Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.1987, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.1987, Blaðsíða 4
 ÞRIÐJUDAGUR 22. DESEMBER 1987. Fréttir Þórarinn V. Þórarinsson um komandi kjarasamninga: „Það er lítið svig- rúm til kauphækkana k k „Ríkisstjómin óskaöi eftir mati okkar á hvernig staðan væri í samningamálunum. Inn í þá um- ræðu blandaðist mat okkar á samningsaðstöðu og á rekstrarað- stæöum í atvinnurekstri. Við lýstum okkar sjónarmiöum. Að því að mér virtist var þessi fundur, af hálfu ríkisstjómarinnar, einkum ætlaður til að skýra fyrir henni aðstæður á vinnumarkaðinum eins og þær eru nú. Við fórum ekki með neinn óskalista á þennan fund enda var hann haldinn að framkvæði ríkisstiórnarinnar,“ sagði Þórar- inn V. Þórarinsson, framkvæmda- stjóri Vinnuveitendasambandsins. í gær átti VSÍ fund meö ríkisstjóm- inni vegna komandi samninga aðila vinnumarkaðarins. Þórarinn sagði að ekki væri mikið svigrúm til launahækkana. Hann sagði enn- fremur að á fundinum með rikis- stjóminni hefði hvorki verið farið fram á að ríkisstjórnin greiddi fyrir samningum né aö rikisstjómin hefði boðið upp á slíkt. „Ef svo er gert hygg ég að það yrði að fara fram með þrihliða við- ræðum en ekki á þann veg að margir aðilar fari í stjómarráðiö með langa óskalista. Það væru ný vinnubrögð af þannig yrði staðið að raálum. Það var ekkert formlegt framhald ákveðið i þessum viðræð- um. Hitt er aftur Ijóst að við búum saman í þessu landi og verðum að halda áfram að tala saman,“ sagði Þórarinn V. Þórarinsson. -sme Nýtt þinghús: Skiptar skoðanir um fjár- veitingu Búist er við því að við þriðju um- ræðu um fjárlagafrumvarpið komi fram tillaga um að varið verði sex milljónum króna til að ljúka hönnun nýs þinghúss í samræmi við verð- launatillögu þá sem unnið hefur verið við undanfarin misseri. Samkvæmt upplýsingum DV eru þó skiptar skoðanir um réttmæti þessarar ljárveitingar innan ýmissa þingflokka og á þingflokksfundi hjá SjáLfstæðisflokknum á laugardag, lýstu þrír þingmenn því yfir að þeir myndu ekki styðja slíka tillögu. Að mati þeirra hefur ekki verið sam- þykkt að byggja umrætt hús en þeir álíta.að fjárveiting til lokahönnunar sé í raun hluti byggingarkostnaðar og með þvi að samþykkja það fram- lag sé verið að samþykkja byggingu téðs húss. Samkvæmt heimildum DV er þó búist við því að fjárveitingin verði samþykkt þótt mjótt kunni að vera á mununum. -ój Atriði úr myndinni Það þarf ekki að gerast sem sýnd verður í sjónvarpinu í kvöld. Fólki er ráðlagt að horfa á myndina. Þar verða sýnd ýmis atriði sem gott er að hafa í huga um jólin og áramótin. DV-mynd S Sjónvarpið í kvöld: Það þarf ekki að gerast í sjónvarpinu í kvöld verður sýnd tuttugu mínútna mynd sem Bruna- varðafélag Reykjavíkur hafði for- göngu um að gera. Myndin verður sýnd klukkan 20.40 í kvöld. Megintilgangurinn með myndinni er að hvetja fólk til að kaupa sér reykskynjara. í frétt um myndina segir meðal annars að reykskynjari sé ódýr líftrygging. Þá segir að góður reykskynjari kosti aðeins rúmar þúsund krónur. Brunavarðafélagið hefur áhyggjur vegna jólaskreytinga með