Þjóðviljinn - 29.10.1965, Blaðsíða 7
Föstudagiir 29. oktðber 1965 — ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA J
Björn Jónsson flytur frumvarp um að
Verðuppbót ríkissjóðs á línufisk
verði hækkuð í 75 aura á kílóið
— á tímabilinu frá 1. okt. til 31. des. 1966, enda greiði fisk-
kaupendur 25 aura verðuppbót umfram gildandi fiskverð
Björn Jónsson.
ÞINCSIÁ Þ|OÐVIL|ANS
■ Bjöm Jónsson flytur nú á þingi frumvarp um
að verðuppbót ríkissjóðs á línufiski verði hækk-
uð í 75 aura á hvert kíló frá 1. okt. 1965 'til 31.
desember 1966. Bendir Björn á það í greinar-
gerð með frumvarpinu að veiðar á línu hafi und-
anfarin ár gefið um eða yfir 100 þús. tonn upp
úr sjó og hefði útflutningsverðmætið, sem línu-
veiðarnar hefðu staðið undir því verið 500 til 600
milj. kr.
Frumvarp Björns Jónssonar
er svohljóðandi:
1 gr.
.,1. gr. laganna orðist svo:
Frá 1. ,ian. til 1. okt. 1965
gTeiði ríkissjóður fiskseljend-
um 25 aura verðlagsuppbót á
hvert kiló línu- og handfæra-
fisks. Frá 1. okt. 1965 og til
31. des. 1966 skal þessi verð-
uppbót vera 75 aurar á hvert
kíló enda greiði fiskkaupend-
ur fiskseljendum á sama tima-
bili 25 aura verðuppbót um-
fram gildandi fiskverð samkv.
ákvörðununi verðlagsráðs sjáv-
arútvegsins.
2. gr.
í greinargerð segir svo:
Lög þessi öðlast þegar gildí“.
„Fiskveiðar með línu hafa
löngum verið mjög veigamikill
þáttur { fiskveiðum þjóðarinn-
ar og þótt aðrar veiðiaðferðir
hafi á síðari árum þokað þeim
nokkuð um set, er enn aflað
mjög verulegs hluta af þeim
bolfiski. sem færður er að
landi, með þessu veiðitæki
Meginhluti af veiði einstakra
fiskte-gunda, svo sem ýsu.
verður enn aðeins fenginn með
þessari aðferð. Tækniframfar-
ir hafa litlar orðið í þessum
veiðum og hvergi sambærileg-
ar við þser, sem orðið hafa
við ýmsar aðrar veiðar. Þær
krefjast mikillar vinnu og eru
á ýmsan hátt óaðgengilegri en
aðrar veiðar. og nú orðið er
aflavonin suma árstíma minni
en ef veitt er með öðrum að-
ferðum, sem minna þarf til
að kosta.
Tafarlausar úrbætur
Því fer þó mjög fjarri. að
tímabært sé að leggja þessa
veiðiaðferð niður, og er raun-
ar einnig óliklegt. að hag-
kvsemt sé, þegar á allt er lit-
ið. að draga úr notkun hennar
frá því sem verið hefur. Á-
stæður fyrir því eru m.a.
þessar:
1. Á állt að 5 máná'ða tímabili
árlega, frá október til febrú-
arloka, eru veiðar með línu
nálega eina veiðiaðferðin,
önnur en veiðar með botn-
vörpu, sem fært getur bol-
fiskafla að landi. Aðrar
veiðiaðferðir. sem yfirgnæf-
andi eru notaðar á vetrar-
vertíð við Suður- og Suð-
vesturland, eru að miklu
háðar því, að um þéttar
fiskgöngur sé að ræða fyrir
og um hrygningartímann,
en duga miður eða ekki á
öðrum tímum og við aðrar
aðstæður.
2. Veiðar með línu og handfæri
v eru einu veiðamar, sem að
jafnaði henta verulegum
hluta bátaflotans í flestum
sjávarbyggðum landsins.
Dragnót kemur þar að vísu
til greina. en reynslan sann-
ar, að ekki er fært að
stunda þær veiðar með ár-
angri nema mjög takmark-
að. Rekstrarmöguleikar báta-
flotans og fiskimiðin verða
því ekki nýtt eðlilega, nema
línu- og handfæraveiðar séu
stundaðar bæði þann árs-
tíma, þegar slikar veiðar
henta einar. og einnig að
hæfilegu leyti á vetrarver-
tíð.
3. Fjöldi frystihúsa og annarra
fiskvinnslustöðva í þrem
landsfjórðungum á starf-
semi sina og afkomu að
langmestu leyti undir því
komna, að línuveiðar séu
stundaðar í engu minna
mæli en verið hefur. En það
eru einmitt þau atvinnu-
tæki, sem hafa úrslitaþýð-
ingu fyrir atvinnulíf í ílest-
um sjávarbyggðum * Vest-
fjarða og Norðurlands árið
um kring og einnig Aust-
fjarða, þegar síldveiðum
lýk-ur.
