Vísir - 18.08.1962, Blaðsíða 3

Vísir - 18.08.1962, Blaðsíða 3
Laugardagur 18. ágúst 1962. VÍSIR 3 Málverkið á veggnum er af Arnold Leese, sem stofnaði brezka nazistaflokkinn á árunum fyrir stríð, eða National Socialist Party. Þá var merki flokksins hakakrossinn eins og hjá þýzku nasistunum og var það borið á armbindi með brezka fánanum. Nú er hakakrossinn bannaður og í stað hans kemur hringur með krossi í. Það hefur lengi verið á vitorði almennings í Bretlandi, að bækistöð nazistaflokks Iandsins hefur verið í húsi einu við Princedale-götu í vesturhluta Lundúna- borgar. Nágrönnunum hefur verið lítt gefið um þann hóp manna sem þar hefur haldið sig og þá gesti sem þar ber að garði. Þetta er fjögurra hæða gamalt múrsteins hús og notaði nazistaflokkurinn allar efri hæðir hússins undir skrifstofur sínar. Þolinmæði lögreglunnar. En nú í sumar hafa nazistarn- ir farið að verða uppivöðslusam- ir. Þeir hafa efnt til útifunda víðs vegar í Englandi og þeim lyktað öllum á sama hátt með ryskingum og óreglu. Þá bættu þeir gráu ofan á svart með því að smygla bandaríska nazista- foringjanum Rockwell Kent inn í landið þvert ofan í bann innan- rlkisráðuneytisins. Þá fannst brezku lögreglunni kominn tími til að kanna bet- ur hvað væri á seyði innan veggja hússins við Princedale- road. Lögreglan hafði að vísu þegar komizt yfir nokkrar ljós- myndir af starfsemi nazista í húsinu, sem birtast nú hér við hliðina og sýndu að myndir af Hitler og Rudolf Hess hengu þar á veggjum og liðið var þjálfað í áflogum. Húsið umkringt. Fyrir nokkrum dögum lét lög- reglan til skarar skríða. Hún um kringdi húsið meðan tólf leyni- lögreglumenn úr sérstakri deild Scotland Yard gengu inn í húsið. Þetta gerðist kl. átta að morgni Nazistaforinginn Colin Jordan sat þegar við skrifborð sitt, þegar barið var harkalega að dyrum hjá honum. Eru þ'etta kommúnistar sem eru að ráðast á okkur hrópaði Jordán, þreif upp stól og ætlaði að snúast til varnar. En það varð strax ljóst að lögreglan var kom- in, ellefu lögreglumenn og ein lögreglukona. Skjölum dembt í poka. Húsleit hófst og verkamenn komu með stóra poka. I þá var dembt öllum skjölum sem fund- ust í skápum og hillum. Skjala- bindin voru opnuð og allt sett í pokana. 1 þá fóru einnig leðurstígvél, gráar nazistaskyrtur, nazistafán ar>3g nazistamerki hvers konar. Bókum, bæklingum og flugrit- um var raðað i kassa og allt bor- ið niður stigana upp í stóran sendiferðabíl, sem hafði verið ekið upp að útidyrunum. Leitað var á níu starfsmönn- um. Sex þeirra voru karlmenn og þrjár konur, sem kvenlög- reglumaðurinn leitaði á. Tilgang urinn var m.a. að leita að vopn- 1 bækistöð nazistanna er ungum liðsmönnum kennt að\ slást eins og stormsveitarmönnum. Og yfir þeirri athöfn blasir risastór mynd af Rudolf Hess. Nazistamir geyma myndir og grammófónplötur, sem eru endurminningar frá stórveldisdögum þýzku nazistanna. Af veggnum horfir sjálfur fuglahöfðinginn Adolf Hitler niður á bessa uneu menn með mestu velbóknun. um, en þau fundust ekki nema ein startbyssa. Myndir teknar af veggjum. Auðvitað gleymdu lögreglu- meiínirnir e’8J:ITað”taka ofan af veggjunum myndirnar af Hitler og Rudolf íless og af Arnold Leese stofnanda enska nazista- félagsins „Imperial fascist lea- gue“. All mikill mannfjöldi hafði safnazt, saman kringum anddyr- ið, -kringum 200 manns, þegar farið var að bera munina út. Rak fólkið upp hlátur þegar það sá myndina af Rudolf Hess en kurr fór um mannfjöldann er hann sá myndina af Hitler. Húsrannsókin stóð yfir í rúm- nr tvnnr kliikktistundir. F.nninn nazistaforsprakkanna var hand- tekinn og siðar um daginn fengu blaðamenn inngöngu til foringj- ans Colin Jordans, þar sem hann sat við tæmt skrifborð sitt. Auðvitað Gyðingar. Við bjuggumst alltaf við þvl að lögreglan yrði send af stað til að ofsækja okkur. Það eru auðvitað Gyðingar sem standa fyrir þvl. Þeir eru mjög áhrifa miklir f Englandi, sagði Jordan, og ráða öllu í lögreglunni.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.