Þjóðviljinn - 04.07.1965, Page 12
Tveir dagar og engin oiía
Þegar skógræktarstjóri er
búinn að taka við nótu fyr-
ir benzíni og smurolíu, 'gefst
Árna Sigursteinssyni, af-
greiðslumanni Skeljungs við
Reykjanesbraut örlítil stund.
Hann segist fús til viðræðna
um verkfall starfsfólks oliu-
félaganna. sem hefst á
morgun. Ég hef unnið við
benzínafgreiðslu í fimmtán
ár, segir Árni og þekki mæta
vel þau kjör, sem hér er
að fá.
— Hvernig er vinnu ykkar
háttað?
— Við vinnum á tvískipt-
um vöktum. Skiptingin getur
hins vegar verið eftir sam-
komulagi hjá afgreiðslu-
mönnunum, en á sumrin er
unnið hér frá 7.30—10.30
Sunnudagur 4.
146. tölublað.
A SaHundur Norræna
samvinnusambands.
Olíustöð Skcljungs við Reykjan,esbraut.
Nú hefur veriS boðað' verkfall hjá olíufélögunum á
morgun og þriðjudaginn. Verkfall þetta er ætlað til
að ýta á eftir samningum og líklega eru fáir, sem
skilja betur en starfsmenn olíufélaganna, hve mikil
þörf er á því að bæta kjörin. Fáir munu hafa smán-
arlegri laun en einmitt starfsmenn olíustöðvanna hér
á landi og er þá langt jafnað. Va-tmaður, sem innir
af hendi 46 tíma vinnu á viku fær tæpar 8 þúsund
krónur á mánuði og afgreiðslumaður, sem gegnt hef-
ur þeim störfum hálfan annan áratug fær um 10
þús. kr. á mánuði.
Olíufélögin eru sem kunnugt er angar gríðarstórra
risasamsteypa erlendra. Auðfélög þessi eru ein þau
ríkustu í heimi, og starfsmenn þeirra erlendis búa við
mun hærri laun en hér á landi. Þess vegna ættu fé-
lögin að geta greitt hærri laun hérna, en atvinnu-
rekendaþjónustan er söm við sig og sein að átta sig
á staðreyndum.
Hér fer á eftir stutt viðtal við Áma Sigursteinsson,
sem verið hefur starfsmaður á olíustöð í 15 ár og er
öllum hnútum kunnugur.
nema á sunnudögum, þá er
aðeins unnið til 10. Sumir
skipta vöktunum kl. 2 á dag-
inn. Hins vegar er unnið
til 11 á veturna. Að jafnaði
árið um kring er vinnuvik-
an hjá okkur 46 tímar.
— Og launin?
Launin eru smánarlág.
Ég man ekki alveg hver
byrjunarlaunin eru, en eftir
2 ár eru launin 9.777.00 plús
þessi vísitöluuppbót frá í vor.
Síðan er engin hækkun á
laununum og þú getur nú
nærri hvort nokkur getur lif-
að af þessari hýru.
— Það er semsé engin
starfsaldurshækkun.
— Nei, ég hef unnið við
afgreiðslu á benzínstöð í
fimmtán ár og hef sömu laun
og þeir, sem unnið hafa í
tvö.
— Hvenær er mest að gera
hjá ykkur?
— Á helgum og rétt fyrir
þær.
— Eru menn nokkuð farn-
ir að hamstra fyrir verkfall-
ið?
— Þeir byrja á því á
föstudag, laugardag og
sunnudag. Þetta kemur því
þannig út hjá, okkur, að við
verðum að vinna mjög mik-
ið fyrir og eftir verkfallið.
Og ekki má bæta við mönn-
um verkfallsdagana.
— Að lokum, Árni, hvað
viltu segja um þessa aðferð
í kjarabaráttunni?
— Ég tel hana sannarlega
þess verða aö reyna hana.
Verkfall í hálfan mánuð t.d.
er flestum næstum ofviða,
því launin eru ekki svo mik-
il að hrökkvi fyrir nauð-
þurftum svo lengi. Þessi
verkföll í einn eða tvo daga
koma því betur út fyrir okk-
ur, en koma óneitanlega tals-
vert við þá, sem þeim er
beitt gegn. Verkföllin eru
einu vopnin, sem við höfum
í kjarabaráttunni og þeim
verðum við að beita, þegar
viðsemjendumir hafa ekki
þá sanngimi til að bera
að vilja koma til móts við
hóflegar kröfur okkar. Við
starfsmenn olíustöðva verð-
um flestir að hafa tvö störf
til að komast af. Allir sjá
hversu slæmt slíkt hlýtur að
vera, því 46 stunda vinnu-
vika er hámark fyrir þá,
sem vilja lifa menningarlífi.
Aðalfundur Norræna sam-
vinnusambandsins (NordiskAnd-
eslforbund, NAF) verður hald-
inn að Hótel Sögu dagana 4.—7.
júlí næstkomandi. Er þetta í
fjórða skiptið, sem samtökin
halda aðalfund sinn hér á landi.
Á fundinum mæta um hundrað
fulltrúar, íslenzkir og erlendir.
NAF var stofnað 1918 til inn-
kaupa fyrir samvinnusamtökin í
Svfþjóð, Noregi og Danmörku.
