Dagur - 15.10.1985, Side 11
15. október 1985 - DAGUR - 11
Kvennaáratug lýkur:
Listahátíö eyfirskra
kvenna og kvennafrídagur
Senn líður að lokum kvenna-
áratugar Sameinuðu þjóð-
anna, en áratugurínn hófst
þann 24. október 1975 með
kvennafrídegi um land allt.
Eyfirskar konur ætla að
Ijúka áratugnum á svipaðan
hátt, þ.e. með því að eyfirskar
konur taki sér frí frá störfum
þann 24. október næstkom-
andi til að ræða kjör sín og úr-
bætur þar sem þeirra er þörf.
Til að vekja ærlega athygli á
konum og þeirra verkum verða
vikurnar á undan ýmsar sýningar
á list kvenna, aðallega eyfirskra.
Flestar sýningarnar verða síðustu
vikuna fyrir kvennafrídaginn,
þ.e. 19.-24. okt. Á sýningunum
munu konur einnig koma frain og
flytja tónlist, lesa ljóð og fremja
gjörninga. Má því segja að þetta
Eldur í
einangrun
Um kl. 5:30 á laugardag kvikn-
aði í einangrun á útvegg á
íbúðarhúsi á Ártúni í Kinn, en
það er 40 ára gamalt steinhús.
Verið var að vinna að því að
setja asfalt á sökkul hússins og
var gaslampi notaður við
verkið.
Klemenz Sigurgeirsson bóndi
Ártúni taldi sennilegt að eldur
hefði komist að einangrun, sem
er torf í veggnum, um sprungu.
Kallað var á slökkvilið frá Húsa-
verði listahátíð eyfirskra kvenna.
Punkturinn yfir i-ið verður svo
kvennafrídagurinn sjálfur. Þá
verður opið hús í Alþýðuhúsinu'
á Akureyri frá kl. 9 um morgun-
inn. Þar verður ýmislegt til
skemmtunar og fróðleiks, en
hápunkturinn verður fundur um
kjör kvenna.
Dagskráin vikuna fyrir
kvennafrídaginn er á þessa leið:
Laugardagur 19. október:
Sýning á handavinnu eyfirskra
kvenna opnuð í anddyri Iþrótta-
hallarinnar kl. 14. Sýningin verð-
ur aðeins opin í 2 daga, kl. 14-22,
báða dagana.
Fjórar myndlistarsýningar
kvenna opnaðar kl. 15.
í Dynheimum: Samsýning,
gjörningar framkvæmdir kl. 17.
í Lóni: Samsýning. Þar verður
flutt tónlist við opnun. Tónlist
verður einnig flutt sunnudag 20.
okt. kl. 15 og mánudagskvöld og
miðvikudagskvöld kl. 20.30.
í Gamla Lundi: Einkasýning
Rutar Hansen.
Samsýning á lofti. í Lundi verða
lesin ljóð eftir konur kl. 16 opn-
unardaginn og einnig sunnudag-
inn, mánudags- og miðvikudags-
kvöld verða einnig lesin ljóð
kvenna.
Sunnudagur 20. október:
Kynning á verkum Kristínar
Sigfúsdóttur, á Hrafnagili kl. 14-
22.
Fimmtudagur 24. október:
Þann dag verður opið hús í Al-
þýðuhúsinu á Akureyri frá kl. 9
um morguninn og fram eftir
kvöldi. Þar verður fjölbreytt
dagskrá allan daginn með þátt-
töku kvenna víða úr Eyjafirði. Á
dagskránni verður söngur, hljóð-
. færaleikur, upplestur, leikþættir,
o.fl. o.fl.
Kl. 14 verður almennur fundur
um kjör kvenna. Úrslit verða til-
kynnt í ljóða- og smásagnasam-
keppni sem efnt var til á meðal
eyfirskra kvenna.
Að lokum skal þess getið að í
þessari viku stendur yfir sýning
Þóru Sigurðardóttur í Dynheim-
um. Er sýningin opin fram á
fimmtudag og er opin frá kl. 15-
22.
Söngfólk
Kirkjukór Akureyrarkirkju vantar söngfólk í allar
raddir, þó sérstaklega tenór og bassa. Stjórnandi
kórsins er Jakob Tryggvason. Æfingar eru á
þriðjudagskvöldum. Nánari uppl. veitir formaður
kórsins Páll Bergsson í símum 25086 (vinna)
25795 (heima).
Notum ljós
í auknum mæli
— í ryki, regni.þoku
og sól.
UMFERÐAR
RÁÐ
AEG
frystikistur
AEG heimilistæki eru í sérflokki
hvað gæði snertir.
Áratuga reynsla og frábær þjónusta.
AEG tæki á hvert heimili.
uam- uy
glervörudeild.
SiMt
(96)21400
vík, en á meðan unnu heima-
menn að því að slökkva eldinn
með því að bora göt á vegginn
með steinbor og dæla vatni undir
þrýstingi inn. Slökkvistarfi lauk
ekki fyrr en um kl. 1 um nóttina
og hafði þá verið fengin loft-
pressa frá Húsavík og brotin nið-
ur hluti veggsins inn að einangr-
un. Skemmdir urðu á húsinu af
vatni og reyk, en ekki að fullu
ljóst hve miklar að sögn Kle-
menzar á sunnudag. IM.
Hofsós:
Hraöfrystihusiö
skilar hagnaði
- fjórða árið í röð
Allt útlit er fyrir að Hraðfrysti-
húsið hf. á Hofsósi muni skila
arði þetta árið, og er það þá
fjórða árið í röð sem það
gerist. Um 40 manns vinna hjá
Hraðfrystihúsinu sem á eign-
arhlut í Útgerðarfélagi Skag-
firðinga.
Togarar félagsins leggja einn
þriðja hluta hráefnisins upp hjá
Hraðfrystihúsinu. Er því ekið frá
Sauðárkróki til Hofsóss um 37
kílómetra leið.
„Við höfum verið heppin með
starfsfólk og ætli það sé ekki
stærsta málið í þessu. Hjá okkur
hefur unnið fastur kjarni í mörg
ár og það hefur mikið að segja,“
sagði Gísli Kristjánsson fram-
kvæmdastjóri Hraðfrystihússins
er hann var spurður um hverju
helst bæri að þakka það að frysti-
húsið skilar nú arði fjórða árið í
röð. - mÞÞ
Komið strax og gerið bestu kaupin
Kemman
Glerárgötu 34 • Sími 23504 • Akureyri
Markaðurinn
byrjaði á mánudag kl. 9
í versluninni Skemmunni
Mesta útsala, sem haldin hefur verið
á fatnaði á Akureyri í manna minnum....
Buxur - Peysur - Blússur - Skíðabuxur
Jakkar - Pils - Skyrtur - Bolir..
Allt á innan við hálfvirði...
Engin flík á meira en 500 kr...
Allt gæðavara...