Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1906, Síða 34

Eimreiðin - 01.09.1906, Síða 34
i94 sættina, svo hún þyrfti aldrei að skifta sér af því framar, og þetta hélt hann trúlega, meðan honum entist aldur til. Hún gat því fremur gengið inn á þessa skilmála, sem þeir voru alger uppgjöf frá Jóns hendi. Hún kærði sig í raun og veru ekkert um að hindra hjónaband þeirra, hans og systur sinnar. Hún kærði sig ekkert um hann framar og var sama hvað um hann yrði. Hún hafði nú náð sér niðri á honum og óskaði ekki frekari hefnda, Pað, sem fyrir henni vakti mest af öllu, var, að tryggja barninu sínu framtíð. Og hún var ekki í efa um, að því mundi líða betur á góðu heimili, en ef það væri á flækingi með sér. Pessi sáttmáli var gerður skriflega og Jón undirskrifaði hann með skjálfandi hendi. Sigurlaug handsalaði prestinum nafn sitt, því hún var ekki skrifandi. Svo skrifuðu þeir undir sem vitundar- vottar presturinn og bóndinn á bænum, og presturinn jafnframt sem ábyrgðarmaður frá Jóns hálfu, fyrir því, að samningurinn yrði haldinn. Pegar þessu var lokið, fékk Sigurlaug ákafa grátkviðu. Hún hafði aldrei grátið jafn-beisklega fyr, svo nokkur maður hefði séð. Það var yíir þeirri tilhugsun, að þurfa að slíta barnið sitt frá sér. — Presturinn tók barnið heim til sín nokkrum dögum seinna og ætlaði að hafa það hjá sér fyrsta árið með þeirri meðgjöf, sem um var samið. Við sama tækifærið var það skírt, og hlaut dreng- urinn nafnið Baldvin. Eftir það sá Sigurlaug aldrei barn sitt. Pað var þessi sami Baldvin, sem nú var orðinn forsöngvart °g organisti við kirkjuna, þar sem móðir hans hafði barist fyrir rétti hans og farsæld. Hann hafði alist upp á þessu tiltekna, góða heimili, junz hann var upp kominn. Pá settist hann að hjá föður sínum. Hálfbróðir hans og systrungur var þá einnig upp kominn og kom þeim mjög vel saman. — Upp frá þessu var líf Sigurlaugar sem innibyrgt. Engan geisla hamingju eða ánægju lagði þangað framar. Pað varð „kalt og myrkt og kyrt eins og gröfin. Pað varð að gröf sorga hennar og minninga. Hún varð nú aftur vinnukona og var það upp |frá þessu.

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.