Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.1986, Blaðsíða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.1986, Blaðsíða 34
34 FIMMTUDAGUR 11. SEPTEMBER 1986. Dægradvöl Með nóg af ílátum, nesti og góðu skapi héldu allir sem vettlingi gátu valdið Mannskapurinn dreifði sér um svæðið og hóf hver að tína í sína dollu. af stað. Ber eru mannsins megin Allir kannast við þá tilfinningu sem grípur fólk á haustin og fær það til að skríða fram og aftur um móa og mela í leit að berjum. Enn aðrir t setjast út í garð og tína rifsber af samnefndum runnum. Berjatínslan á sér engin aldurstakmörk, ungir sem aldnir keppast við að tína í fötur, kassa og alls kyns ílát og auðvitað læðist eitt og eitt ber niður í maga. Mismikið er tínt eftir því hvað gera skal við berin, sumir eru einungis að ná sér í eftirmat það kvöldið og eru ber með rjóma þá borin fram, þreyttum tínurum til mikillar ánægju. Aðrir tína meira og láta sér ekki nægja ber með rjóma eða skyri heldur frysta þau og geyma eða nota í sultu. Hvenær menn hófu fyrst að tína ber er lítð um vitað. Líklegast hefur það verið ekki löngu eftir að land byggðist. Er líklegt að forfeður okkar og mæður hafi fljótt uppgötv- *■ að hvílíkur herramannsmatur berin voru, auk þess sem þau voru alveg ókeypis. Á seinni öldum þótti þetta hin kjambesta fæða og hátíð í bæ á haustin þegar ber voru í stað skósóla um skeið. Berjum er eins og öðrum veraldar gæðum misskipt milli fólks og lands- hluta. Sums staðar á landinu er mikið um ber, svo mikið að hlíðamar eru þaktar bláum breiðum. Fólk er síðan misfundvíst á berjastaði, sumir em alltaf að leita að góðum stað til að tína á en einhverjir eiga sínar lautir sem þeir fara i ár eftir ár og koma heim með drekkhlaðna kassa eins og hinir fengsælustu aflaskip- stjórar. Til að kynnast berjatínslunni af eigin raun brá DV sér í berjamó á dögunum. Ber út um allt Berjasvæði hérlendis em fjölmörg en að þessu sinni var stefnt á „mið- in“ á Vestjörðum, nánar tiltekið við Taglið i nágrenni Bíldudals. Tvær reyndar beijadrottningar, Kolbrún Dröfn og Ragnheiður Kristín, höfðu fengist til að kenna kúnstina við að tina ber. Þær stöllur hafa undanfarin ár haldið til beija saman og ekki verið síður fengsælar á berjamiðun- um en eiginmennimir á fiskimiðun- um. Vom þær greinilega öllum hnútum kunnugar við undirbúning og skipulagningu. Nóg af ílátum þurfti að vera til staðar ef rúma átti öll berin, nesti þurfti að útbúa og auðvitað að hita kaffi. Þegar allt var tilbúið, nóg bensin á bílnum og góða skapið með í ferðinni var haldið af stað. Eftir nokkurra mínútna keyrslu var stansað og bílnum lagt. Kerin, nestið, að ógleymdu góða skapinu, var tekið út og gengið af stað niður hlíðina. Lítið sást til beija í fyrstu og efasemdir heyrðust frá bömum og blaðamanni um að hér væri vart „stingandi ber“ að finna. Þeim efa- semdum var vísað á bug og af hreinni eðlisgáfu gengu þær stöllur í ótal króka. í um það bil 100 metra fjar- lægð frá veginum, inni í kjarri, mátti sjá ber út um allt. Mannskapnum var nú dreift um svæðið og hver með sína dollu hóf tínslu. „Við Vestfirðingar viljum helst bara aðalbláber og hér er nóg af þeim, láttu hin því bara eiga sig,“ sagði Kolbrún Dröfn í móðurlegum tón enda fóstra að mennt. Kaffið var kærkomin hressing Tíminn flaug áfram, þama skreið maður á hnjánum og tíndi ber í gríð og erg. Kaffitími var kominn á auga- bragði og þágu menn þessa kær- komnu hressingu og hvíld frá tínslunni. Eftir að nokkrum brauð- sneiðum hafði verið sporðrennt var haldið áfram við tínsluna og til marks um kappið í þeim vinkonunum má nefna að þegar nestisboxin höfðu verð tæmd lýsti Ragnheiður Kristín því yfir að þau skyldu fyllt líka. Áfram var tínt en skyndilega heyrðist hljóð úr homi, ein kmkka hafði oltið og berin úr henni. Ekki var þó um annað að gera en að tína þau upp í aftur en óneitanlega var þetta leiðinlegt óhapp. Yngsti þátt- takandinn í ferðinni hafði verið óvenju þögull um skeið og var því farið að athuga hvemig honum mið- aði. Sat hann alsæll i lautinni sinni við hliðina á dollunni og athugaði bragðgæði beijanna. Heldur var lítið í dollunni en bláminn í kringum munnvikin sýndi að sennilega væri meira í maga hans. Allt tekur enda Eins og allt tekur enda hlutu ker- öldin að fyllast. Þegar allt hafði verið fyllt, nestisbox, plastpokar og kökubox, var haldið heim á leið. Nóg var þó eftir af beijum og þótti þeim Kolbrúnu og Ragnheiði súrt í brotið að þurfa að skilja þau eftir. Ákváðu þær að halda aftur til berja innan nokkurra daga. Heima var slegið upp veislu og í eftirmat vom nýtínd ber með sykri og rjóma. Við vaskinn biðu svo staukamir fullir af berjum sem áttu að fara í sultu og frysti. Allir í berjamó Að fara í berjamó er ekki einungis ábatasamt heldur einnig hin besta skemmtan, auk þess sem allir hafa gott af útivemnni. Fleiri ættu að taka það upp hjá sér að fara með fjöl- skylduna í berjamó í sunnudagsbíl- túmum því margar hendur vinna létt verk. Einn eftirmiðdagur úti í náttúmnni hjá fjölskyldunni við beijatínslu er ánægjulegur á meðan á tínslunni stendur svo og allan vet- urinn þegar afraksturinn er dreginn fram og hans neytt. Auðvitað em berjalöndin misjöfn og menn þurfa að leggja á sig við að leita góðar lautir uppi en þegar þær em fundnar er hægt að tína þar ár eftir ár. Eins og Kolbrún sagði: „Ef farið er út úr þílnum og gengið í smástund og rýnt í lyngið þá finna allir ber sem leggja sig fram. Sérstak- lega vilja þau leynast í kjarri." Með þessum ráðleggingum em allir hvatt- ir til að skella sér í berjamó því það fer hver að verða síðastur að grípa berin á meðan þau gefast. Innan skamms mun Vetur konungur fjar- lægja þau með frosti sínu. JFJ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.