kertum. Slíkar skreytingar hafa oft valdið miklum skaða. Sérstaklega er því beint til fólks, ef verið er að gefa gömlu fólki skreytingar, að forðast að hafa kerti með. Það hefur ítrekað komið fyrir undanfarin jól að gamalt fólk hefur sofnað út frá logandi kert- um með oft á tíðum alvarlegum afleiðingum. Jólaskreytingar Olís: 330 perur á einni viku Við bensínstöð Olís við Álfabakka hafa verið sett upp tvö jólatré. Á einni viku hafa horfið eða verið brotnar 330 ljósaperur. Erling Sig- urðsson, umsjónarmaður bensín- stöðva Olís, sagði að fólk hefði ekki not af perunum þar sem þær eru fyr- ir 12 volta straum og gagnast því ekki við venjulegt rafmagn. Þvottaplönin verða mikið fyrir ágangi skemmdarvarga. Slöngur og kústar fá sjaldan að vera í friði. Kúst- ar eru beyglaðir og skemmdir og slöngur skornar. Hátalarar, sem starfsmenn nota til að flýta fyrir af- greiðslu, eru að verða sífellt vinsælli hjá skemmdarvörgum. Bensínsjálfsalar fá ekki að vera í friði heldur. Menn eru að reyna að plata sjálfsalana með alls kyns miða- drasli, svo sem ónýtum happa- þrennumiðum. Verður þetta til þess að sjálfsalarnir ruglast og geta þeir snuðað heiðarlega viðskiptavini. Erling sagði að víða í Reykjavík væru skemmdarverk unnin á bens- ínstöðvum. Bensínstöðin við Álfa- bakka hefur orðið verst úti. Þar hafa verið unnin tjón fyrir tugi þúsunda á örfáum dögum. Er svo komið að ekki er lengur hægt að hafa kveikt á jólaljósum og eins verður að tak- marka mikið þvottaslöngur og kústa. „Þetta kemur því miður niður á okk- ar fjölmörgu viðskiptavinum. Við vitum að það er aðeins fámennur . hópur sem vinnur þessi skemmdar- verk en því miður erum við ráða- lausir vegna þessa,“ sagði Erhng Sigurðsson. -sme Eskrfjördur: Smyglgóssi stolið frá lögreglunni Bíræfinn þjófur braust inn á lög- reglustöðina á Eskifirði um helgina og stal þaðan smyglvarningi sem þar var geymdur. Samkvæmt heimildum DV hafði þjófurinn á brott með sér tvö myndbandstæki og tvo geislaspil- ara. Lögreglan lagði hald á tækin eftir tollskoðun um borð í Sæljóni SU 104 er báturinn kom til Eskifjarðar eftir að hafa selt erlendis. Hjá sýslu- mannsembættinu á Eskifirði var varist allra fregna af málinu. -sme í dag mælir Dagfari Umboðsmaður alþingis Nýlega samþykkti alþingi lög um umboðsmann alþingis og nú er meira aö segja búið að skipa í það embætti ágætis og öldungis valin- kunnan sæmdarmann sem heitir Gaukur Jörundsson. Hlutverk þessa umboðsmanns er ekki að gæta hagsmuna alþingis, eins og nafniö bendir til, heldur að gæta hagsmuna almennings. Starf um- boðsmannsins er nefnilega fólgið í því að taka við hvers konar vanda- málum, klögumálum og kvörtun- um frá hinum og þessum úti í bæ sem telja sig eiga eitthvað vantalað viö hið opinbera. Þannig geta þeir sem ekki fá fyr- irgreiðslu hjá hinu opinbera samstundis klagað til umboðs- mannsins og falið honum að rétta hlut sinn gagnvart kerfinu. Sá sem ekki fær úthlutað réttri lóð getur snúið sér til umboðsmannsins. Sá sem ekki fær lán hjá Húsnæðis- stofnun gerir það sömuleiðis. Einnig sá sem þarf að bíða lengi í biðröðinni hjá Gjaldheimtunni og mætir