Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.1987, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.1987, Blaðsíða 18
18 LAUGARDAGUR 24. OKTÓBER 1987. Sjötug ekkja borin út úr íbúð sinni vegna fasteignasölusvika: ,t»að er ömurlegt að þrnfe að setja heimili átt ofen í kassa“ Mál sjötugrar ekkju, sem borin hefur veríð út úríbúð sinni vegna fasteignasvika fyrirfunm árum, hefur vakiðmikla athygli. Konan ersíðastihlekkurísvikamyllu fasteignasala sem keypti ogseldi íbúðirfyrirfimm árum án þess að borga þær. Afleið- ingarmálsinsergeigvænlegar. Saklausfómarlömbmissaaleigusína vegnamanns sem áríð 1983 var gerður gjaldþrota. Þessi maðurhefur þó komið opinberlega fram semeiganditveggja veitingastjaðaíReykjavík. Hannrakásínum tima veitingahúsið Málþetta hefur veríðnokkuráríkerfinu og virðistmiða hægt, dómarí sem hafði með málið að gera lést, ogþað hlóðst upp ásam t öðrum óafgreiddum málum. A með- an * >» * ♦ hlýturað vera krafa almennings að dómurfaBi íþví sem fyrst. Þá fyrstgeturfólk áttað sigárétti sjnum í slíkum málum oghvers beraðgæta íkaupum ogsölu fast- eigna. DVfékkAstuEinarsdóttur, semnúhefurorðiðaðflytja úríbúðsinni, tilað segja frá þessari hörmulegu Mfsreynslu. „Ég hef lagt aleigu mína í þessa íbúð og þegar mér var gert að greiða af henni dýra húsaleigu gerði ég það. Ég hef borgað húsaleigu af minni eigin íbúð frá því ég fékk hana af- henta en núna, þegar átti að hækka húsaleiguna úr 20 þúsund krónum á mánuði í ég veit ekki hvaö mikið, var mælirinn fullur. Ég ákvað þá frekar að fara úr henni,“ sagði Ásta Einars- dóttir, sjötug ekkja sem sárasaklaus hefur orðið fyrir barðinu á óprúttn- um fasteignasala, Val Magnússyni, þrátt fyrir að hún hafi aldrei átt við- skipti við þann mann. DV bað Ástu að segja frá viðskiptum sínum og þeim raunum sem hún hefur mátt þola undanfarin ár vegna íbúðar- kaupanna. Ásta var í fyrstunni ekki tilbúin að tjá sig um málið en eftir frekaii umhugsun sá hún að slíkt gæti orðið öðrum til vamaðar í þeim frumskógi sem fasteignaviðskipti geta verið. Vel stæð - nú allslaus Ásta var gift Kristjáni Sigmjóns- syni, yfirvélstjóra á varðskipunum og síðar móttökustjóra í utanríkis- ráðuneytinu. Þau áttu stóra og fall- ega hæð í Skaftahlíð í Reykjavík. „Þegar ég missti manninn minn í febrúar 1982 ákvað ég að selja íbúð- ina okkar, bæði til að minnka við mig og einnig til að borga bömum Kristjáns frá fyrra hjónabandi fóður- arfinn. Ég seldi mína íbúð strax í gegnum fasteignasöluna Huginn og þeir unnu síðan í því að finna aðra íbúð fyrir mig. Ég var búin aö skoða margar íbúðir áður en ég skoðaði íbúðina í Fumgrundinni en þegar ég sá hana heillaði hún mig strax. Ég sá að þessi íbúð myndi henta mér vel og ákvað að festa kaup á henni. Tengdasonur minn, sem er verk- fræðingur, aðstoðaði mig við kaupin og Óskar Michaelsson hjá Huginn margítrekaði við okkur aö þó aö kon- an, sem var að selja mér, væri ekki þinglýstur eigandi þá yrði þetta allt „Það getur enginn ímyndað sér hvað þaö er mikíð átak að þurfa að flytja burt úr eigin ibúð og tapa aleigu sinni, sem maður er búinn að vlnna tyrir allt sit Iff. í lagi því hún yröi þaö eftir stuttan tíma. Við margspurðum hvort það væri ömggt og hann svaraði því til að við skyldum engar áhyggjur hafa því þetta yrði í lagi og að ég fengi mitt afsal að ári liönu. Seljandinn sagðist hafa taiaö við lögfræðing sem sagði að hennar kaupsamningur sannaði að hún væri löglegur eigandi íbúðarinnar. Ég trúði þessu fólki í barnaskap mínum," segir Ásta. Hún keypti íbúðina á 1,6 milljónir. Henni bar að greiða 1,1 milljón og eftir- stöðvar vom á áhvílandi lánum sem Ásta tók við og greiddi aUtaf af á greiðsludögum. „Þegar ég flutti inn í íbúðina sumarið 1982 gerði ég ýms- ar endurbætur á henni. Keypti innréttingu í baðherbergið, nýjan vask og flísar auk þess sem ég teppa- lagði íbúðina. Ég kom mér vel fyrir og mér leið vel í þessari fjögurra herbergja íbúð,“ segir hún ennfrem- ur. Ekkert afsal „Ég borgaði mína útborgun á rétt- um tíma enda hef ég aldrei viljað skulda neinum neitt. Og þegar kem- ur að því að ég átti að fá afsal af íbúðinni ári síðar kom í ljós að ekk- ert afsal var til. Það kom samt ekki í ljós strax því ég var dregin í langan tíma á þeim svömm að þetta vær að koma. Ég beið bara og trúði hveiju orði sem þetta fólk sagði mér. Það hvarflaði aldrei að mér að ég ætti eftir að fara út úr íhúð sem ég var búin að borga. Löngu síðar kemur hið sanna í ljós. Konan, sem seldi mér, átti ekki að fá neitt afsal vegna svika fasteignasalans sem seldi henni á sínum tíma. Eigandinn á undan þeirri konu sem er læknir hringdi hins vegar í mig og sagði: „Ég er með afsalið og þú verður nú eitt- hvaö að borga.“ Það fauk í mig við þetta símtal og ég gerði mér ekki al- mennilega grein fyrir því hvað það væri sem ég ætti að borga. Ég sagði við hann að ef hann ætlaði að fá ein-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.