Þjóðviljinn - 29.10.1965, Blaðsíða 4
4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN — Pöstudagur 29. október 1965.
Otgeíandi: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósialistaflokk-
urinn. —
Ritstjórar: Ivar H. Jónsson (áb), Magnús Kjartansson,
Sigurður Guðmundsson.
Ritstjóri Sunnudags: Jón Bjamason.
Fréttáritstjóri: Sigurður V. Friðþjófsson.
Auglýsingastjóri: Þorvaldur Jóhannesson.
Ritstjóm, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja. Skólavörðust. 19.
Sími 17-500 (5 Iínur). Áskriftarverð kr. 00.00 á mánuði.
Algert jafnrétti
J^ynþáttas’tríð er oftast nefnt nú um sinn þegar
rsett er um Ródesíu eða Suður-Afríku, þó það
sé að sjálfsögðu miklu víðar en í þeim Afríku-
löndum að hroki og arðrán hvítra manna gagnvart
mönnum annarra kynþátta hefur gert sambúð
þeirra að torleystu vandamáli. Þannig hefur at-
hygli manna um heim allan beinzt að frelsis- og
réttindabaráttu sver'tingjanna í Bandaríkjunum,
sem virðist nú sækja í sig þunga og afl með ári
hverju, enda óspart á það minnt að heil öld er lið-
in frá því lýst var yfir frelsi svartra manna í
Bandaríkjunum og jafnframt að enn sé furðu
langt frá því að það frelsi sé virt af hvítum lands-
mönnum og stjómarvöldum.
Jslendingum er ekki gjarnt að láta litarhátt ráða
dómum sínum um menn og þjóðir, og eiga
sennilega bágt með að gera sér í hugarlund það
ástand þessara mála sem ríkir enn í Suðurríkjum
Bandaríkjanna, eða þá lífshætti sem hinn svarti
kynþáttur verður að láta sér lynda i fátækra-
hverfum stórborganna um gervöll Bandaríkin.
Þeir sem ekki eiga þess kost að kynnast því lífi
og andrúmslofti af eigin reynd, munu helzt fá
hugmynd um það í skáldritum bandarískra rit-
höfunda, bæði hvítra og svartra, sem margir
hverjir hafa lýst lífi og frelsisbaráttu hins svarta
kynþáttar af dirfskufullri ádeilu og raunsæi.
Fræðiritum sem fjalla um kynþáttamálið í Banda-
ríkjunum af víðsýni og skilningi á málstað hins of-
sótta svarta kynþáttaminnihluta fer einnig fjölg-
andi.
j^Jeira að segja sumir þeirra forvígismanna svert-
ingjahreyfingarinnar í Bandaríkjunum sem
friðsamlegast hafa viljað fara að öllu fram að
þessu, í þeirri von að hinn hvíti meirihluti þjóð-
arinnar vitkaðist smám saman og færi að unna
svörtum meðbræðrum jafnréttis og lýðræðis, eru
að verða langþreyttir á biðinni. Það hefur m.a.
komið fram í sambandi við sýknun Ku Klux Klan-
morðingjans nýlega. Vesturlandafréttastofur hafa
flutt fregnir af fagnaðarfundum hins bandaríska
glæpafélags, þar sem þeir sem komu við sögu
í morðmáli hvítu konunnar Violu Luzzio hafa
látið hylla sig sem hina einu sönnu ættjarðarsinna,
klæddir kufli og hettu undir logandi krossmerkj-
um. Hin myrta kona var einn hinna hugdjörfu
Bandaríkjamanna sem rísa gegn kynþáttahatri
samlanda sinna og taka virkan þátt í réttindabar-
áttu svartra þegnsystkina. Þeipi fer fjölgandi þó
enn sé við gífurlegt ofurefli að etja, ofurvald
bandaríska auðvaldsins sem hefur hagsmuni af
því að halda hirium svör'tu þegnum Bandaríkjanna
í fátækt, stutt hroka hins hvíta manns og oftrú á
yfirburði kynþáttar síns, hroka sem verið hefur í
ræktun í marga ættliði Bandaríkjamanna. Enda er
svo hert orðið að flækjum kynþáttamálsins í
Bandaríkjunum að það getur kostað gífurleg átök
að komast að þeirri lausn sem virðist eina varan-
lega úrræðið: Algert jafnrétti svartra manna og
hTn'tra. ekki aðeins í orði heldur líka á borði. — s.
Verðlagsráð sjávarútvegs-
ins skipað til tveggja ára
Sjávarútvegsmálaráðherra
hefur nýlega skipað eftirtalda
menn í Verðlagsráð sjávarút-
vegsins frá 1. okt. 1965 til 1.
okt. 1967;
Frá félagi síldarsaltenda á
Norður- og Austurlandi. Aðal-
menn: Sveinn Benediktsson,
framkvæmdastj., Reykjavík,
Jón Þ. Ámason, framkvæmda-
stjóri Raufarhöfn. Varamenn:
Aðalsteinn Jónsson, framkvstj.,
Eskifirði. Eyþór Hallsson, fram-
kvæmdastj., Siglufirði.
