Dagur - 23.06.1993, Page 1
76. árg. Akureyri, miðvikudagur 23. jíiní 1993 115. tölublað
Vel í fc 1 it 1 klæddur lim frá BERNHARDT C*>l 1 II || CA. Thc Tailor-I.ook ernabudin
I H HAFNARSTRÆTI92 • 602 AKUREYRI SÍMI96-26708 ■ BOX 397
Bæjarstjorn Akureyrar:
Staðfesti saimiing imi
nýbyggingu við FSA
Bæjarstjórn Akureyrar sam-
þykkti á fundi sínum í gær að
staðfesta samþykkt bæjarráðs
frá 10. júní sl. um samning
varðandi framkvæmdir og fjár-
mögnun nýbyggingar við
Fjórðungssjúkrahúsið á Akur-
eyri. Jafnframt samþykkti bæj-
arstjórn „að fela bæjarstjóra að
leita eftir afstöðu stjórnvalda til
íjárveitinga í verk þetta.“
Eins og fram hefur komið var
undirritun samningsins síðasta
embættisverk Sighvats Björgvins-
Akureyri:
Efnasprenging í
ruslagámi
- áburður og klór fara
ekki saman
sonar, þáverandi heilbrigðisráð-
herra. Samninginn undirritaði
ráðherra 11. júní sl. og þaó gerðu
einnig Halldór Jónsson, bæjar-
stjóri, og Valtýr Sigurbjamason,
formaður stjórnar FSA. Friðrik
Sophusson, fjármálaráðherra,
skrifaði hins vegar ekki undir og
ennþá er samningurinn því í raun
lítið annað en viljayfirlýsing.
A fundi bæjarstjórnar í gær var
auglýst eftir afstöðu fjármálaráð-
herra til samningsins og einnig
kom fram höró gagnrýni ein-
stakra bæjarfulltrúa á þaó ákvæði
hans að Akureyrarbær tæki á sig
greiðslu 6 milljóna króna í vexti
af framkvæmdaláni sem hann lán-
ar ríkinu á árunum 1996 og 1997
og fær endurgreitt 1998 og 1999.
Bæjarfulltrúar lýstu á hinn
bóginn yfir ánægju með fyrirhug-
aðar framkvæmdir við FSA. óþh
Togskipin Biiki EA-12 frá Daivík og Oddeyrin EA- 210 frá Akureyri hafa verið fyrir austan iand á frekar óvenju-
iegum veiðum, þ.e. þau draga saman trollið og spara með því m.a. hlera og olíu. Þessi veiðiaðferð á þó víða aillanga
hefð eins og t.d. hjá frændum vorum Færeyingum. Á myndinni sést Bliki náigast Oddeyrina til að taka annan tog-
vírinn um borð. Skipin hafa verið á veiðum fyrir austan iand. Mynd: Golli
Vörusýning í Murmansk á haustmánuðum:
Líkur á þátttöku eyfírskra fyiirtækja
og atvínnumálanefndar Akureyrarbæjar
Skömmu fyrir hádegi á mánu-
dagsmorgun varð efnasprenging
í ruslagámi hjá Eimskipafélagi
íslands á Akureyri þegar áburð-
ur blandaðist saman við klór;
ekki hlutust af alvarleg slys.
Að sögn Viðars Þorleifssonar,
varóstjóra hjá slökkvilióinu á Ak-
ureyri, varð íkveikja og efna-
sprenging þegar áburði og hreinsi-
efni var hellt úr plastkari í rusla-
gám þannig að efnin komust í
snertingu hvort vió annaó.
Slökkvilið var kallað á staðinn kl.
11:29 á mánudag.
Tildrög sprengingarinnar voru
þau að sl. föstudag hrundu nokkr-
ar fötur meö hreinsiefni þegar ver-
ið var að umskipa efninu sem
inniheldur klórblöndu. Efnið er í
duftformi og var því sópað í
plastkar þar sem fyrir voru u.þ.b.
