Þjóðviljinn - 29.10.1965, Blaðsíða 2
2 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN — Föstudagur 29. október 1965.
íft1l#ÖNA
»“««l 'ftýt
K'Öl^ÖNA
, in*m /-ót
Ktb'fi$1ÖNA
KÓ'rÖNaW KÓÓlbNA
W*M« firt fl *“'< /-t>t
KÓlfi^ÖNA
Hm« /-xV C
KÓ^rtÖNA
HlBIBt /-L,t
SKRIFSTOFUSTARF
Allir eru þeir vandlátir.
Allir velja þeir Korona-fötin.
STARF SIVTAN NAHALD
Tilkynning frá
SparisjóBi Ðalasýslu
Hér með tilkynnist heiðruðum viðskipta-
vinum vorum, að hinn 30. október 1965
mun Búnaðarbanki íslands yfirtaka rekstr-
arstarfsemi vora í Búðardal.
Jafnframt því, sem vér þökkum viðskipta-
mönnum vorum góð viðskipti á undanföm-
um áratugum, væntum vér þess, að útibú
Búnaðarbankans í Búðardal megi njóta
þeirra í framtíðinni.
SPARISJÓÐUR DALASÝSLU
Norrænir hljám-
listarmenn þinga
í liyrjun þessarar viku var
haldinn hér í Reykjavík fund-
ur í Sambandi norrænna hljóm-
listarmanna, en aðild að því
eiga félög hljómlistarmanna á
Norðurlöndum.
Fundinn sátu formaður sam-
bandsins. Freddy Anderson frá
Svíþjóð, ásamt framkvæmda-
stjóra sambandsins, Svíanum
Sven Blommé. Aðrir stjómar-
meðlimir sambandsins, sem
sátu fundinn, vom Willy Pries
frá Danmörku. Sigurd Lönseth
frá Noregi, Eero Linnaiá frá
Finnlandi og Hafliði Jónsson
gjaldkeri Félags ísi. hljómlist-
armanna. Viðstaddir fundar-
höidin vom og stjórnarmeöiimir
Félags ísl. hljómlistarmanna.
Tekin vom til umræðu og
afgreidd fjöldi mála, er vom
sameiginleg hagsmunum hljóm-
listarmanna á Norðurlöndum.
Það var ofarlega á baugi rétt-
ur hljómlistarmanna varðandi
opinberan flutning á hljómplöt-
um. En tillit hefur nú verið
tekið til þess réttar víða um
heim, m.a. á flestum Norður-
löndunum. Fá hljómlistarmenn
sérstaka greiðslu þegar plata
er flutt opinberlega svipað og
tiðkazt hefur til þess, að því
er við kemur tónskáldum.
Þá var og rætt um skipti
hljómsveita landa á milli, en
þetta hefur verið nokkurt
vandamál í Skandinavíu til
skamms tíma.
Þing Sambands norrænna
hljómlistarmanna er haldið
fjórða hvert ár, en stjómar-
fundur á ári hverju og var á-
kveðið að halda næsta stjóm-
arfund í Stokkhólmi að vori.
Á miðju næsta sumri verður
haldið upp á fimmtíu ára af-
mæli sambandsins og munu
þau hátíðahöld fara fram í
Kaupmannahöfn.
Tilkynning
um atvinnuleysisskráningu.
Atvimiuleysisskráning samkvæmt ákvörðun laga
nr. 52 frá 9. apríl 1956, fer fram í Ráðningarskrif-
stofu Reyk’javíkurborgar, Hafnarbúðum v/Tryggva-
götu, dagana 1., 2. og 3. nóvember b.á., og eiga
hlutaðeigendur, er óska að skrá sig samkvæmt
lögunum að gefa sig fram kl. 10—12 f.h. og kl.
1—5 e.h., hina tilteknu daga.
Óskað er eftir að þeir, sem skrá sig séu viðbúnir
að svara meðal annars spumingunum:
1. Um atvinnudaga og tekjur síðustu þrjá
mánuði.
2. Um eignir og skuldir.
Borgrarst.iórinn í Reykjavík.
Nylon-úlpur
Malskinnsbuxur, vinnubuxur í úrvali. —■'
Verðið mjög hagstætt.
Verzlun Ö. L.
Traðarkotssundi 3 (móti Þjóðleikhúsinu).
Kaupfélag úti á landi vantar vanan
skrifstofumann nú þegar, eða frá næstu
áramótum. Hagstæð laun. Leigufrítt
húsnæði. — Upplýsingar gefur Starfs-
mannahald S.Í.S.