Frá Síldarverksmiðjum rík-
isins. Aðalmaður; Sigurður
Jónsson, framkvæmdastj. Vara-
maður: Sveinn Benediktsson,
framkvæmdastj. Reykjavík.
Frá Félagi síldarsaltenda á
Suð-vesturlandi. Aðalmenn; Ól"
afur Jónsson, framkvæmdastj.,
Sandgerði. Margeir Jónsson
framkvæmdastjóri, Keflavík.
Varamenn; Þorsteinn Arnalds,^
framkvæmdastjóri Reykjavík,
Tómas Þorvaldsson, framkvstj.,
Grindavík.
Frá Alþýðusambandi íslands;
Tryggvi Helgason, Eyrarvegi
13 Akureyri.
Frá Landssambandi ísl. út-
vegsmanna. Aðalmenn; Kristj-
án Ragnarsson, fulltrúi, Rvík,
Guðmundur Jörundsson útgm.,
Reykjavík, Ingimar Einarsson,
fulltrúi Reykjavík. Varamenn;
Matthías Bjarnason, fram-
kvæmdastjóri, fsafirði, Sigurð-
ur Pétursson útgm.. Reykja-
vík Ólafur Tr. Einarsson, út-
gerðarm., Hafnarfirði.
Frá Sambandi ísl. samvinnu-
félaga. Aðalmaður; Bjami V.
Magnússon. framkvæmdastjóri,
Reykjavík. Varamaður; Björg-
vin J. Ólafsson fulltrúi,
Reykjavík.
Frá Síldarvérksmiðjusamtök-
um Austur- og Norðurlands.
Aðalmaður: Vésteinn Guð-
mimdsson, framkvæmdastjóri,
Hjalteyri. Varamaður: Her-
mann Lárusson, framkvæmda-
stjóri. Neskaupstað.
Frá Farmanna- og fiski-
mannasambandi íslands. Aðal-
maður: Guðmundur H. Odds-
son, skipstjóri, Reykjavík.
Varamaður: Guðmundur Jens-
son, framkvæmdastj. Reykja-
vík.
Frá Samlagi skreiðarfram-
leiðenda. Aðalmaður; Huxley
Ólafsson, framkvæmdastjóri,
Keflavík. Varamaður; Ásgrím-
ur Pálsson framkvæmdastjóri
Keflavík.
Lausir við bítla
og minka
Rauðasandi, 12/10 — Nú
:endur yfir byggirig heimavist-
rskóla í Örlygshöfn, — nánar
ltekið í Fagrahvammi, einnig
:endur til að smíða kennara-
)úð og íbúð fyrir matráðskonu.
Þarna í Örlygshöfn er líka
ilagsheimli og aðsetur kaupfé-
ags og er að myndast þarna
yggðakjarni í veitinni. Nokkuð
íörg býli hafa farið í eyði í
:auðasandshreppi á undanförn-
m árum og má þar nefna
faustabrekku, Stakka, Krók,
takkadal, Sjöundá að ógleymdu
ðalssetrinu Saurbæ. En þarna
ru ennþá í byggð Lambavatn,
iröf, Kirkjuhvammur, Móberg
g Melanes.
Báglega skortir hljóðfæraleik-
ra hingað í sveitina og dregur
að niður skemmtanalíf unga
ólksins hér um slóðir. En þe;r
ru líka lausir við bítía eins
g minkinn. Þannig má finna
óðar hliðar á hverju máli.
Og svo eru hér síðustu frétt-
ir frá Skotlandi: Nágranni
vor, McPhcrson, er svo spar-
samur, að hann horflr YFIR
gleraugun til þcss að ;ilíta
þeim ekki.
Frá Sölumiðstöð hraðfrysti-
húsanna. Aðalmenn: Helgi
Þórðarson, framkvæmdastjóri,
Hafnarfirði, Óskar Gíslason
framkvæmdastjóri Vestmanna-
eyjum Han^ Haraldsson,
fulltrúi ísafirði. Varamenn:
Óiafur Jónsson, framkvæmda-
stjóri. Sandgerði, Jón Jónsson,
framkvæmdastjóri Hafnarfirði,
Aðalsteinn Jónsson, framkvstj.,
Eskifirði.
Frá Sölusambandi íslenzkra
fiskframleiðenda. Aðalmaður-
Helgi Þórarinsson framkvstj.,
Reykjavík. Varamaður: Mar-
geir Jónsson útgm., Keflavík.
Frá Sjómannasambandi ís-
lands. Aðalmaður: Jón Sig-
urðsson, framkvæmdastjóri,
Reykjavík. Varamaður: Sigrík-
ur Sigríksson Akranesi.
Frá Félagi síldar- og fiski-
mjölsverksmiðja á Suður- og
Vesturlandi. Aðalmaður; Guð-
mundur Kr. Jónsson, fram-
kvæmdastjóri Reykjav., Vara-
maður: Guðmundur Guð-
mundsson, framkvæmdastjóri,
Hafnarfirði.
