Dagur - 06.07.1999, Page 9
8- PRIDJUDAGV R 6. JIÍLÍ 1999
ro^u-
ÞRIDJUDAGU R 6. JÚLÍ 19 9 9 - 9
FRÉTTASKÝRING
L
FRÉTTIR
Móðurskólar í náttúniiræði
Börn að læra um náttúruna. Fjórir grunnskólar hafa verið styrktir sem móðurskólar í náttúrufræðikennslu. Meðal annars hugsað sem viðbrögð við aukinni inniveru barna.
| FRIÐMK
I ÞÓRGUÐ-
J MUNDSSON
SKRIFAR
Þróimarsjóður gruim-
skóla Reykjavíkur út-
hlutaði á dögunum
átta uiilljónum króna,
hvar af tæplega sex
milljónir renna til
svokallaðra „móður-
skóla“. Móðurskóli
fær þannig styrk úr
sjóðnum til að „móta
stefnu og vera í farar-
hroddi“ á tilteknu
sviði og á síðan að
miðla af reynslu sinni
og þekkingu til kenn-
ara annarra grunn-
skóla.
Á síðasta skólaári voru þrjú móð-
urskólaverkefni í gangi. Folda-
skóli var í nýsköpun, Grandaskóli
í tölvukennslu og Selásskóli í
skólasafnakennslu. Þessir skólar
fengu nú hver 900 þúsund króna
framhaldsstyrki um sömu verk-
efni. Auk þess fá Ijórir skólar nú
800 þúsund króna styrk til að
þróa sig sem móðurskólar í nátt-
úrufræðikennslu; Hagaskóli,
Melaskóli, Hólabrekkuskóli og
Selásskóli.
Aðspurð um hvað síðasttöldu
skólarnir eigi að gera sem móður-
skólar í náttúrufræðikennslu seg-
ir Anna Kristfn Sigurðardóttir,
deildarstjóri kennsludeildar
Fræðslumiðstöðvar Reykjatdkur,
að þeir eigi að þróa sérstaklega
kennslu í þessu fagi og sérhæfi
sig hver á sínu sviði innan nátt-
úrufræðinnar.
„Þeir mundu vera til fyrirmynd-
ar í einu og öllu og taka á móti
kennurum úr Reykjavík, halda
námskeið, vera með tilrauna-
kennslu og hugsanlega þróa
námsefni, kennsluefni og annað.
Aðrir skólar eiga að geta sótt til
þeirra ákveðna fyrirmynd í starf-
inu. Hver skóli setur sér áætlun,
byrjar á því að hafa námskeið fyr-
ir alla kennara skólans og með
hvetju verkefni er sérstakur um-
sjónarmaður."
Vinnan hefst á námskrárvinnu
og að byggja upp aðstöðuna í
skólunum og þróa kennsluaðferð-
ir. „Eftir það eiga skólarnir að
auglýsa sérstaka heimsóknartíma,
bjóða öðrum skólum að koma til
að kynna sér starfið og bjóða upp
á aðstoð fyrir þá skóla sem vilja
taka slíkt starf upp hjá sér.
Reynslan af þeim móðurskóla-
verkefnum sem hófust á síðasta
skólaári sýnir að þetta tekur
nokkurn tíma að komast vel af
stað og byggja þetta upp innan
frá. Þessir skólar byijuðu í vor að
bjóða upp á námskeið fyrir aðra
skóla, eftir að hafa byggt sjarfið
upp innan frá í allan vetur. Það er
því ekki hægt að segja að þetta sé
byrjað að virka að ráði út á við
onnKá(
Fyrinnyndarskólar á sinu
sviði
Anna Kristín segir að Fræðslu-
miðstöðin bindi nokkrar vonir við
að vel gangi í þessu þróunarstarfi.
„Það fer nánast allur peningurinn
úr Þróunarsjóði grunnskóla
Reykjavíkur í þetta, en fram til
þessa hafa aðallega einstök og
óskyld verkefni verið styrkt. Þetta
er ákveðin stefnubreyting. Að fara
þessa leið á að tryggja hvort
tveggja, að það verður til ákveðin
þekking og sérhæfing og að aðrir
hafi aðgang að einhverju slíku til
að kynna sér. Hugmyndin er f
sjálfu sér einföld; það er verið að
hvetja til að búa til fyrirmyndar-
skóla á ákveðnum sviðum og ef
vel tekst til getur þetta reynst öðr-
um skólum vel, ekki bara í borg-
inni heldur á öllu Iandinu."
