Dagblaðið Vísir - DV - 09.08.1989, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 09.08.1989, Blaðsíða 17
16 MIÐVIKUDAGUR 9. ÁGÚST 1989. MIÐVIKUDAGUR 9. ÁGÚST 1989. 17 íþróttir Iþróttir framundan hjá honum Vera Péturs Guðmundssonar hjá bandaríska körfuknattleiksliðinu Los Angeles Lakers er á enda. Pétur tók tilboði Lakers á dögunum um að • Pétur Guömundsson í teik meö San Antonio Spurs gegn Los Angeles Lakers. Pétur melddist á æfingu með Lakers í síðustu viku og sem stendur er llkiegast að hann fari tll Miiwaukee Bucks. en „Ég náði því að æfa þrívegis meö La- kers en á þriðju æfingunni meiddist ég á hásin, tognaði, og verð að taka mér að minnsta kosti tveggja vikna hvíld. Ég náði því engum leik á mótinu sjálfu og það voru mér alveg gífurlega mikil vonþrigði,“ sagði Pétur Guð- mundson körfuknattleiksraaður i sam- tali við DV í gær. Óheppnin eltir Pétur. Á sínum tíma samdi hann við Lakers en varð að fara frá- félaginu eftir að hafa moiðst í baki. Næst lá leiðin til San Antonio Spurs og þar raeiddist Pétur illa á hné og vart að gangast undir uppskurð. Mis- tök lækna urðu þess valdandi að hann varð að fara í aðra aðgerð og þegar hann mætti á dögunum til Los Angeles var hann búinn að fá sig góðan af hné- meiðslunum og kominn í mjög góða hásinin sig. Evrc sudraumurinrt erað enguorðinn Pétur sagði viö DV í gær: „Þaö er Ijóst að draumurinn um að koroast að hjá Lakers eöa sterku félagi í Evrópu er úr sögunni. Nú verð ég að reyna að komast að hjá einhveriu öðru liði í NBA-deildinni. Ég hef rætt við for- ráðamenn Milwaukee Bucks og þefr hafa lýst yfir miklum áhuga á að fá mig til liðsins. Þeir hafa sagt viö mig að mér standí allar dyr opnar hjá félag- inu. Það má því segja að ég hafi sett stefnuna á að koraast að hjá Mil- waukee en auðvitað mun ég skoða fleiri möguleika. Ég og umboösmaður minn munum athuga ýmis mál á næstu vikum en tveir mánuðir eru enn til stefiiu þar til NBA-liðin fara í æf- ingabúðir fyrir næsta keppnistímabil.“ Enn mótlæti Pétur hefur nú enn einu sinni orðið fyrir mótlæti á ferli sínum. Þó var einn ljós punktur á ferö hans til Los Ange- les: „Ég tók miög hressilega á á æfing- unum hiá Lakers og fann ekki til í hnénu. Ég held að ég hafi alveg náð mór af hnémeiðslunum. En auðvitað er ég gífurlega svekktur. Þetta er enn eitt áfallið sera ég verð fyrir á skömra- um tíma og nú er bara að reyna að yfirstíga það sem allra fyrst og komast í slagimi á ný,“ sagði Pétur Guðmunds- son. -SK Hart barist í bikarnum í kvöld í kvöld fara fram báðir leikirnir í undanúrslitum mjólkurbikarkeppni KSÍ. Þá leika ÍBV og KR í Vest- mannaeyjum og Keflvíkingar taka á móti Fram á Keflavíkurvelli. Báðir leikirnir hefjast kl. 19. „Leggst vel í okkur“ „Leikurinn leggst þokkalega í okkur Eyjamenn. Við eru hóflega bjartsýn- ir og ég tel að við eigum jafna mögu- leika. Við höfum allt að vinna en engu að tapa,“ sagði Sigurlás Þor- leifsson, þjálfari og leikmaður Eyja- manna í knattspyrnu, í samtah við DV en Vestmannaeyingar mæta KR- ingum eins og áður sagði. Strákarnir eru nokkuð vel stilltir inn á leikinn eftir þjóðhátíðina og góð stemmning er á meðal bæjarbúa fyr- ir leiknum og víst er að þeir munu fjölmenna á völlinn í kvöld,“ sagði Sigurlás Þorleifsson. „Þeir verða sterkir heima“ „Þetta verður gífurlega erfiður leik- ur hjá okkur í kvöld. Þeir eru búnir að slá út tvö 1. deildar hð og eru í hörkuformi. Þeir verða sérstaklega sterkir á heimavelli en við erum bún- ir að undirbúa okkur vel og ætlum að sigra,“ sagði KR-ingurinn Björn Rafnsson er hann var spurður um viðureignina í Eyjum. „Gerum okkar