Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.1987, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.1987, Blaðsíða 19
ÞRIÐJUDAGUR 22. DESEMBER 1987. 19 dv__________________Meiming Hjá sálarleysingjum Álfrún Gunniaugsdóttir: Hrlnsól. Mál og menning, 1987. Sagan hefst meö ferðalagi. Lítil stelpa tekin upp frá heimili sínu í sjávarþorpi og send burt frá fjöl- skyldu sinni, föðursystur og uppeldisbróður. Barnið er móður- laust, heimilið í örbirgð og fóðum- um gengur gott eitt til en sár viðskilnaðurinn markar endalok fyrir bamið. Og hún fer úr öskunni í eldinn þrátt fyrir það að stöndug kaup- mannshjón í Reykjavík taki hana að sér. I ljós kemur að hún lendir á engu kærleiksheimli þó svo að efnin vanti ekki. Hún hefur lent hjá „sálarleysingjum“. Húsmóðirin og kaupmannsfrúin, Sigurrós, ræður flestu á heimlinu, einnig kaupsýslunni. Hún er köld við bamið, vill gera úr henni fín- heitastúlku eins og hún er sjálf en eignast aldrei hug hennar því hlýj- una vantar. Húsbóndinn Jakob er konu sinni undirgefinn, gæðalegur, en er eng- inn bógur, forðast ófriö. Andrúmsloft togstreitu Svo er það Daníel, bróðir Jakobs, hann ereins og grár köttur á heim- ilinu, býr þar stundum. Hann er í dálæti hjá Sigurrósu sem er, þótt köld sé, ekki kynköld. Segja má að bamið lendi á algeru vandræðaheimiii og læsist innan lokaðra veggja þess í andrúmslofti togstreitu og undirferils. Nær sér aldrei af áfalhnu er hún skilur við sitt fólk. Frá þessu greinir fyrsti kafli bók- arinnar á magnaðan hátt, les- andinn gengur nánast inn í björg með sögumanni, er tekinn um- svifalaust seiðmögnuðum og föst- um tökum skáldskaparins eins og gerist með bestu bækur. Engin leið önnur en að feta sig áfram síðu eft- ir síðu inn í líf Boggu, miskunnar- laust og vonlítiö. Því lesandinn verður að vita umfram allt hvort henni lánast að komast burt frá þessum þrúgandi veggjum og þungu viðarhurðinni sem „lagðist að stöfum með lágu andvarpi og skall aldrei“. Álfrún Gunnlaugsdótiir. í lífsóláni Og í næstu þremur köflum grein- ir síðan frá stríðu lífsóláni Elín- borgar (kölluð Ella heima hjá sér en breytist í Boggu í „höfuðstaðn- um“). Og í húsinu er aðeins Dísa henni mannleg, vinnukonan, og betri en enginn. En „frændinn" Daníel, ómennið, sem einu sinni var lítill drengur, lúbarinn í vist, Bókmenntir Berglind Gunnarsdóttir og hraktist einn yfir heiði um nótt til bróður síns (svo hún vorkennir honum), hann markar sér Boggu á klúran hátt og lokar endanlega flóttaleið hennar undan þessu fólki og „húsinu“ með því að giftast henni. í bókinni fer fram mörgum sög- um samtímis - nútíð, þátíð, framtíð og fortíð Boggu fléttast saman svo ört að oft verður vart á milli greint: í aðeins fáeinum línum lendir les- andi jafnvel í þremur sögum samtímis. Hann verður að láta sig fljóta í eins konar ytra meðvitund- arleysi um krókótta farvegi frásög- unnar sem er eins og samhengis- laus hugsunin og reikar vítt yfir (hringsólar um) sögu langrar og sársaukafullrar ævi. Ef til vill i því skyni að finna ákveðinn þráð sem leiðir mann áfram þessa lífsins braut og leynist e.t.v. þama ein- hvers staðar, en um það veröur samt ekkert vitað fyrir vist, né af hverju; hvorki í skáldsögu né veru- leika kemst maður að óyggjandi niðurstöðum. Bogga var ekki einu sinni viss um hvort það væri hatr- ið, nei, það var flóknara en svo. Römm saga Fyrir utan frásögn Boggu fer einnig fram langri sögu af Daníel og sambandi hans við konuna Rósu, erlendis í stríðinu og örlög- um hennar hörmulegum. Enda Daníel á sinn hátt lánleysingi eins og Bogga, þau skildu hvort annað, þótt hann yrði síðar hörkutól og fantur en hún undirokuð og þrúg- uð. Tvær ólíkar greinar af sama meiði. Hún missti allt það sem heföi gert henni fært að lifa með reisn. Samt brotnaði hún aldrei, þrjósk- aðist við að þrauka. Það liggur við að ólán þessarar konu verði meö vélrænum hætti - allt frá þvi hún er send burt að heiman og bemsku hennar lýkur svo skyndilega ,og sársauka- fullt. Betri heföi henni veriö örbirgðin en „velstandið" hjá þessari sjúk- legu fjölskyldu í Reykjavík. Rót- leysi hennar og upplausn sem kallaði á blóraböggul og akkeri um leið. Það verður dapurlegt hlut- skipti Boggu og lýkst smám saman upp fyrir lesanda í sundurlausum, þó föstum vefnaði frásögunnar-. Þaö er römm saga. BG „Jólagjöfin fyrír bíleigandann“ - fæst hún ekki hjá okk- ur? Athugið málið, hringið eða lítið inn. „NÝKOMIГ Barnastólar, 3 gerðir, upphækkunarpúð- ar, öryggisbelti með og án rúllu. Taum- ottusett, 5 litir, sætaáklæði í heiium settum og ekta gæra fyrir framsæti. Bremsuljós í afturglugga, radarvari, litlar ryksugur, hjólkoppar, margar gerðir o.m. fl., 10% staðgreiðsluafsláttur til áramóta. Opið Þorláksmessu til kl. 23. Siðumúla 17. Simi 37140. VUtu spara? - Nýkomið mikið úrval af ódýrum skóm. Ódýri skómarkaðurinn Hverfisgötu 89 & DELTAWAVE KYNNTU ÞER DELTAWAVE ÞAÐ BORGAR SIG & & & & * í’/ . ^ <CP Einar Farestveit&Co.hf. BORGARTUN 28, SÍMAR: (91) 16995 OG 622900 - NÆG BÍLASTÆÐI

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.