Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1906, Page 38

Eimreiðin - 01.09.1906, Page 38
198 A. P. Berggreen. ANDREAS PETER BERGGREEN sönglagasmiður og söngritahöf- undur er fæddur í Kaupmannahöfn 2. marts 1801. Faðir hans var sænskur, fæddur í Stokkhólmi, en móðir hans dönsk, dóttir Lynge hér- aðslæknis í Friðriksborg. 10 ára gamall var Berggreen ungi tekinn til fósturs af móðurföður sínum og settur í Friðriksborgar lærða skóla. Lynge var hinn mesti sönglistar vinur og heimili hans sönglistar heimili og hafði það mikil áhrif á B. Ekki naut hann mikillar tilsagnar í sönglist nema lítillega á flautu og áttu hinar fyrstu tilraunir hans í sönglagagerð, er hann tók að bera við 14—15 vetra gamall, við það hljóðfæri. Einmitt um það skeið var sönglist mikið höfð um hönd á heimilum í Friðriksborg og tók K. talsverðan þátt í því; enda skólinn hafði í þessa stefnu áhrif á hann, þar sem yfirkennarinn við hann, hinn hámentaði ágætismaður F. P. J. Dahl1, sem sjálfur var hinn mesti söng- vinur, sönglærður vel og snillingur á flautuspil, veitti honum örfandi og mentandi leiðbeiningu og sérstaklega vakti tilfinningu hans fyrir fegurð og einkennileik alþýðlegra sönglaga (Folkemelodier). 1819 fór hann til háskólans, og gekk undir examen ártium og fékk aðra einkunn. Hafði hann þá að vísu ráðið með sjálfum sér að leggja stund á sönglist, en fyrir orð þeirra, er að honum stóðu, tók hann að lesa lög. Samt leið ekki á löngu að hann hætti við lögin og sneri sér alhuga að sönglistinni. Hann komst í kynni við Weyse, tónameist- arann fræga, sem yfirskoðaði sönglagasmíðar hans og gaf honum margar góðar bendingar, en veitti honum samt ekki tilsögn eða gerðist kenn- ari hans. Kennara hafði B. engan, hann mentaði sig sjálfur. Pegar hann varð stúdent hafði hann komist á Garð (Regensen) og varð hann skjótt alt í öllu hjá stúdentum að því er sönglist snerti og stjórnaði fleirrödduðum söng þeirra. Og eins eftir að hann var kominn út af Garði var hann jafnt sem áður hinn handgengnasti stúdentum og leið- beindi þeim í sönglegum efnum. Meðan hann enn var á Garði samdi hann lögin við Flokk þann (»Kantate«), er sunginn var á 200 ára »Regens«- hátíðinni (1823), og þá var það sem í fyrsta sinni gaf að heyra eitt hið afhaldnasta lag hans: »Kong Christian lægger ned sit Sværd.« 1833 gaf hann út »Sange for Studenterforeningen«, og var það söngva- safn undanfari þess að stúdentasöngfélagið (Studentersangforening) var stofnað (1839). B. réðist nú í stærri verk og samdi söngsjónleik einn (Opera) í þremur þáttum »Billedet ogBusten* með Ijóðtexta eftirdanska þjóðskáldið, Oehlenschláger. Honum og Oehlenschláger var mjög vel til vina og var B. mikill aðdáari hans. Oehlenschláger, Weyse og Goethe voru þeir menn, sem B. hafði einna mestar mætur á af andans mönnum í þá daga. Hann samdi og lög, er heyrðu til ýmsra sjónleika Oehlen- schlágers, og byrjaði að gefa út »Musikalsk TidsskrifU hið fyrsta söng- 1 Sbr. Berggr.: Sange til Skolebrug« 2. hefti, sem tileinkað erDahl; sbr. enn- fremur »Vor Ungdom« Bidrag til F. P. J. Dahls Liv. S. 664—665.

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.