Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.1987, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.1987, Blaðsíða 5
ÞRIÐJUDAGUR 22. DESEMBER 1987. 5 Kona féll af efstu svölum þessa húss. „Hún var skrafhreifin eftir lending- una,“ sagði lögregluþjónn í samtali við DV. DV-mynd S Mikil olvun Mjög mikil ölvun var í Reykjavík um helgina. Fangageymslur voru þéttskipaðar bæði aðfaranótt laugar- dags og sunnudags. Töluvert var um rúðubrot og áflog í miðbænum. Ástandið var slæmt báðar næturnar, þó öllu verra aðfaranótt laugardags- ins. Ölvunin var vítt um borgina og stóð gleðskapur víða fram á morgun. Lögreglan varð að hafa afskipti af drykkjulátum bæði í heimahúsum og á götum úti. Um klukkan eitt aöfaranótt sunnu- dags hrapaði ölvuð kona af svölum á fjórðu hæð húss við Torfufell. Slas- aðist hún ótrúlega lítið þrátt fyrir að lenda á steyptri gangstétt. Rann- sóknarlögregla ríkisins vinnur að rannsókn málsins. Lögreglan elti vélhjól um borgina aðfaranótt sunnudags. Ökumaður vélhjólsins hafði sést aka á gífurleg- um hraða og þegar honum var veitt eftirfor virti hann engar umferðar- reglur. Þótti mikil mildi aö hann skyldi ekki valda slysum með slíku aksturslagi. Ekki náðist í ökuþórinn en lögreglan veit hvaða vélhjól var á ferð og eru því líkur á að til manns- ins náist. -sme Áriega 40 úrskurðir um forsjá bama Um það bil 40 úrskurðir um forsjá bama hafa að jafnaði verið kveðnir upp á ári í dómsmálaráðuneytinu á ámnum 1983-1986. Þetta kom fram í svari Jóns Sig- urðssonar dómsmálaráðherra fyrir stuttu við fyrirspurn þeirra Álfheið- ar Ingadóttir varaþingmanns og Margrétar Frímannsdóttur þing- manns varðandi deilur um forræði barna. Athygli vekur að forsjárúr- skurðum fer ekki fjölgandi þrátt fyrir vemlega aukningu hjónaskilnaða en ástæðuna telur ráðherra vera aukna áherslu á sáttaumleitanir í ráðuneyt- inu og hjá barnaverndamefndum. Ennfremur kom fram í máli ráð- herra aö afgreiðsla þessara mála tekur mjög mismunandi langan tíma. Stysti afgreiðslutími er nokkrir mán- uðir en sá lengsti á annað ár. Dæmi eru jafnvel um enn lengri afgreiðslu- tíma. Dómsmálaráðherra sagði tafir hjá barnaverndaryfirvöldum oftast orsaka þennan langa afgreiðslutíma. Hann tók fram að starfsemi barna- verndaryfirvalda væri ekki á vegum dómsmálaráðuneytisins og væru þaö því fyrst og fremst sveitarstjórnir sem þyrftu að bæta aðstöðu barna- verndamefnda svo þær gætu afgreitt málin á skemmri tíma. Lokaaf- greiðsla málanna í dómsmálaráðu- neytinu tæki yfirleitt örfáar vikur. -JBj Fjölbrautaskóli Suðuriands: Skólaslit við hátíðlega athöfn Regina Thorarensen, DV, Selfössi: Fjölbrautaskóla Suðurlands var slitið nýlega í Odda á Selfossi, en svo er hið nýja hús skólans kaílað. Er þaö í fyrsta sinn sem skólanum er slitið þar. Áður fóru skólaslitin alltaf fram í kirkjunni. Athöfnin var feikilega hátíðleg og naut fólk þess að geta fengið sér kaffi eftir skólaslitin sem stóðu yfir í hálf- an annan tíma, en boðið var upp á veitingar eftir athöfnina. Alls útskrifuðust 47 nemendur. Þar af eru 28 stúdentar. Svo bar við að í þetta sinn útskrifaðist í fyrsta sinn hérlendis stúdent sem jafnframt náminu hefur afplánað fangelsis- dóm. Hann heitir Hilmar Þór Ólafs- son. Námið hefur hann að langmestu leyti stundað innan veggja Litla- Hrauns við Eyrarbakka, en þar fer fram kennsla á vegum skólans fyrir þá fanga sem áhuga hafa. Hann út- skrifaðist af félagsfræðibraut og sóttist námið svo vel að hann fékk verðlaun við útskriftina. Enn fremur útskrifaðist annar vistmaður á Litla-Hrauni, Þórður Eyþórsson, sem er vélavörður. Fréttir Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins: Auka má geymsluþol fiskflaka með koldíoxíð loftblöndu Við tilraunir sem Rannsókna- stofnun fiskiðnaöarins hefur gert, undir stjórn Gríms Valdimarsson- ar og Guðmundar Stefánssonar, kom í Ijós að auka má geyrasluþol fiskflaka af ófeitum fiski, svo sem ýsu og þorski, verulega með því að pakka þeim í koldíoxíð loft- blöndu. Niðurstöður uröu á þá leiö að glæný ýsuflök, unnin við bestu að- stæður, geymd við 0 gráður á Celcíus í opnum plastpoka, höfðu 8-13 daga geymsluþol, samkvæmt skynmati. En þegar flökunum var pakkað í blöndu af súrefni og koldí- oxíði, reyndist geymsluþolið 16-20 dagar. í þessum tilraunum kom í Ijós að venjuleg loftþétt pökkun eykur geymsluþol fiskflakanna minna en gaspökkunin. Fyrir þá sem flytja út fersk fisk- flök er þessi niðurstaða afar athyglisverð. Grimur Valdimarsson, forstjóri Rannsóknastofnunar fiskiðnaðar- ins, sagöi í samtali við DV að koldíoxíð væri rotvarnarefni og þess vegna ykist geymsluþolið. Hann benti á að koldíoxíð, sem notaö væri í bjór nú til dags og orskaði gosiö í honura, væri sett í hann sem rotvaraarefni. í tilraununum við pökkun flak- anna kom í ljós að aðferðin dugar ekki ef pakka á feitum fiski eins og síld, karfa eða silungi. Eins kom fram í sérstökum at- hugunum að áhrif koldíoxíðsins minnkaverulega ef vikið er frá bestu vinnslu og geymsluaðstæð- um hráefnisins. -S.dór Kaffivél með hitakönnu, Kaffivél, 1-10 bolla, tískuútlit, verð frá kr. 3.940 kr. 2.590 Eggjasjóðari, kr. 1.660 Krullujárn með blæstri, Kraftmiklir 1000 watta hárblásarar, verð kr. 1.315 Einar Farestveit&Co.hf. BORGARTÚN 28, SÍMAR: (91) 16995 OG 622900 - N/HO BILASTÆÐI 3 gerðir, verð frá kr. 2.195

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.