ókurteisi hjá starfsfólkinu. Sá sem ekki fær skoðun á bílinn sinn vegna þess að Bifreiðaeftirlitið 'segir hann í ólagi. Sá sem þarf að greiða dráttarvexti af skuldum sín- um í ríkisbönkunum. Sá sem ekki fær íbúð hjá Félagsmálastofnun. Sá sem situr uppi með lokaðan síma án þess að hafa fengið til- kynningu um það fyrirfram. Allir þessir geta snúið sér til umboðs- mannsins og rakið raunir sínar. Yfirleitt allir þeir sem reiðast út í kerfið og era í fúlu skapi þann dag- inn geta fengið útrás fyrir skap- vonsku sína með því aö tala við umboðsmanninn sem fær borgað fyrir það hjá alþingi að hlusta á kverólantana. Svo ekki sé nú talað um þá sem eru búnir að reka sín mál fyrir dómstólunum og tapa þeim samt. Þeir geta kvartað til umboðs- mannsins og sagt honum frá því hvað dómstólarnir era ósanngjarn- ir og umboösmaðurinn mun að sjálfsögðu setja ofan í við dómstól- ana en hóta því ella að alþingi breyti lögunum og skipti um dóm- ara, ef þeir ætla að hafa réttinn af kverólöntunum. Þeir sem eru á móti ráðhúsi í Tjörninni, hávaða í umferðinni eða fá ekki svefnfrið fyrir hasspartíum í næstu íbúð, geta klagað til umboðsmannsins, sem mun væntanlega hafa nóg að gera við að bjarga fólki undan óréttlætinu og ónæðinu í samfélag- inu. Þá er mjög líklegt að þetta nýja embætti hjálpi til á öðrum sviðum. Þannig hefur það verið hér á landi um árabil að í hvert skipti sem ein- hver óánægja kemur upp í gömlu flokkunum hlaupa hinir óánægðu til og stofna nýja flokka. Við mun- um eftir Lýðveldisflokknum, Þjóðvarnarflokknum, Samtökum fijálslyndra og vinstri manna, Kvennalistanum, Flokki manns- ins, Þjóöarflokknum og Borgara- flokknum. Allir þessir nýju flokkar hafa skapað usla og óróa á vett- vangi stjórnmálanna sem í raun og veru hefur veri óþarfi vegna þess að veslings fólkið hefur ekki haft erindi sem erfiöi og þetta hefur verið vesen fyrir gömlu flokkana sem hafa þurft að stilla til friðar og stundum meira að segja þurft aö hlusta á þessa sérviskupúka til að hafa þá góða. Nú geta gömlu flokkarnir einfald- lega bent á umboðsmann almenn- ings og beint öllum sérvitringum og sérviskupúkum inn á skrifstof- una til umboðsmannsins og látið hann um að taka við röflinu. Þann- ig má búast við að þeir sem komast upp á kant við flokkana blási út með því að umboðsmaðurinn fær laun fyrir að hlusta á þá og nýir flokkar verði óþarfir í framtíðnni. Umboðsmaður alþingis verður nokkurs konar stuðpúði fyrir reið- ina og klögumálin og fyrirgreiðsl- una og losar pólitíkusa við allt það ónæði sem hlýst af því að hlusta á fólk sem ekki nær fram rétti sínum. Nú verður öllu röflinu safnaö sam- an á einum og sama staðnum og vahnkunnur sómamaður fenginn til að drepa þeim á dreif sem sér- stakur umboðsmaður fyrir kveról- antana. Hann er að vísu ekki öfundsverður af þessu starfi sínu, en hvað gera menn ekki fyrir rétt- lætið til að koma í veg fyrir ranglæ- tið? Gaukur verður haukur í horni og laukur þeirra íslendinga sem þurfa að ná sér niðri á kerfínu og geta nú náð sé niðr á honum í stað- inn. Vonandi er Gaukur heilsugóð- ur! Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.