Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1906, Page 10

Eimreiðin - 01.09.1906, Page 10
I7Q sinni eru komnar, er mjög erfitt að halda höfðinu hreinu og safn- ast því næstum altaf mesti sægur af lúsum í alla geitnakolla. Skoði maður skófirnar í smásjá, kemur í ljós að þær eru samsettar af samanhangandi þéttu neti eða flækju af örþunnum þráðum, sem eru fléttaðir inn í hársvörðinn og hársræturnar. — Petta er sveppstegund, eigi ósvipuð myglu, sem lifir eins og önnur planta, en þrífst hvergi nema í hársverði mannsins, einkum barna og ein- ungis þeirra, sem illa eru hirt. Þess eru engin dæmi, að þeir fái geitur, sem daglega kemba og greiða hár sitt. Sjúkómurinn læknast ekki af sjálfu sér, en heldur áfram til dauðadags, ef ekkert er að gjört. Lækningin er erfið, þegar sjúkdómurinn er orðinn magnaður, og er eigi annarra meðfæri en lækna, en er þó ætíð vön að hepnast. Hún er fólgin í því, að reyta upp öll sjúku hárin og reyna að eyða sveppinum með hinum og þessum meðulum. KLÁÐI. Kláði er eigi jafn auðþektur sjúkdómur og geitur, og þess vegna er almetiningi eigi eins kunnugt um útbreiðslu hans; en hann er miklu algengari og í sumum héruðum landsins bólar árlega svo mikið á honum, að hlutaðeigandi læknar hafa” oft kvartað undan honum í skýrslum sínum til landlæknis. Sjúkdómurinn lýsir sér með sterkum kláðafiðringi og útslætti af smábólum eða örðum, oftastnær um úlfliði, ökla eða milli fingra, en getur breiðst þaðan út um alt hörund líkamans, ef hann er ekki læknaður í tíma. Sjálfkrafa læknast hann ekki. Orsök sjúk- dómsins er ofurlítið skorkvikindi, kláðamaurinn, sem er svipaður að stærð og lögun fjárkláðamaurnum. Petta litla kvikindi grefur sér göng í hörundinu, verpir þar eggjum og eykur kyn sitt. Kláðinn berst mann frá manni, og er býsna sóttnæmur og getur sýkt jafnvel þá, sem þrifnir eru, en oftast nær heimsækir hann einungis þá, sem vanrækja daglega ræsting hör- unds síns. LÚS. Pegar ég var krakki, lærði ég af öðrum krökkum þessa gátu: Hvaða dýr er það, sem ég á og þú átt, kóngurinn og drotningin og allar manneskjur? Pað var auðvitað lúsin. Petta sýnir þá trú, sem jafnvel til skamms tíma, og máske enn, er drotn- andi meðal alþýðu á íslandi, að lúsin sé svo að segja óaðskiljan- legur hluti líkamans, sem kvikni á mönnunum og fylgi þeim síðan alla æfi til grafarinnar! Lús er auðvitað jafn óeðlilegur gestur á hörundi líkamans og

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.