besta“ „Þetta verður hörkuleikur í kvöld og ég ætla að bjóða Framara vel- komna til Keflavikur. Við erum sýnd veiði en ekki gefm og ætlum að gera meisturunum lífið leitt í kvöld. Framarar eru með mjög sterkt lið og verða erfiðir en við munum gera okkar besta," sagði Freyr Sverrisson, fyrirhði Keflvíkinga, en þeir fá Fram í heimsókn. „Ætlum að fara alla leið“ „Við erum ekkert of spenntir og tök- um þessu með mikilli ró enda erum við Framarar orðnir vanir því að leika erfiða og þýðingarmikla leiki. Við fengum skell í bikamum í fyrra en nú ætlum við að fara aila leið. Því er augljóst að ekkert annað en sigur kemur til greina í Keflavík í kvöld,“ sagði Pétur Ormslev, Framarinn leilcreyndi, í spjalli við DV. -JKS/RR Drengjaliðið fékk skell íslenska drengjalandsliftið tapaði í gærkvöldi fyrir Norðmönnum, 1-2, á Norðurlandamótinu í Englandi. íslenska drengjalandsliðið í knatt- spymu mátti þola tap, 1-2, fyrir Norðmönnum á Norðurlandamótinu í Englandi í gærkvöldi. Leikurinn, sem fram fór á Gay Meadow í Shrewsbury, var frekar slakur og íslenska liðið náði sér ekki vel á strik. íslenska liðið hafði forystuna í leikhléi en það var Kristinn Láms- son sem kom íslendingum yfir með failegu marki á 14. mínútu. Stuttu síðar var augljósri vítaspymu sleppt þegar einn íslensku strákanna var felldur inni í vítateig Norðmanna. í síðari hálfleik náðu Norðmenn að tryggja sér sigurinn með tveimur mörkum seint í leiknum. íslenska liðið á tvo leiki eftir gegn Dönum og Svíum og ef þeir vinnast báðir á hðið góða möguleika því keppnin er mjög jöfn. I gærkvöldi unnu Englendingar Dani, 2-1, og Finnar unnu Svía, 2-1. -RR George Foreman er frekar hrika- legur á þessari mynd sem birtist á forsíðu banda- ríska tímaritsins Sport lllustrated. Foreman er fertugur og dreymir nú um að fá að mæta Mike Tyson. Foreman varð heimsmeistari í þungavigt hnefaleika árið 1973 er hann rotaði Joe Frazer í sögulegum bardaga á Jamaíka. Nú hefur hungrið í heimsmeistaratitil gert vart við sig á ný og hefur Foreman sett stefnuna á titilinn. Hann hef ur aldrei séð mann eins og mig“ segir George Foreman sem vill slást við Tyson Gamla brýnið, George Foreman, hefur lýst því yfir að hann vilji beriast við Mike Tyson um heimsmeistaratit- ilinn í þungavigt hnefaleika. Foreman er fertugur en lætur sér þó ekki allt fyrir briósti brenna. Foreman er heimskunnur hnefaleikari og árið 1973 varð hann heimsmeistari eftir sögulega viðureign gegn Joe Frazer á Jamaíka. Þar barði Foreman Frazer eins og harðfisk og eftir að Frazer hafði fallið sex sinnum í gólfið rotaði Foreman hann og varð heimsmeistari aðeins 24 ára gam- all. George Foreman er fyrst og fremst þekktur fyrir að vera mjög höggþungur og þeir eru margir andstæðingar hans sem kvartað hafa sáran yfir hrikalegum högg- um kappans. Þess eru dæmi að andstæð- ingar hans hafi hreinlega gefist upp fyrir lok bardaga vegna hræðslu við alvarleg meiösli. Foreman hefur æft vel upp á síðkastið og hungrið í heimsmeistaratitilinn hefur gert vart við sig á ný. Almennt er talið að Foreman eigi enga möguleika á að sigra Tyson. Foreman er mun hávaxnari og þyngri og hann er mun reyndari hnefa- leikari en Tyson. Á móti kemur að Tyson er mun yngri og sneggri og hefur verið ósigrandi í þungavigtinni undanfarin ár. Sérfræðingar í hnefaleikum segja að Foreman sé sá hnefaleikari sem jafnvel eigi mesta möguleika gegn Tyson í dag. Sjálfur er Foreman hinn brattasti eins og hnefaleikara er vani og hann segir: „Tyson hefur rotað marga hnefaleikara en hann hefur aldrei séð mann eins og mig í hringnum. Ég er ekki heimsins besti hnefaleikari. Eg er hins vegar sérstakur að því leyti að ég veiti andstæðingum mín- um vel útilátin högg og vonandi fær Tyson að finna fyrir þeim.