Verðlagsráðið hefur kosið
eftirtalda menn í stjórn ráðs-
ins næsta starfsár;
Formaður: Kristján Ragnars-
son fulltrúi, Reykjavík. Vara-
formaður: Guðmundur H.
Oddsson skipstjóri, Reykjavík.
Ritari: Bjami V. Magnússon,
framkvæmdastjóri, Reykjavík.
Vararitari; Helgi Þ. Þórðarson.
framkvæmdastjóri, Hafnarfirði.
Framkvæmdastjóri ráðsins
er Sveinn Finnsson ddl.
Reykjavík 26. okt. 1965
Verðlacsráð sjávarútvegsins.
Vestur-Þjóðverj-
ar enn hlyiint-
ir MFL
BONN 22/10 — Vestur-þýzka
stjómin telur enn, að þanda- '
ríska áætlunin um sameigin-
legan kjamorkuflota Atlanz-
hafsþandalagsins, MFL, sé
bezta lausnin á varnarmála-
vandræðum bandalagsins. Það
var talsmaður stjórnarinnar,
Guenther von Hase, sem frá
þessri skýrði á fundi með fréttá-
mönnum i dag. Von Hase var
spurður ýmissa spurninga í
samþandi við þetta mál, en
bein orsök þessarar yfirlýsing-
ar vestur-þýzku stjómarinnar
er sú, að Bandaríkjamenn hafa
nú ákveðið að gefa alla þessa
áætlun upp á bátinn, að
minnsta kosti fyrst um sinn.
Stjórnartalsmaðurinn sagði
ennfremur, að Erhard kanzlari
muni hafa meðferðis tillögur
um lausn þessa máls, er hann
heldur til Washington síðar í
haust.
Dómarar ræða breytingu á
skipan lögsagnarumdæma
Aðalfundur Dómarafélags Is-
lands var haldinn í Reykjavík
dagana 21. til 23. okt. s.l.
Fundurinn hófst með fyrir-
lestri Hjálmars Vilhjálmssonar
ráðuneytisstjóra, um sýslu-
mannsembættin fyrrognú. Var
erindi Hjálmars hið fróðlegasta
cg taldi hann að rekja mætti
rætur sýslumannsembættanna
til hinna fomu goða. I lok
erindis síns vék ræðumaður
nokkuð að því, hvort tímabært
væri, að breyta núvérandi
skipan lögsagnarufndæriid í
landinu. Umræður urðu tölu-
verðar um þetta mál og skipan
dómstólanna yfirleitt. Var m.a.
að því vikið, hvort ekki væri
rétt, að greina alfarið milii
stjórnsýslustarfa og dómstarfa,
þannig að dómarar hefðu eigi
önnur störf með höndum en
dómsmálastörf. Eigi voru þó
gerðar neinar ályktanir í
þessu efni, enda var sammæli
þeirra, er til máls tóku, að
fram þyrfti að fara ítarlegat-
hugun á mörgum atriðum, áð-
ur en ákvörðun væri tekin um
það, að breyta núgildand)
skipulagi.
Meðal gesta við fundarsetn-
ingu og nefndar umræðurvar
Jóhþnn Haf&tein,. dóipspjálaráð-
herra.
Á aðalfundinum flutti Þór
Vilhjálmsson borgardómari er-
indi um hóptryggingar og
Klemenz Tryggvason hagstofu-
stjóri ræddi um ýmis mál, sem
varða samskipti sýslumanna og
bæjarfógeta annarsvegar og
hagstofunnar hinsvegar.
Þá voru rædd mörg mál, er
varða hagsmuni, svo sem
starfsaðstöðu og lögkjör félags-
manna dómarafélagsins og
ýmsar ályktanir gerðar um
þau efni.
Fundai'menn sóttu síðdegis-
boð Jóhanns Hafsteins dóms-
málaráðherra, og Trygg-
ingastofnun ríkisins bauð til
hádegisverðar, en sýslumenn
og bæjarfógetar eru umboðs-
menn hennar.
Dómarafélag Islands skiptisl
í tvær deildir: Dómaraféias
Reykjavíkur og Sýslumannafé-
lagið. Eiga formaður og vara-
formaður hverrar félagsdeildar
sæti í félagsstjórninni, en hans
skipa nú: Hákon Guðmundssor
yfirborgardómari, form., Páll
Hallgrímsson sýslumaður, Þórð-
ur Björnsson yfirsakadómar1.
Bjarni K. Bjarnason, borgar-
dómari og Torfi Hjartarson,
tollstjóri. ■ ’
(Frá Dómarafélagi Islands).
iTI VETRARGJALÐ
300 kr. fastagiald
og 3 kr. á ekinn km.
ííiifyisiijiH
Kuið!
• vinsœlosfir skartgripir
jóhannes skólavörðustíg 7