Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1906, Page 54

Eimreiðin - 01.09.1906, Page 54
214 VIII. HRÍÐ. I grámyrkri bylur með galdraraust þylur, — ég galdrana skil ei, sem stormurinn þrumar, — í ljóð-strengja-spilinu’ er ljós mitt og ylur, sem lyftir mér til ykkar, vorið og sumar! Ég syng fyrst mig langar, og sál mín fékk strengi, þó söngur minn fangelsin andlegu’ ei sprengi, svo sofna’ eg í fanginu’ á angandi engi, en yrki nú þangað til — guð veit hvað lengi. Ólöf Sigurbardóttír. Bjartsýni og svartsýni. Éað má skifta öllu kyni mannanna með einni aðalskiftingu í tvo flokka: bjartsýnismenn og svartsýnismenn. Bjartsýnismaðurinn er léttlyndur, hefir sterka trú á fram- tíðinni og traust á mönnum; hann trúir á hið góða sem skapandi og sigrandi kraft, er alt af sé að ná meiri og meiri fullkomnun í heiminum. Hann kannast við, að örvæntingarskuggar svífi yfir og í mannlífinu, en hann sér sól ánægju og gleði skína gegnum hvert mótlætisský og kasta friðarbjarma á allan heiminn. Honum er það jafnljóst, að eins og einn sólskinsdagur getur ekki breytt vetrarmánuðunum í sumar, þannig er óhapp engin sönnun fyrir því, að alt lífið sé samanhangandi mishappa og harma tíð. Hann hefir komist að raun um að aðeins sá, sem sáir, getur vænt uppskeru, en sá, sem engu vogar, getur einskis vænt. Svartsýnismaðurinn aftur á móti er höfundur efasemdar- innar og óttans, tortrygninnar og deyfðarinnar; hann sér alstaðar eymd og afturför og segir »heimur versnandi fer«. Sakir ótrúar sinnar á lífinu og heiminum sér hann yfir vofa óhöpp og sorgir og hinn eyðandi kraft altaf vera að fá meiri og meiri yfirráð; hann viðurkennir enga framsókn eða framþróun og er vantrúaður

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.