Anna Kristín segir að það hafí
áður tíðkast að hvetja skólana til
að marka sér sérstöðu, en að þá
hafí Iítið verið gert til að gera
skólunum slíkt auðveldara. „Það
hefur verið gert ráð fyrir því í
grunnskólalögum að skólarnir
marki sér sérstöðu og í skóla-
námskrá á það að koma fram, en
það hefur ekki virkað nema mjög
takmarkað. Og þá aðallega vegna
fjárskorts," segir Anna Kristín.
Auk ofangreindra móðurskóla
valdi menntamálaráðuneytið Ár-
bæjarskóla til að vera „kjarna-
skóli“ í upplýsingatækni á lands-
vísu og fékk skólinn eina milljón
úr Þróunarsjóðnum og aðra millj-
ón frá ráðuneytinu. Ártúnsskóli
hlaut 600 þúsund króna styrk til
að vinna að sjálfsmati og Álfta-
mýraskóli hlaut 200 þúsund
króna styrk til verkefnis er nefriist
„Kennarinn og bekkurinn hans“,
en markmið þess er að auka gagn-
virk samskipti milli kennara,
nemenda og foreldra. Loks fékk
framhaldsskólinn Borgarholts-
skóli styrk vegna málmiðnaðar-
námskeiða sem haldin eru fyrir
grunnskólanemendur í Grafar-
vogi, en verkefnið hefur að meg-
inmarkmiði að auka áhuga grunn-
skólanemenda á iðngreinum.
Kennt úti fyrstu tvær
viluirnai
Skólarnir tjórir sem verða móður-
skólar í náttúrufræði sérhæfa sig
á sérstökum sviðum náttúrufræð-
innar og taka sumarið í að móta
verkefnið. Þó liggur íyrir að Selás-
skóli ætlar sér að verða móður-
skóli á sviði umhverfis- og úti-
kennslu.
Sigrún Helgadóttir, náttúru-
fræðingur og fagstjóri í Selás-
skóla, segir að vinna sé þegar far-
in af stað og síðustu tvær vikum-
ar hafí undirbúningsstarfið hafíst.
„Það var samþykkt á kennara-
fundi í vor að næsta haust færu
fyrstu tvær vikurnar í september
meira eða minna í kennslu úti við.
I undirbúningsvinnunni höfum
við lagt til grundvallar nýju aðal-
námskrána, en það eru ákaflega
mörg markmið þar sem hægt er
og nauðsynlegt er að vinna úti,
bæði reyndar í náttúrufræði- og
samfélagsgreinum."
Sigrún segir að það sé ansi
margt sem sé í rauninni auðveld-
ara að gera úti en inni. „Því mið-
ur er það svo að krakkar eru alltaf
meira og meira inni við. Þau eru
inni daginn út og daginn inn,
meira að segja í íþróttum. Og þau
eru gjarnan keyrð á milli staða.
Áður fyrr voru krakkar heilmikið
úti. t.d. að vrúska í fíöru eða skúr-
um, en í dag grúska krakkar gjarn-
an inni - á Netinu. Aðrar þjóðir
hafa mætt þessu meðal annars
með stóraukinni útikennslu eða
með öðrum orðum með því að
færa kennsluna út fyrir veggi skól-
ans. Það er augljóslega miklu
betra að kenna börnunum um
samfélagið og náttúruna fyrir
utan veggi skólans."
Sigrún segist hafa rekið sig á að
krakkar á Islandi kunni varla að
vinna úti. „Þau eru orðin svo vön
því alla sína ævi að það að fara út
þýði eingöngu að fara að leika sér.
Þau eru ekki vön því að fara út til
að vinna einhver verkefni. Það
blasir því við að það, að fara með
þau út og láta þau vinna ýmis við-
fangsefni, mun opna þeim nýjar
víddir í tilveruna. Þau læra að Iesa
landið, skilja landið og umhverfið.
Það skiptir miklu máli að krakk-
arnir sitji ekki allan tímann á stól
við borð.“
Grenndarnám og umhverfis-
stefna
Sigrún segir að þótt færa eigi
kennsluna í meira mæli en áður
út fyrir veggi skólans þá þýði það
ekki hið sama og að flækjast með
börnin í rútu landið þvert og
endilangt.
„Við ætlum að Ieggja áherslu á
að krakkarnir kynnist nánasta
umhverfi sínu og tengist þvf.