þrjár skóflufyllur af uppsópuóum
áburði. Þegar karið var tæmt í
gáminn á mánudag varð sprenging
og töluverður eldur braust út aó
sögn varðstjóra.
Auk nokkurs munatjóns fengu
tveir starfsmenn slæm særindi í
hálsi en heilsa þeirra var talin í
lagi eftir rannsókn á sjúkrahúsi.
Á fundi bæjarstjórnar Akureyr-
ar í gær var samþykkt deili-
skipulag vegna kirkjugarðs-
byggingar á suðurbrún Búðar-
gils. Sex bæjarfulltrúar meiri-
hluta Sjálfstæðisflokks og Al-
þýðubandalags greiddu deili-
skipulaginu atkvæði, en fimm
fulltrúar minnihluta Fram-
sóknar- og Alþýðuflokks voru á
móti.
I bókun minnihluta kemur fram
stuðningur við sjónarmið Hall-
gríms Indriðasonar í skipulags-
nefnd, en hann taldi rétt aó falla
frá byggingu kirkjugarðshússins á
þessum stað en þess í stað yrði
það reist á mótum Þórunnarstrætis
og kirkjugarösvegar. Kolbrún
Þormóðsdóttir (B) lét til viðbótar
bóka að hún teldi réttast að stað-
setja nefnt hús við Fjórðungs-
sjúkrahúsið.
Að undanförnu hefur verið hug-
að að ferð til Rússlands af hálfu
einhverra þeirra fyrirtækja sem
tengdust heimsókn þeirra
þriggja Rússa frá Murmansk-
svæðinu sem dvöldu á sl. vetri
hér á Eyjafjarðarsvæðinu og
kynntu sér starfsemi íslenskra
fyrirtækja, aðallega tengdum
útgerð og fiskvinnslu. í haust
verður mikil vörusýning í
Murmansk sem áhugi er á að
sækja og fyrirhugað er að aðil-
ar frá Fiskmiðlun Norðurlands
hf. á Dalvík og Slippstöðinni
Odda hf. á Akureyri fari í heim-
sókn á Murmansksvæðið.
Á síðasta fundi atvinnumála-
nefndar Akureyrar var rætt um að
fulltrúi frá nefndinni yrði með í
Deiliskipulagið verður nú sent
skipulagsstjóra ríkisins til sam-
þykktar.
Þegar er búió að bjóða út um-
rædda byggingu, sem er um 450
fermetrar að stæró. Þorgils Jó-
hannesson á Svalbarðsströnd átti
lægsta tilboðið, um 39 milljónir
króna, 78% af kostnaðaráætlun
óþh
Vegagerð ríkisins hefur boðið út
fyrsta áfanga hálendisvegarins
á Mývatnsöræfum, milli Norð-
ur- og Austurlands.
Um er aö ræða 7,6 km kafla,
um 8 km austur af Námaskarói,
frá Austaraselslind og austur fyrir
för til Murmansk. Tilgangurinn er
að fylgja eftir þeim tengslum og
kunningsskap sem myndaðist vió
heimsókn Rússanna hingað en
m.a. var hér fulltrúi frá útgerð
sem telur 130 togara. Rætt er um
með hvaða hætti Slippstöðin
Oddi getur þjónustað þetta út-
gerðarfyrirtæki, en Fiskmiðlunin
keypti af þeim afla til vinnslu
hérlendis, og skapað þeim þannig
gjaldeyri til þess aó gera þeim
kleift að greiða þá þjónustu sem
útgerðarfyrirtækið mundi m.a.
Átaksverkefni í atvinnumálum í
Mývatnssveit fól síðla vetrar
Þorvaldi Erni Árnasyni, líffræð-
ingi, að taka saman skýrslu um
möguleikann á því að koma á
fót einskonar náttúruskóla í
Mývatnssveit. Skýrsla Þorvald-
ar liggur nú fyrir og verður
kynnt sveitarstjórn Skútustaða-
hrepps fljótlega.
