Þjóðviljinn - 27.01.1955, Blaðsíða 1
Ríkisstjórn Vestur-Þýzka-
lands lýsti yfir í gær að hún
fagnaði tilskipun Æðsta ráðs
Sovétrikjanna um að lokið sé
stríðsástandi við Þýzkaland.
vSegir vesturþýzka stjórnin, að
þetta sé skref í áttina til eðli-
legrar sambúðar og stjórnmála-
sambands milli Sovétríkjanna
og Þýzkalands.
Tveir brezkir tosarar íórust í gær út af Djúpi
og Egiil rauði strandaður undan GrænnhUð
Kl. 18.43 barst svo neyðar-
skeyti frá Norðfjarðartogaranum
Agli rauða um að skipið væri
strandað undir Grænuhlíð og
reyndist strandstaðurinn vera
eina sjómíiu utan við Sléttu-
tanga.
Togararnir Elliði, Austfirðing-
ur og Neptúnus svo og brezkur
togari voru þarna í nánd og
fóru þegar á strandstaðinn. Settu
Elliði og Austfirðingur út báta
og voru að koma að hinu strand-
aða skipi er síðast fréttist, en
töldu litlar likur til að björgun
tækist frá sjó.
Björgunarleiðangur frá Isafirði var
á leið á strandstaðinn í gærkvöld
Talið er víst að tveir brezkir togarar hafi f&rízt
út af fsafjarðardjúpi í gær og Norðfjarðartogarinn
Egill rauði strandaði undan Grænuhlíð, 1 sjómilu
utan við Slttutanga.
Björgunarleiðangur lagði af stað frá fsafirði í
gærkvöld til þcns að gera tilraun til að bjarga sfcips-
höíninni á Agii rauða.
Ofsaveður var á miðunum út
af Vestfjörðum í gær og sendi
Slysavarnafélagið út aðvörun til
skipa á þessum slóðum síðdegis.
Um kl. 14 sendi fyrri brezki
togarinn út neyðarskeyti og til-
kynnti að sjór hefði fleigt skip-
inu á hliðina. Eftir það hcyrðist
ekkert til skipsins. Fóru fjórir
brezkir togarar sem voru á ná-
lægum slóðum á vettvang en
urðu togarans ekki varir.
KI. 16.12 sendi annar brezkur
togari út neyðarskeyti og kvaðst
kominn á hliðina og nokkru síð-
ar arniað skeyti um að skipið
væri að sökkva.
Vestfirðir: Hvass norðaustan.
Snjókoma. Vestfjarðamið: Norð-
austan stormur. Snjókoma. Galt-
arviti kl. 23: Norðaustan, 5 vind-
stig. Mikill sjór. Hornbjargsviti:
Austnoraustan, 8 vindstig. Haf-
rót.
Séðustu fréttir
Fréttaritari Þjóðviljans á ísa-
firði simaði um miðnættið að
auk togaranna væri varðskipið
Ægir komið á strandstaðinn.
Björgunarsveitin frá ísafirði
hafði einnig náð þangað á m.b.
Heiðrúnu. Leizt mönnunum illa á
björgunarmöguleika á sjó og
voru uppi ráðagerðir um að Æg-
ir reyndi að ná Iandi þama
skammt frá. Heiðrún hafði feng-
ið bát og fieka frá Austfirðingi.
Ljóskösturum var varpað á Egil
rauða og sáust skipverjar i
brúnni og á hvalbaknum.
Dagsimaneenii! Munið íundiim
um uppsögn samninganna í kvöld
Verkamaimafélagið Dagsbrún heldvr félagsfund
í kvöld í Iðnó kl. 8.30.
Fundarefnið er uppsögn samninga félagsins við
atvinnurekendur. Er pað eina umrœðuefni fund-
arins til pess að félagsmönnum gefist sem beztur
kostur á að rœða petta mikla hagsmunamál sitt.
Stjórn Dagsbrúnar skorar eindregið á félags-
menn að hugsa málið vel, fjölmenna á fundinn,
mœta stundvíslega og taka pátt í umrœðum um
málið.
Dagsbrúnarmenn. Munið að fundurinn er í
kvöld í Iðnó.
Kínverjar á Taivan vinna að flugvallargerð í skyldu-
vinnu undir yfirstjóm verkfrceðingadeildar bandaríska
hersins.
Björgunarsveit frá ísafirði
lagði af stað norður á strand-
staðinn með m. b. Heiðrúnu kl.
21.43 og ætlaði að freista að
komast í land innan við Sléttu-
nes. Ekkert hafði heyrzt frá Agli
rauða eftir kl. 7.30 síðdegis í gær.
Veðurlýsing á þessum slóðum
var á þessa leið í gærkvöld:
Kjarnorkuvopi
fií loftvorno
Wilson, landvarnaráðherra
Bandaríkjanna, sagði landvarna-
nefnd fulltrúadeildar þingsins í
gær að unnið væri að því af
kappi að gera kjamorkuvopn,
sem hægt væri að beita við loft-
vamir. Fréttamenn geta þess til
að hann eigi við kjarnorku-
sprengihleðslur í flugskeyti gegn
flugvélum.
Bandaríkin sek um freklega áhluiun í borg-
arastyrjöldina í Kína, segir Attiee
Sjöundi floti Bandarikjanna hnappast
saman út af ströndum Kina
ÞaS liggur ljóst fyrir að aðgerðir Bandaríkjastjórnar
em skýlaus íhlutun í innanlandsátök í Kína, sagði Clem-
ent Attlee, foringi brezka Verkamannaflokksins og fyi’r-
verandi forsætisráðherra, í gær þegar hótanir Eisenhow-
ers um að beita herafla Bandaríkjanna til að hjálpa
Sjang-Kaisék að halda Taivan og öðrum kínverskum eyj-
um voru ræddar á þinginu í London.
Að kröfu Attlees gerði Ant-
hony Eden utanríkisráðherra
grein fyrir afstöðu brezku stjórn-
arinnar til síðustu atburða við
Kína.
Ráðherrann sagði að brezka
stjórnin liti það mjög alvarleg-
um augum að bardagar skyldu
hafa blossað upp á þessum slóð-
um. Æðsta markmið hennar væri
að fá bundinn endi á vopnavið-
skiptin. Engin lausn á þessum
vandamálum myndi fást með
valdbeitingu.
Brezka þjóðin virðir Eisenhow-
er forseta og treystir því að
hann beiti ekki hervaldi nema
um beina árás á Taivan sé að
ræða, sagði Eden.
Kína á rétt á sæti
meðal SÞ
Attlee svaraði Eden og sagði,
að af Bandaríkjanna hálfu væri
greinilega um að ræða íhlutun
í kínversk innanlandsátök. Hann
kvaðst vilja vekja athygli á, að
hér væri um einhliða aðgerðir af
hálfu Bandaríkjanna að ræða,
SÞ ættu engan hlut að þeim.
Fyrsta skrefið til að leýsa
þessa flækja á íriðsamlegan hátt
er að láta alþýðustjórn Kína fá
sæti það hjá SÞ sem henni ber
með réttu, sagði Attlee.
Taivan og smáeyjarnar
Eden hafði gert greinarmun í
ræðu sinni á Taivan og smáeyj-
unum skammt undan strönd
Kína. Sagði hann að Taivan
hefði ekki verið hluti af Kína um
langan tíma. Öðru máli gegndi
um smáeyjar eins og Kvimoj og
Matsu, brezka stjórnin hefði
alltaf viðurkennt að þær væru
hluti af Kína og hún gæti vel
skilið að stjórnin í Peking vildi
Framhald á 5. síðu.