Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.1987, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.1987, Blaðsíða 11
ÞRIÐJUDAGUR 22. DESEMBER 1987. 11 Utiönd Aka um okeypis a hraðbrautum Bjami Hiniiksson, DV, Bordeaux: í ár einskorðast jólaverkfollin hjá frönskum verkalýðsfélögum viö samgöngur. Flugmenn og vélvirkjar hjá félaginu Air Inter reyna að bæta kjör sín með verkfallsaðgerðum en gengur illa sökum dræmrar þátt- töku, ósamkomulags milli verkalýðs- félaga og þeirrar áráttu atvinnurek- enda að rjúka strax með málið fyrir dómstólana og kreíjast þess að verk- fallið sé lýst ólöglegt. Þetta er að verða margkveðin vísa í verkalýðs- deilum og dómstólarnir grípa oftar inn í en áður. Hjá Air Inter, sem er annað stærsta ílugfélagið í Frakklandi, hafa hingað til ekki fallið niður margar flugferðir vegna verkfallsins og erfitt að segja hvaða framhald verður á því. Starfsmenn hraðbrauta eru líka óánægðir og verkfallsþurfi sem þýðir að í dag geta allir keyrt um ókeypis í Frakklandi. Ekki þarf að greiða hinn venjulega vegatoll sem fylgir því að nota hraðbrautimar. Örvæntingarfull leit að geislavirku plútoníum Gizur Helgason, DV, Liibedc Vestur-þýsk yfirvöld hafa nú hafið örvæntingarfulla leit að rúmlega 350 gámum sem innihalda geislavirkt plútóníum. Flutningsfyrirtækið Trans Nuklear hefur nú viðurkennt að hafa ekið leynilega með gámana í geymslu við v-þýskar kjarnorku- stöðvar. Klus Töpfer, umhverfismálaráð- herra Bonn-stjórnarinnar, hefur nú afturkallað leyfi flutningafyrirtækis- ins til flutninga á kjamorkuúrgangs- efnum. Það þykir nú víst að fyrirtækiö hafi verið gróðrarstía alls kyns svindls og mútuþægni í sam- bandi við flutninga á hættulegum úrgangsefnum. Trans Nuklear hefur um árabil séð um flutninga á tiltölulega lítt geisla- virkum úrgangsefnum hjá v-þýskum kjamorkustöðvmn til úrvinnslu í Belgíu. Þar er bætt ákveðnum efnum í úrganginn þannig að hann fær á sig fast form. Því næst em gámarnir fluttir austur yfir landamærin á ný og varðveittir við v-þýskar kjarn- orkustövðar í þar til gerðum geymsl- um. í stað hins tiltölulega lítt geislavirka úrgangsefnis hefur flutn- ingafyrirtækið á ólöglegan hátt flutt yfir landamærin kjarnorkuúrgang sem inniheldur mjög geislavirkt plútóníum og kóbolt. Yfirvöld vita ekki hvaða gámar það em sem innihalda hin bráðhættu- legu efni þar eð fyrirtækið hefur merkt aUa gámana sem lágt geisla- virka. Sérfræðingar vinna því nú að því að kanna allan gámalagerinn við íjölmörg kjarnorkuver. Þetta öryggishneyksli eða öllu fremur öryggisleysishneyksli var af- hjúpað þegar verið var að kanna mútumál sem fjölmargir starfsmenn fyrirtækisins voru viðriðnir. Bandarískur jólapappír og merkimiðar með Gretti Líka Grettis loðdýr HUSIÐ LAUGAVEGI178, SlMI 686780. lENsa Stereo höfuð-útvörpin s eru komin Vasadiskó m/armbandsúri stereosamstæða tombóluverð, frá 15.210, Urval stereo heyrnartóla Verð frá kr. 265 TENSai HEai5 ferðatæki, verð frá 4.400 Síðumúla 2, símar 689090-689091

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.