Fast-
eignaviðskipti
Ríkissjóður hefur auðsjá-
anlega tvennskonar reglur i
fasteignaviðskiptum við æðstu
embættismenn sína. Þurfi
tiginn valdamaður að losna
við hús eru undirmenn hans
látnir annast matið og síðan
er húsið keypt á tvöföldu
verði. En þurfi embættis-
maðurinn að komast yfir hús
sem ríkið á er þess vand'lega
gætt að verðið einkennist af
ýtrustu sanngirni. Þannig
ber fróðum mönnum saman
um að Valdimar Stefánsson,
saksóknari ríkisins, hafi gert
ágæt kaup þegar hann eign-
aðist efri hæð húseignarinn-
ar Ægissíðu 98 fyrir háifa
aðra miljón króna, og hefði
Guðmundur 1. Guðmundsson
borið skarðan hlut frá borði
ef hús hans hefði verið met-
ið á hliðstæðan hátt.
En þetta er ekki í fyrsta
skipti sem ríkissjóður og
Valdimar Stefánsson eiga
viðskipti út af efri hluta hús-
eignarinnar Ægissíðu 98.
Valdimar hóf sjálfur á sfnum
tíma að reisa þetta hús og
ætlaði sér efri hluta þess.
Var byggingin vönduð, svo
sem vera bar, og reyndist
næsta dýr, og svo fór að
Valdimar Stefánsson, sem þá
var sakadómari, komst í fjár-
þrot og voru allar horfur á
því, að hann yrði að selja
hæðirnar og taka á sig þung-
an fjárhagslegan skell. En
þá reyndist ríkissjóður Valdi-
mar ekki lakari haukur f
horni en Guðmundi 1. Guð-
mundssyni síðar; tók ríkið
við þessum tveim hæðum,
fyrst með Jeigusamningi en
síðan sem skráður eigandi, og
gerði þær að embættisbústað
Valdimars Stefánssonar saka-
dómara. Þannig losnaði Valdi-
mar úr fjárhagsörðugleikum
sínum og gat búið í þeim
vistarverum sem hann hafði
í öndverðu ætlað sér. Þar
sem hér var um sakadóm-
arabústað að ræða hefði
Valdimar Stefánsson átt að
flytjast úr honum, þegar
hann tók við starfi saksókn-
ara, og Þórður Björnsson að
njóta útsýnisins við Ægissíð-
una í staðinn, en með hin-
um nýja kaupsamningi hef-
ur sem betur fer verið komið
í veg fyrir að saksóknari
þurfi að standa í hvimleið-
um flutningum.
Upphaflega tók ríkissjóður
við íbúð Valdimars 29da marz
1950. Fjórum dögum áður —
25ta marz 1950 — hafði
Valdimar kveðið upp dóma
sína út af atburðum þeim
sem gerðust 30asta marz árið
áður. — Austri.
FYRIRLIGGJANDI EFTIRTALDAR
byggingavörur:
ÞAKJÁRN og ÞAKSAUMITR
MÚRHÚÐUNARNET
LYKKJUR og venjulegur SAUMUR
ARMSTRONG hljóðeinangrunarplötur
KORK-O-PLAST vinylhúðaðar korkgólf-
flísar og tilheyrandi lím
PLASTVEGGFÓÐUR með frauðplasti á
baki og tilheyrandi lím
GLUGGAPLAST
PROFIL HARÐTEX
plötustærð 4x9 fet — ódýrt
GÓLF & VEGGMÓSAIK í úrvali
ARMSTRONG lím fyrir mósaik
og fugusement.
B Y GGIN G A V ÖRU VERZLUN
Þ. Þorgrímsson & Co.
Suðurlandsbraut 6 — Sími 38640 (3 línur) „
NE0D0N
; • i/ . ’ ’•
ÞÉTTIEFNI
MÁLNINGARVÖRUR S.F.
Bergstaðastræti 19.
Tilkynning
frá byggingafulltrúa Kópavogs.
Framvegis verða ekki gefin út vottorð um að hús
séu fokheld nema eftirtöldum atriðum sé fullnægt:
1. Úttekt hafi farið fram á brunnvatnslögnum.
2. Fyllt sé að húsi og lóð jöfnuð.
Að öðru leyti gilda fyrri reglur um fokheld hús.
Kópavogi 26/10 1965.
Byggingafulltrúi.
V