Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1906, Síða 20

Eimreiðin - 01.09.1906, Síða 20
i8o Hún bar það líka með sér, að hún hefði verið fremur lagleg í æsku; en það veit hamingjan, að hún var það ekki lengur. Hún var feitlagin í andliti og mjög hrukkótt, svo andlitið var ennþá óviðfeldnara fyrir fituna. Hún var öll jafn-hvítgrá yfirlitum og hrukkurnar og fellingarnar jafnt um alt andlitið án þess að mynda svip eða drætti. Það var sviplaus, ógreinilegur óskapnaður af fituhnyklum og hrukkum. Hún hafði tamið sér öll svipbrigði, eftir því, sem henni kom bezt í hvert skifti, án tillits til þess, hvort þau voru henni eiginleg eða óeiginleg eða hvort þau fóru henni vel eða illa. Pess vegna var hún nú sviplaus. Andlitið var á stöðugu fálmi eftir svipbrigðum, eins og öldugutlandi, sem enginn vindur beinir í stefnu. Pað bætti heldur ekki svipinn, að auga- brýrnar, sem voru litlar og næstum háralausar, lágu eins og úfnir fituklumbar uppi yfir augnalokunum. Hárið var þunt og talsvert farið að grána. Ofan á því hafði hún æfinlega skotthúfu, sem var svo stór, að hún huldi alt höfuðið að ofan og náði niður á enni að framan, en hnakkabein að aftan. Margar voru getur gárunganna um það, hvers vegna hún hefði svona stóra húfu. Peir góðgjörnu sögðu, að það væri af því, að hún væri búin að missa hárið uppi á höfðinu, auminginn, og þyrfti húfunnar við til skjóls; hinir héldu nú, að það væri af einhverjum lakari ástæðum. En gátan varð aldrei ráðin, því enginn vildi vinna það til þess að komast fyrir sannleikann, að rannsaka hverju húfan skýldi. Eitt vissu menn, og það var það, að Geirlaug forðaðist að taka af sér húfuna, svo nokkur maður sæi. En hún var hneigð fyrir að ganga þokkalega til fara og þvoði sér oft í framan — alveg á sama hátt og kötturinn. — Hún nuddaði feitu kinnarnar þangað til þær fóru að roðna og glansa, en hirti ekki um að þvo upp úr hrukkunum og fellingunum, svo þær voru alla jafnan svartar í botninn. Hún var framhleypnin sjálf, hvar sem hún var stödd, sí- malandi og sérlega lagin á það, að tala eins og hverjum þóknaðist. Hún hafði líka eitthvert blessað lag á þessu feita, hrukkótta andliti sínu, að láta það skína af gleði, og þakklæti og velþóknun þegar svo bar undir, en gat hengt yfir það einhvern vellulegan sam- hrygðarsvip, þegar henni þótti það við eiga. Og þó engum dytti í hug að kalla hana greinda, kunni hún þó furðanlega tökin á húsfreyjunum í sveitinni og kom sér yfirleitt vel við þær. Hún gerði þær að vísu fljótt leiðar á sér, hverja eftir aðra. En hún

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.