Skólarnir hafa mikið brennt sig á
því að útikennsla þýði að það
þurfi að fara eitthvað, kaupa rútu
og svo framvegis. Við viljum held-
ur að börnin Iæri á sitt nánasta
umhverfi. Krakkarnir sem eru að
koma úr sex ára bekk myndu fá
að átta sig á skólanum, hvernig
Ióðin er og hvernig þau rata f
skólann, en eftir því sem ofar
dregur í aldursstiganum yrði
námið umfangsmeira. Það er
hægt að vinna ýmis konar verk-
efni í umhverfi sínu; skoða hús,
form og liti, átta sig á kortum og
áfram mætti telja. Áuk þess erum
við svo heppin að hafa skemmti-
lega náttúru rétt við skólann eins
og Elliðaárdalinn. En lengra för-
um við ekki nema í mjög litlum
mæli. Við höldum okkur því fvrst
og fremst í okkar nánasta hverfi
og umhverfi. Það má í rauninni
kalla þetta grenndarnám," segir
Sigrún.
Sigrún segir að Selásskóli hafi
mótað sér sérstaka umhverfis-
stefnu og áð síðastliðið haust hafi
verið byrjað að hrinda henni f
framkvæmd. „Þá byrjuðum við að
flokka allan pappír og skola allar
drykkjarfernur og skila þeim inn.
Nú er verið að smíða handa okk-
ur safnkassa til að taka við öllum
lífrænum leifum og framleiða þar
með mold. Þetta Iæra börnin og
vonandi hjálpar þetta þeim síðar
meir í lífinu, þegar þau þurfa að
taka þátt í lýðræðisþjóðfélaginu
og taka afstöðu til ýmissa mála,
svo sem landnýtingar. Umhverfis-
málin eru orðin svo stór þáttur í
öllu samfélaginú að það er mjög
mikilvægt að undirbúa krakka
undir það, að geta verið virkir
þátttakendur í þeim eins og öðr-
um málum. Við erum vitaskuld
ekki að tala um áróður af okkar
hálfu, en við reynum að auka
bekkingu fólks þannig að það geti
verið fært um að taka sjálft af-
stöðu,“ segir Sigrún.
Uppbygging hcildstæðrar nátt-
úrufræðikennslu
Sigrún segir að fyrst og fremst
muni kennslan á sviði umhverfis-
mála fara fram undir jákvæðum
formerkjum. „Við viljum skoða um-
hverfið og reyna að njóta náttúr-
unnar og Iæra að þekkja hana. Við
munum um leið leggja minni
áherslu á ýmsar neikvæðar hliðar,
sem gjarnan er þó það fyrsta sem
fólki dettur í hug, það er mengun,
ofnýtingu og þess háttar. Á þessu
stigi er réttara að leggja áherslu á
það sem er fallegt og gott. Hitt
kemur þá síðar. Við teljum hvað
krakka snertir betri aðferð að Iegg-
ja áherslu á hið jákvæða, frekar en
að láta þau bara tína rusl og bæta
fyrir syndir annarra. Áhersla á
vandamál og árekstra verður að
bíða síns tíma,“ segir Sigrún.
Ragna Olafsdóttir, skólastjóri
elaskóla, segir að sérhæfing skól-
.is muni ekki endanlega ráðast
rr en í ágúst, þegar umsjónar-
kennarar skólanna og fólk frá
Fræðslumiðstöð Reykjavíkur leggja
Iínumar nánar.
„Við höfum þegar falið þremur
kennurum að halda utan um þetta
hjá okkur og þótt við séum ekki
búin að fastmóta okkar svið þá er
ljóst að möguleikamir eru margvís-
legir. En það er stutt í íjöruna fyrir
okkur og það má gera ráð fyrir því
að við skoðum sjávarlífið nokkuð."
Ragna segist sjá ýmsar jákvæðar
hliðar við það fyrirkomulag sem í
mótun er með móðurskólunum.
„Ég sé í þessu tækifæri til að byrja
að byggja upp nokkuð heildstæða
náttúrufræðikennslu í grunnskól-
anum, sem okkur ber að gera. Með
því að sett er í þetta sérmerkt fjár-
magn er það mikill styrkur fyrir
skólann í því starfi. Sem síðan á að
gera okkur kleift að miðla öðrum af
þeirri þekkingu sem safnast fýrir
innan skólans. Þetta styrkir því í
senn náttúrufræðikennslu barn-
anna og kennara skólans og þeir
miðla síðan af sinni reynslu til
kennara annarra skóla,“ segir
Ragna.
Sú/an EA frá Akureyri var í gær austur af Héraðsflóa á ieið á svæðið til leitar eftir að hafa landað um 450 tonn-
um á Neskaupstað, eða rétt hálffermi.
Aðeins hálfvirði
fyrir loðnima
Stærstu skipin að gera
sig klár á kolmuima-
veiðar, en þar hefur
Sveinn Benediktsson
SU nánast verið ein-
skipa.
