auk þess eru
bænagjörðir haldnar, sem forstöðumaðurinn stýrir, en þó
eru börnin víða látin taka undir þegar »faðir vor« er
beðið og eins þegar trúarjátningin er lesin, til þess að
börnin fylgi því betur með. — Sálma hafa sunnudagaskól-
arnir einnig fyrir sig, stutta og auðvelda.
Með þessum hætti leitast þá sunnudagaskólarnir við
að ná tilgangi sinum og með þessum hætti hafa þeir
einnig orðið til ómetanlegrar blessunar alstaðar, þar sem
þeir hafa verið tiðkaðir.
Sunnudagaskóli sá, sem haldinn hefir verið hjer í Reykja-
víkívetur, er því miður að eins ófullkomin byrjun. — Enginn
þeirra, sem kenna þar hafa áður tekið þátt í sunnudaga-
skólakennslu, og fiestir þeirra ekki átt kost á að kynna
sjer þá. — Við þetta bætast ýmisleg vankvæði, sem við
þarf að stríða; fyrst og fremst vantar viðunanlegt hús-
næði. Bæjarstjórnin ljeði fúslega leikfimishús barnaskól-
ans og lagði tii ókeypis hitun hússins; en því miður er
húsið svo, að það verður ekki liitað til gagns, ef frost er
mikið; auk þess vantar bekki, hentuga til skólahaldsins,
því bekkir þeir, sem þar eru, eru allir of stórir; og einnig
þyrfti hver deild barnanna að vera nokkurn veginn út af fyr-
ir sig, þótt í samaherbergi væri, og kennararnir að geta setið
hver hjá sinni deild, svo að börnunum verði haldið róleg-
um, meðan á samkomunni stendur. Húsrúmið er auk
þessa af svo skornum skammti, að ekki er hægt að leyfa
öðrum börnum aðgöngu, en þeim, sem ganga í barnaskól-