Tíu árum síðar gengu svo
finnsku samvinnusamböndin tvö
í sambandið og 1949 bættist
Samband ísl. samvinnufélaga í
hópinn. Hin sex samvinnu-
sambönd Norðurlanda eiga því
öll aðild að. þessum heildarsam-
tökum.
Tilgangur NAF er fyrst og
fremst að sjá um vöruinnkaup
fyrir aðildarsamtök sín á heims-
markaðinum á sem hagkvæm-
ustum kjörum. Aðalskrifstofur
sambandsins eru í Kaupmanna-
höfn, en auk þess hefur það
skrifstofur í Lundúnum, San
Francisco, Valensíu á Spáni og
Santos í Brasilíu. Af vöruteg-
undum þeim, er sambandið
kaupir inn, má nefna kaffi, á-
vexti, hrísgrjón, kakó og gúmmi.
Umsetning NAF á árinu 1964
nam 511,6 miljónum danskra
króna og jókst á árinu um
24%. Hluti S.Í.S. í umsetning-
unni hækkaði um 4%. Eftir að
samvinnusamböndunum hafði
verið úthiutað tekjuafgangi, að
upphæð d. kr. 2.5 milj. varð
tekjuafgangur á rekstrarreikn-
ingi d. kr. 119.437. Að viðbætt-
um eftirstöðvum frá fyrra ári,
sem nema d. kr. 926.984 eníJ til
ráðstöfunar á aðalfundi d. kr.
446.457.
1 stjórn • NAF eiga sæti: Frá
Svíþjóð: Garl Albert Anderson,
sem er formaður, Harry Hjalm-
arson, John Gillberg. Frá Dan-
mörku: Ebbe Groes, sem er
varaformaður, Poul Nybo And-
ersen. Frá Finnlandi: Paavo
Viding, Uuno Takki. Frá Nor-
egi: Peder Söiland. Frá Islandi:
Erlendur Einarsson. Fram-
kvæmdastjóri NAF er Svíinn
Lars Lundin.
ÆS/ skipar nefnd tif
fherferðar gegn hangri
Á síðasta þingi Æskulýðssam-
bands íslands var einróma sam-
þykkt, að samtökin skipuðu
nefnd, er starfaði að fram-
kvæmd „herferðar gegn hungri",
(Freedom from Hunger Camp-
aign), en hún fer fram um
allan heim á vegum Matvæla-
og landbúnaðarstofnunar Sam-
einuðu þjóðanna (Food and
Agriculture Organisation). Skal
nefndin starfa að fjársöfnun hér
á landi til ákveðins verkefnis í
þróunarlöndunum, en ákveðið
verður í sameiningu af hinni ís-
lenzku framkvæmdapefnd HGH
og Matvæla- og landbúnaðar-
stofnun Sameinuðu þjóðanna.
Nefndinni til aðstoðar starfar
samstarfsnefnd, er skipuð er
einum fulltrúa frá hverju aðild-
arsambandi ÆSÍ.
:*i> í-|1 iiJiW ^j,
Síðastliðið haust skipaði ÆSÍ
undirbúningsnefnd til þess að
athuga möguleika á því, að sam-
tökin tækju þátt í alheimsbar-
áttu þessari. í nefndina var
skipaður einn fulltrúi frá hverju
Framhald á 2. síðu.
Árni afgreiðir hjá SHELL.
Jón Póll hjá Jassklúbbnum
Á mánudagskvöldið gefnr
Jassklúbbur Reykjavíkur jass-
unnendum kost á að hlýða á Jón
Pál gítarleikara á hinu vikulega
Jasskvöldi er þeir halda f Tjam-
arbúð.
Hafa forráðamenn Jassklúbbs-
Ins fengið Jón Pál hingað til
lands, einungís í þessu skyni.
en hann hefur leikið nú í rúmt
ár með Neó-tríóinu í Danmörku,
og mun hann aðeins dveljast
hér á landi í rúman sólarhring.
Með Jóni Páli munu leika úr-
valsjassleikarar, þeir Þórarinn
Ólafsson, Sigurbjörn Ingþórsson
og Pétur Östlund. Einnig mun
koma fram á jasskvöldinu hljóm-
«*ult Gunnars Ormslev og fleiri.
Jassumjendum er ráðlagt að
nota þetta eina tækifæri, sem
þeim gefkt nú í langan tíma lil
að hlusta á Jón Pál.
IIÍSIIISEYJMIIIOHOSH SURTSEY
í bóknni er rakin sagan af
gosinu og myndun eyjarinn-
ar fram í apríl sl. 24 síður
myndir, 12 I litum eftir kunn-
ustu ljósmyndara.
SURISEY
SURTSET
SDOISEI
snDiniifpnn
hIH
GISLI B. BJÖRNSSON teiknari sá um
listrænan frágang bókarinnar. Hún er
gerð hér heima að öllu leyti, myndamót
í Kassagerð Reykjavíkur, prentun og
bókband í Hólum hf. Stærð bókarinnar
er stillt í hóf, svo að hún gæti orðið sem
ódýrusf. Hún kostar innbundin, með hlífð-
arkápu í litum 160 kr., eða með sölu-
skatti 172 kr.
Bókaútgáfan HEIMSKRINGLA
Laugavegi 18. símar 15055, 22973