Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1906, Qupperneq 5

Eimreiðin - 01.09.1906, Qupperneq 5
!Ó5 unarlaust, þangað til þær detta niður af sjálfum sér. Par gengur Svartidauði enn þá engu vægari en á skipi Hval-Einars Herjólfs- sonar, ennfremur kólera, bólusótt, taugaveiki og aðrir skaðræðis- gripir. Að þessir og aðrir sjúkdómar hafa eigi náð bólfestu á ís- landi á síðari árum, er sumpart að þakka fjarlægð landsins frá öðrum löndum, en einkum þó því, að öll hin mentuðu lönd Evrópu, sem viðskifti hafa við ísland, hafa um langan aldur með nákvæm- um sóttvarnarráðstöfunum haft hemil á þessum sjúkdómum og heft útbreiðslu þeirra. Pví nú er öldin önnur í Evrópu en var á miðöldunum. Nú hafa borgir og bæir þar annan hreinlætisblæ á sér en þá. Nú eru götur stórborganna beinar og breiðar, og snoturlega hlaðnar upp úr hreinlegu grjóti. Húsin eru háloftuð með mörgum og miklum gluggum, sem leyfa sólinni að gægjast inn í hvern krók og kima, til að benda mönnum á, ef eitthvað er óhreint og hreinsa loftið með heitum geislum sínum. Enn einkum er gjörð gangskör að því, að alt sorp og saurindi sé daglega flutt burt frá bústöðunum þangað, sem það getur engum orðið að meini. Sumpart er séð fyrir þessu með vögnum, sem daglega aka öllu brott, en sumpart með þéttriðnu neti af vandlega lokuðum ræsum neðanjarðar og vatnspípum úr steinlími eða járni. Oflugar vatnsdælur soga síðan alt þetta skolp og leðju með miklum straumhraða, og óhreinindin spýtast síðan langt út í sjó eða ár, sem fram hjá renna. Petta er þrifnaður, og þessum þrifnaði er það aðallega að þakka, að stórborgir, eins og Lundúnaborg, með 6 miljónum íbúa, á að fagna almennu heilsufari, sem er betra en víðasthvar annar- staðar, þrátt fyrir allan mannfjöldann. Að kóleran. sem barst til Hamborgar 1892 óx ekki um alla borgina og þaðan út um Ev- rópu, og að Svartidauði, sem fluttist til Vínarborgar 1898 og Glasgów 1899 ekki breiddust út um löndin, var einnig aðallega að þakka þrifnaði þessara borga. Sóttvarnir eru, með öðrum orðum að mestu leyti fólgnar í þrifnaði. Pað eru nú að vísu eigi allir sjúkdómar, sem unt er að stemma stigu fyrir með þrifnaði, en margir eru þeir, og ég hef þegar nefnt nokkra þeirra, en það má telja marga fleiri. Yfir höfuð má segja, að allir hinir svonefndu sóttnæmu sjúkdómar, og allir aðrir sjúk- dómar, sem lifandi sóttkveikjur valda, verði sjaldgæfari og vægari, þar sem þrifnaður er almennur. Pað er líka í sjálfu sér mjög skiljanlegt, hvers vegna einmitt þessir sjúkdómar láta undan
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Eimreiðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.