Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.1986, Blaðsíða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.1986, Blaðsíða 31
FIMMTUDAGUR 11. SEPTEMBER 1986. 31 i>v Sandkom Páll ætlaði aö sjá um gerö „The Golden Circle" en ekkert varö af þvi. Gullni hringurinn Túristarútan Þingvellir - Gullfoss - Geysir er oft kölluð „gullni hringurinn." Ekki vit- um við nein deili á þeim sem var svo hugmyndaríkur að finna upp þessa nafngift en hann ætti vitaskuld að verð- launa á einhvem hátt. Á hinn bóginn vita menn um mílulanga videomynd sem gerð var um hringinn. Upphaf þeirrar sögu er það að búnað- arsamband héraðsins ákvað að gera heimildarmynd um sveitina og þá sem þar búa. Páll Magnússon, fréttastjóri Stöðvar 2, átti upphaflega að hafa umsjón með myndgerð- inni. En hann gekk úrskaft- inu og ákváðu bændur þá að sjá um þetta sjálfir. Var nú lagt af stað með upp- tökuvélina og bændur og búalið myndað á traktomum, með hrífuna, í smalamennsku, við mjaltir og öll önnur hugs- anleg sveitastörf. Var myndað bæði á jörðu niðri og úr lofti. Þegar nóg þótti að gert stóðu myndgerðarmennirnir uppi með yfirgengilegt magn af efni sem enginn hefði enst til að horfaáíeinni lotu. Á endanum varð það svo úr að efni úr heimildasafninu var notað til að búa til 20 mínútna langa mynd. Henni er einkum ætlað að kynna sveitina á er- lendri grundu og því mun hún einkum seld í minjagripabúð- um hér. Og myndin ber nafn, sem myndi sóma sér á hvaða krimmafilmu sem væri: „The Golden Circle." Það var ekkert númer skrlfaö ð sim- ann. Þaðvar lóðið Það kunna fleiri að bjarga sér út úr vandræðum en hann Ómar Ragnarsson. Nýlega fréttum við af konu einni sem hugðist drýgja tekjumar með því að passa böm á kvöldin. Hún auglýsti og var þegar pöntuð í hús kvöldið eftir. Þegar þangað kom bað húsráðandi hana að senda fyr- ir sig símskeyti meðan hún sæti yfir. Konan gerði eins og fyrir hana var lagt. En þegar stúlkan á stöðinni spurði á hvaða númer ætti að skrifa skeytið uppgötvaði bamapían að það var ekkert símanúmer skrifað á símann svo sem víð- ast tíðkast. Nú var úr vöndu að ráða því ekki vildi hún svíkja vinnu- veitenduma. Og allt í einu datt henni ráð í hug. Hún bað símastúlkuna að bíða andartak meðan hún skytist til að athuga hvort ekki væri nafn á dyrabjöll- unni. Eftir smástund kom hún aftur í símann og sagði sigri hrósandi: „Nú hefég nafnið, skrifaðu skeytið bara hjá Friedland.“ Blái fuglinn Það telst líklega sjaldgæft að tiltekinn smáhlutur gangi eins og rauður þráður í gegn- um tilveru einhvers. Þetta á þó við um hana Hönnu Elías- dóttur svo sem fr am kemur í viðtali við hana í nýjustu Viku. Hanna sá lengi um fjöl- breyttan þátt í Vikunni. Sá þáttur hét einfaldlega „Blái fuglinn." Og hvers vegna? „Ég var lengi að velta því fyrir mér, hvað ég ætti að skíra þáttinn minn í Vik- unni,“ segir Hanna í viðtal- inu. „Svo vill til að ég á lítinn glerfugl, sem er blár á litinn. Mér finnst hann mjög smekk- legur og hann er mér kær. Einhveiju sinni var ég að virða fuglinn fyrir mér og þá skaut þessari hugmynd niður í kollinn á mér.“ Síðar kom svo í ljós að afi eiginmanns Hönnu, Ingvar Guðjónsson, síldarkóngur á Siglufirði, seldi síld á erlendan markað undir nafninu „Blái fuglinn." Og nú hefur Hanna opnað verslun, sem heitir auð- vitað „Blái fuglinn." Hanna Eliasdóttir. Ólafur Stephensen. Betur boðið Auglýsingahópurinn Gott fólk er, eins og margir vita, innan vébanda Auglýsinga- stofu Ólafs Stephensen. í vikunni gaf að líta í Moggan- um sannfærandi auglýsingu unna af þessum ágæta hópi þar sem tíundað var ágæti spariskírteina ríkissjóðs. Var tilkynnt að nú væru ný skír- teini á leiðinni og að þau væru „öruggasta fjárfesting, sem völ er á“, eins og sagði í aug- lýsingunni. En aftar í blaðinu var önnur auglýsing, ekki minna sann- færandi, frá Fjárfestingarfé- laginu. Þar stóð: „Við bjóðum eigendum spariskírteina hærri vexti, en ríkissjóður býður með „skiptibréfum" sín- um.“ Og merkilegt nokk! Þessi auglýsing var gerð af Auglýs- ingastofu Ólafs Stephensen. Þetta kallar maður að kunna að notfæra sér slags- málin um sparifé fávíss almúgans. Umsjón: Jóhanna S. Sigþórsdóttlr. Ogmundur til Danmerkur Ögmundur Jónasson, fréttamaður ríkissjónvarpsins, mun um næstu mánaðamót taka við starfi Boga Ágústssonar i Danmörku. Bogi hefur dvalið þar ytra í tvö ár sem fréttamað- ur sjónvarpsiris. Ögmundur sagði í samtali við DV að þessi staða væri orðin fastur póstur hjá sjónvarpinu og alltaf hefði verið gert ráð fyrir að fréttamenn skiptust á um að gegna þessu starfi. „Þetta leggst vel í mig. Það er gott að breyta til og komast í nýtt um- hverfi, kynnast nýjum hugmyndum,“ sagði Ögmundur sem þegar er byijað- ur að undirbúa búferlaflutningana. Bogi Ágústsson mun taka við sínu fyrra starfi á fréttastofu sjónvarpsins. Ögmundur Jónasson fréttamaður ætl- ar framvegis aö upplýsa sjónvarpsá- horfendur um hvað er helst að gerast hjá frændþjóðum okkar. -APH T'ircstonc Torfæruhjólbarðar sem skila þérá leiðarenda Þessir hjólbarðar hafa veriö marg- prófaðir við erfiðustu aðstæður og útkoman er stórkostleg. Þeir eru þræisterkir og gripmiklir i torfæru- akstri en samt þýðir og hljóðlátir á malbiki. Fáanlegir á mjög hagstæðu verdi. Stærðir: 215/75 R 15 235/75 R 15 30x9.50 R 15 31x10.50 R 15 32x11.50 R 15 33x12.50 R 15 255/85 R 16 m ii (l JOFUR NÝBÝLAVEGI 2 • SÍMI 426I SÍLDARNÓT Góð síldarnót til sölu. Upplýsingar í síma 97-2320 á kvöldin. Stórglæsilegur Ford Sierra XR 4i, hvít- ur, árg. 1984. Ekinn 44 þús km. Upplýsingar hjá Bílasölunni Braut, Skeifunni 11, sími 681502. Alternatorar og startarar fyrir japanskar bifreiðar. HAGSTÆTT VERÐ. Heildsala — Þyriil sf., smásala. Tangarhöfða 7 2. hæð sími 685690 Innritun og upplýsingar í síma 83295 alla vírka daga frá kl. 13-22. JÚDÓDEILD ÁRMANNS Armúiasz. *

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.