Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1906, Side 69

Eimreiðin - 01.09.1906, Side 69
229 greinar um mál vor og benda þær yfirleitt á, að það sé nú almennur vilji meðal Dana, að gera íslendinga ánægða. Pað eru því sem stendur beztu horfur á, að oss takist að fá kröfum vorum fram- gengt, ef ekki skortir samtök og eindrægtii vor á meðal. Og að því er þessi mál snertir er vonandi að allir sannir ættjarðarvinir leggist á eitt, án tillits til flokka eða nokkurs annars, sem á milli ber. Dm innanlandsmálin getum vér barist eftir sem áður, og um þau á baráttan ekki niður að falla. En út á við eigum við að standa allir í þéttri fylkingu og láta hvérgi riðlast. Látum okkur nú sýna, að ísland á sonu, sem meta sjálfstæði þess og frelsi framar öllu öðru. Til þess var góð byrjun gerð á þinghúss- fundinum í Kaupmannahöfn 29. júlí. Látum framhaldið verða að sama skapi — ekki einungis meðal þingmanna, heldur hjá allri íslenzku þjóðinni. fá er óhætt að spá því, að nýr dagur rennur upp fyrir Island — nýr sólskinsdagur! V. G. Ritsj á. ÚR DULARHEIMUM. Fimm æfintýri. Ritað hefir ósjálfrátt Gubmundur Jónsson. Rvík 1906. Engum, sem vit hefir á og ekki hefir ofstækisvagl á auga, mun blandast hugur um það, að æfintýri þessi séu fögur, bæði að efni og búningi. Þau hníga að vísu öll að einu efni og einni stefnu, en með- ferðin er svo skáldleg, einkum í tveim hinum síðustu, að þau mega gersemi kallast. Þeir, sem þau eru eignuð, þyrftu því alls ekki að fyrir- verða sig fyrir þau. Þeir eru fullsæmdir af þeim. En hvort æfintýri þessi eiga nokkuð skylt við þau nöfn, sem sett eru í samband við þau, álítum vér óþarft að ræða. Vér teljum að sjálfsögðu þann höfund þeirra, er komið hefir þeim á pappírinn, hvort sem hann hefir ritað eftir annarra innblæstri eða eigin hugsun einni. En jafnframt getum vér þó ekki bundist að geta þess, að það megi undur heita, að 17 ára unglingur í 2. bekk lærða skólans skuli geta ritað af svo mikilli snild. Því sannast að segja hefðum vér fyrirfram ekki getað trúað neinum núlifandi íslendingi til þess, nema Einari Hjörleifssyni einum. Með þessu viljum vér þó engan veginn gefa í skyn, að hann eigi nokkurn þátt í þeim, enda væri slíkt óhæfa, þar sem fyrir liggja vottorð um hið gagn- stæða frá mönnum, sem engum kemur til hugar að rengja. En hitt virðist oss ljóst, að sá, er æfintýrin hefir ritað, hafi rækilega kynt sér stílsmáta E. H.s og verið hrifinn af honum, því í æfintýrunum þregður

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.