Skýrsla Þorvaldar er um margt
athyglisverð. I henni er rætt um
þann möguleika að bjóða upp á
gistingu, leiðsögn og fræðslu á
sviði náttúruvísinda í Mývatns-
sveit fyrir grunnskóla- og fram-
Dettifossafleggjara. Vegarstæði
yfir Austaraselsheiði mun flytjast
töluvert til suðurs og tekur það
mið af snjóalögum.
Verkinu skal að fullu lokið eftir
rúmt ár, 25. júlí 1994. Tilboð
verða opnuð 28. júní nk. óþh
kaupa á Akureyri. Geysilegur
skortur er fyrir austan á erlendum
gjaldeyri.
„Það er verið að ræða þessi mál
hér á þessu svæói og verið er að
skoða möguleika á samstarfi með
það í huga að laða hingaó aukin
viðskipti við Rússana t.d. í þjón-
ustu við skip, klassanir o.fl. og þá
opnast möguleikar á því að taka
fisk upp í sem greióslu. Málið er
hins vegar á byrjunarstigi og eðli-
legt framhald væri heimsókn á
Murmansksvæðió," sagði Ásgeir
haldsskólanemendur og einnig
ferðamenn. Þorvaldur Orn gerir
ráð fyrir aó sjónum yrði m.a.
beint að gróður- og dýralífi, jarð-
myndunum og atvinnuháttum.
Sveitarstjórn Skútustaðahrepps
mun á næstunni fjalla um skýrsl-
una og í framhaldi af því verða
Svokallaður faraldsroði sem
hefur verið að ganga undanfarið
er nú í rénun að sögn Péturs
Péturssonar sem gegnir stöðu
yfirlæknis við heilsugæslustöð-
ina á Akureyri í forfóllum. Um
er að ræða smitsjúkdóm sem
kemur í faröldrum á 5-10 ára
fresti.
„Það er mjög erfitt að átta sig á
hátterni þessa faraldurs," segir
Pétur og er ástæðan sú aó smit-
gengið er nokkuð hægfara. Sjúk-
dómurinn iýsir sér í roða eða út-
brotum.
Að sögn Péturs mælist meira
en helmingur fullorðinna meó
Arngrímsson hjá Fiskmiðlun
Norðurlands hf. á Dalvík.
„Það hefur einnig verið rætt um
vinabæjasamband og ef menn
hafa hug á því að vinna enn frekar
að framgangi þeirra mála þá er
eðlilegt að Rússarnir verði heim-
sóttir til að koma þeim tengslum
á“.
Líkur eru því á því að á áður-
nefndri vörusýningu í Murmansk
í haust verði fulltrúar frá iðnaðar-
og útgeróarfyrirtækjum á Eyja-
fjarðarsvæðinu. GG
væntanlega teknar upp viðræður
við menntamálaráóuneytið og
umhverfisráðuneytið um málið.
Einnig er nefndur sá möguleiki
að bjóða upp á aðstöðu til
kennslu i náttúruvísindum fyrir
erlenda stúdenta í Mývatnssveit.
óþh
mótefni gegn faraldsroða eða
fimmta sjúkdómnum sem kallast
„erythema infectiosum“ á latínu. í
skýrslu frá heilsugæslustöðinni á
Akureyri til landlæknis fyrir maí-
mánuð eru greind 7 tilfelli af far-
aldsroóa og er það sem sagt
óvenjumikið en eins og nafnió
bendir til er um faraldssjúkdóm að
ræóa.
I skýrslunni kemur einnig fram
að 73 greindust með streptó-
kokka-hálsbólgu. ^,Þetta eru
óvenjumörg tilfelli en er þó
greinilega í rénun,“ segir Pétur
Pétursson læknir í samtali við
Dag. GT
GT
Bæjarstjórn Akureyrar:
Kirkjugarðsbyggingm samþykkt
Mývatnsöræfi:
Fyrsti áfangi boðinn út
Mývatnssveit:
Náttúruskóli settur á stofn?
Heilsugæslustöðin á Akureyri:
Faraldsroði í rénun