Loðnuaflinn er á sumarvertið-
inni kominn í liðlega 27 þúsund
tonn af 575.850 tonna kvóta og
hefur mestu verið landað á
Siglufirði, enda hefur verið einna
styst þangað af miðunum. Síð-
ustu daga hefur það litla sem
veiðst hefur fengist djúpt norður
af Langanesi. Verðið sem skipin
fá fyrir loðnuna hjá síldanærk-
smiðjunum, en öll Ioðnan fer til
bræðslu, er aðeins 4000 krónur á
tonnið en var í fyrra um 7000
krónur, éða hartnær helmingi
hærra og er ástæðan mestmegnis
lágt afurðaverð erlendis. Segja
má því að ekki sé fiskað nema
rétt fyrir olíu og kaupi áhafnar-
innar, sem auðvitað er skömm-
inni skárra en að liggja \ið bryg-
gju. Það blæs þ\i ekki byrlega um
þessar mundir fyrir þeim útgerð-
um sem leggja allt sitt undir upp-
sjávarfiskveiðar, því verð á síldar-
afurðum hefur sjaldan verið
lægra.
Súlan EA frá Akureyri var í gær
austur af Héraðsflóa á Ieið á
svæðið til leitar eftir að hafa
landað um 450 tonnum á Nes-
kaupstað, eða rétt hálffermi. Það
tók fimm daga að ná þessum 450
tonnum eftir að flækst hafði ver-
ið fram og til baka um miðin
norður og norðaustur af landinu.
Þó hefur flotinn ekki farið mikið
vestur fyrir Kolbeinseyjarhrygg-
inn, enda þar lítið að hafa nema
smáloðnu. Þessa dagana eru um
15 skip á þessu kroppi eða við
leit.
Stærstu skipin, þ.m.t. Beitir
NK frá Neskaupstað, eru að gera
sig klár á kolmunnaveiðar, en
veiðisvæðið er suður af Hval-
baksgrunni. A þær veiðar geta
aðeins stærstu skipin farið þar
sem þau þurfa að vera útbúin
flottrolli til veiðanna. Engin
kvóti er enn á kolmunnaveiðun-
um og þar hefur aðeins eitt skip
verið á veiðum að undanförnu,
Sveinn Benediktsson SU, skip
SR-mjöIs sem Iandað hefur á
Seyðisfirði, enda mestu landað
þar, eða 8 þúsund tonnum af 24
þúsund tonna veiði á vetrar- og
sumarvertíð 1999. - GG
Gjöld nmfram
Nokkrir kostnaðarliðir hjá Akur-
eyrarbæ hafa verið til endurskoð-
unar að undanförnu og er Ijóst
að gjöld reynast sums staðar
hærri en áætlanir gerðu ráð fyrir.
Þannig samþykkti bæjarráð
Akureyrar fyrir skemmstu að
Sundlaug Akureyrar fengi auka-
íjárveitingu til framkvæmda sem
nemur 4,3 milljónum króna.
Rekstur Strætisvagna Akureyrar
hefur verið kostnaðarsamari en
ráð var fyrir gert og hefur bæjar-
ráð samþykkt aukafjárveitingu
sem nemur rúmum 2,2 milljón-
um vegna þess. Bæjarráð staldr-
aði hins vegar
\áð þegar kom
að beiðni um
aukaljáveit-
ingu vegna
gatnagerðar
og fráveitu-
mála. Bæjar-
ráð hefur
Asgeir Magnus- beint þeim til.
son, formaður mælum u]
framkvæmda framkvæmda-
nefndar. nefndar að
leita allra leiða
til þess að lækka beiðni um við-
bótarfjárveitingu vegna gatna-
áætlun
gerðar. Jafnframt óskaði ráðið
eftir endurskoðaðri áætlun um
tekjur af gatnagerðargjöldum
ársins.
Ásgeir Magnússon, formaður
framkvæmdanefndar, segir hvað
SVA varðar, að veikindi starfs-
manna og barnsburðarleyfi eigi
mestan þátt í hærri gjaldaliðum
þar. Sundlaugin sé „eins og hún
sé og enn verið að skoða það“ en
hvað gatnagerðargjöldin varði sé
um að ræða mjög mikinn auka-
kostnað frá áætlun vegna snjó-
þungs vetrar. - Iil>
Kenni á fÓOJS
Tímar eftir
samkomulagi
Ingvar Björnsson
ökukennari frá KHÍ Akurgerði 11b, Akureyri
Sími 899 9800 Heimasími 462 5692
ÖKUKEIMIXISLA
Útvega öll gögn sem með þarf.
Aðstoða við endurnýjunarpróf.
Greiðslukjör.
JÓN S. ÁRIMASON
Símar 462 2935 • 854 4266
TÍl/IAR AÐ ÓSKUM NEMENDA.