“ Og nú er bara að vona að Foreman fái tækifæri til að slást við Mike Tyson og er talið líklegt að af shkum bardaga verði. -SK Sigurður i þnðja sæti - og Einar í því flórða á grand prix í gærkvöldi HSpjótkastaramir Sigurður Keppnin í spjótkastinu var annars Einarsson og Einar Vil- hörð og spennandi. Bretinn Steve frjálmsson voru heldur bet- Barcley sigraði með mjög góðu kasti ur í sviðsljósinu á grand sem mældist 85,86 metrar en það var prix mótinu i Búdapest í Ungverja- einmitt síðasta kast Bretans í gær- landi í gærkvöldi. Sigurður kastaði kvöldi. Sovéskur spjótkastari varð síðan í öðru sæti með ka9ti upp á og Einar varð íjórði með kast sem mældist 81,32 metrar. Árangur Sigurðar er sérstaklega athyglisverður en þetta er í fyrsta skipti sem hann hafnar fyrir ofan Einar á móti. 82,18 metra. Grand prix mótið í gærkvöldi var geysilega sterkt og því er árangur Islendingannameð miklum ágætum. -RR Björn Rafnsson. Atli í Tyrklandi næstu tvö árin - hefur gert samkomulag við Genclerbirligi frá Ankara Atli Eðvaldsson úr Vai, fyrirliði íslenska lands- liðsins í knattspyrnu, leikur með tyrkneska 1. deildarfélaginu Genclerbirligi frá Ankara næstu tvö keppnistímabil. Hann fer til félagsins þann 1. okt- óber og hefur gert samkomulag • Atli Eðvaldsson leikur með Genc- lerbirligi í Tyrklandi næstu tvö árin. um að leika með því út maí árið 1991. Atli fór tfl Tyrklands í síðustu viku og gekk frá samkomulagi við stjóm Genclerbirligi. „Mér líst mjög vel á mig hjá félaginu, að- stæður eru góðar og það greinflega vel rekið. Það er gaman að fá svona tækifæri, orðinn 32 ára gamall, enda var ég ekki með áætlanir um að fara aftur í atvinnumennskuna fyrr en Tyrkirnir fóru að hafa samband við mig,“ sagði Atli í samtali við DV í gær. Uerdingen selur Atla fyrir 50 þúsund mörk Atii lék í níu ár með atvinnuliðum í Vestur-Þýskalandi, Dortmund, Dússeldorf og Uerdingen. Hann hætti hjá Uerdingen vorið 1988 og hefur síðan leikið með Val og einnig smá- tíma með vestur-þýska áhuga- mannaliðinu Turu Dusseldorf síð- asta vetur. Samkvæmt reglum Knattspymusambands Evrópu á fé- lag sölurétt á leikmönnum í fimm ár eftir að þeir hætta sem atvinnumenn og það er því Uerdingen sem selur Atla til Tyrklands. „Tyrkimir þurfa aðeins að greiða Uerdingen um 50 þúsund mörk fyrir mig eða um eina og hálfa milljón króna og það er skýringin á því hve fast þeir sóttu að ég kæmi til þeirra. Ég hafði engan áhuga til að byrja með en eftir að þeir höföu hringt í mig daglega í langan tíma sló ég til og skrapp út til að líta á aðstæður og ákvað þá að taka boði þeirra,“ sagði Atli. Atli á batavegi Atli hefur ekki getað leikið með Valsmönnum upp á síðkastið vegna meiðsla í baki. Hann er á batavegi og telur möguleika á að geta veriö með gegn Víkingi á sunnudaginn og nær örugglega gegn Fram annan fimmtudag. „Og landsleiknum gegn Austurríkismönnum í Salzburg þann 23. má ég ekki fyrir nokkra muni missaaf!" sagðilandsliðsfyrirliðinn. -VS • Sigurlás Þorleifsson. Tveir fóru holu í höggi Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri: holu í höggi á 4. braut en Guðni á 6. braut vallarins að Jaðri. Tveir kappar, sem vom kunnir hér á árum áður sem knattspymumenn með ÍBA-liðinu, fóru fyr- ir skömmu holu í höggi á golfvell- inum á Akureyri. Þetta vom þeir Guðni Jónsson og Pétur Sigurðsson sem báðir snem sér að golfinu eftir að þeir hættu í knattspymunni. Pétur fór

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.