Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1906, Qupperneq 18

Eimreiðin - 01.09.1906, Qupperneq 18
x78 andlitinu enn í dag. Það var að vísu mórautt og veðurbarið og sjaldan hreint. Pað var orðið hrukkótt og ellilegt um leið og það var veiklulegt. En það hafði auðsjáanlega einu sinni verið fremur frítt. Pað hafði ekkert, sem eiginlega lýtti það. Munnurinn var hæfilega stór, nefið beint og andlitsfallið samsvarandi og viðfeldið. Augun voru brún og ekkert einfaldleg, en upplitið flóttalegt og ekki djarfmannlegt, að minsta kosti ekki nú orðið. Sama var að segja um vöxtinn. Pað var ekkert út á hann að setja, og hefði hún nokkurntíma verið myndarlega búin, gat vel verið að hún hefði verið snotur á velli. En hún var aldrei svo búin. Hún hafði líka allmikið svart hár sem hefði getað verið henni til prýði, hefði það nokkurntíma verið greitt. En það hékk alla jafnan niður um vangana og axlirnar í ósnoturri bendu. Sumir höfðu jafnvel þá skoðun, að Sigurlaug gamla væri ekki með öllum mjalla. Ég skal ekkert um það segja. Takmörkin eru oft svo óljós. Fleiri kunna að vera eitthvað geggjaðir en almenningur veit. Allir vissu að Sigurlaug gamla hafði eitt sinn orðið móðir, þótt það virtist nú næstum því vera að færast í gleymsku. Dreng- urinn hennar var nú uppkominn og orðinn hinn mannvænlegasti maður. Hann hafði lært að leika á orgel og stundaði það við sóknarkirkjuna. Allir í sveitinni höfðu heyrt hann leika á það, nema móðir hans, því hún fór aldrei til kirkju. Allir í sveitinni höfðu séð hann og haft tækifæri til að dást að honum, nema móðir hans, því hann forðaðist að koma þangað, sem hún átti heima. Pað kom að vísu flestum saman um, að hann væri mannvæn- legur maður og vel gefinn bæði til sálar og líkama, en hitt duldist mönnum heldur ekki, að hann leit mikið á sig. Flestum þótti það ljótt af honum, hve litla rækt hann sýndi móður sinni, en það var í raun og veru eðlilegt, því hann þekti hana ekki. Síðan hann var á hvítvoðungsaldri hafði hann aldrei séð hana nema með annarra augum. Sigurlaug spurði heldur aldrei um hann, en þegar gestir voru komnir og voru inni í herbergi húsbændanna og voru að minnast á son hennar, þá kom það fyrir, að hún settist á fletið sitt í frambaðstofunni og hlustaði gaumgæfilega eftir hverju orði. Hún heyrði þá bæði ljúft og leitt um hann talað. í*að var þunt móður eyrað, en sjalfsagt hafa ekki margir gefið því gaum og sumir ef
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Eimreiðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.