4. Veiðar með línu hafa und-
anfarin ár gefið um og yf-
ir 100 þús. tonn upp úr
sjó, en það svarar til um
helmings þess hráefnis. sem
' frýStihúsin þárfnast tilfram-
leiðslu þeirra fiskflaka. sem
flutt hafa verið út síðustu
árin. Útflutningsverðmætið,
sem línuveiðamar hafa stað-
ið undir. má því áætla 500
til 600 milj. kr. Ef stórlega
drægi úr þessum veiðum
eða þær legðust að mestu
niður, má fullyrða. að það
skarð, sem eftir yrði skilið
í gjaldeyrisöfluninni, yrði
ekki fyllt með annarrj veiði.
svo að nokkru verulegu
næmi af ástæðum sem þeg-
ar eru greindar.
Að þessu athuguðu verður
að álykta, að það væri hið
mesta tjón jafnt fyrir þjóðar-
heildina sem þá er eiga atvinnu
og afkomu undir öruggum
rekstri smáútgerðar og fisk-
vinnslu í sambandi við hana,
ef sá samdráttur sem þegar
gerir vart við sig í fiskveiðum
með línu. héldi hraðbyri á-
fram — en á því eru allar
horfur, nema sérstakar ráð-
stafanir ko.mj til af opinberri
hálfu.
Gildar ástæður
Með lögum nr. 34 1965 var
viðurkennt að fiskveiðar með
línu væru rekstrarlega óhag-
stæðari en aðrar veiðar, að
botnvörpuveiðum togara und-
anskildum, og að nauðsyn bæri
til að styrkja þær af opinberu
fé. Var sá styrkur þá ákveðinn
kr. 0,25 á kg. Reynslan hefur
nú sannað það. sem flestir, er
til bátaútgerðar þekkja, sáu
fyrir, að þessi viðurkenning
var ófullnægjandi og fékk ekki
hindrað stöðugt minnkandi at-
hafnasemi við þessar veiðar
og vaxandi erfiðleika hennar.
En síðan lög jæssi voru sam-
þykkt, hefur tilkostnaður enn
aukizt og gert þessar veiðar
óhagstæðari en áður miðað við
fiskvérð. Má því efin búast við
minnkandi linuveiðum á haust-
vertíð, og er líklegt. að þátt-
taka i .þeim hvprfandi á
komandi vetrarvertíð.
Á hinn bóginn blasir það
við, að þjóðarbúið, gjaldeyris-
öflunin og ríkissjóður mega
engan veginn við því. að þessi
þáttur í fiskframleiðslunni
hverfi eða minnki mjög veru-
lega og atvinnulíf Vestfjarða,
Norðurlands og Austfjarða að
nokkru má enn síður við siik-
um búsifjum, sem leiða mundu
af sér atvinnuleysi og marg-
vislega erfiðleika í sjávar-
byggðunum.
Hér ber Alþingi og ríkis-
stjórn vafalaust að koma til
skjalanna og gera tafarlausar
ráðstafanir til hjálpar, — við-
urkenna. að rekstraraðstaða
Emiáútgerðarinnar, sem aðal-
lega byggir á þeirri veiðiað-
ferð sem hér um ræðir, er
sizt betri en togaranna, en það
hefur raunar lengi verið ljóst.
Opinber aðstoð við togaraút-
gerðina svarar nú til u.þ.b. 1
krónu styrks á kg. fisks upp
úr sjó. og má ætla, að hlið-
stæð aðstoð við veiðar með
línu yrði til verulegrar örv-
unar þeirri atvinnugnein. í
þessu frumvapi er gert ráð
fyrir, að verðuppbót rikissjóðs
verði hækkuð í 75 aura á
kíló með því skilyrði. að fisk-
kaupendur greiði á móti 25
aura á kíló til viðbótar hinu
almenna fiskverði. Ætti það
skilyrði að vera réttlætanlegt
með hliðsjón af þeim hagnaði,
sem fiskkaupendur nytu vegna
tryggari hráefnisöflunar og
betri nýtingar framleiðslu-
tækja sinna en ella yrði.
Útvarpið og
Sóleyjarkvæði
í gær barst Þjóðviljanum
svofelld athugasemd frá Ein-
ari Braga;
„Vegna bollalegginga Skúla
Guðjónssonar í Þjóðviljanum
í dag um að ekki muni snurðu-
laust hafa gengið að koma
Sóleyjarkvæði Jóhannesar úr
Kötlum ..gegnum útvarpið“ vil
ég biðja blaðið fyrir fáeinar
línur til að firra þá ámæli, sem
ekkert hafa til saka unnið.
Þegar ég tókst á hendur fyr-
,ir tilmælj Rithöfundasambands
íslands að annast um skeið
efnisval í Raddir skálda. voru
mér engir skilmálar settir um
hvaða skáldverk ég tæki þar
til flutnings, enda hefði ég þá
aldrei komið nærri þessu verki.
Hvorki útvarpsráð né aðrir
starfsmenn útvarpsins hafa í
eitt einasta skipti reynt að
hafa nokkur áhrif á, hvaða
höfunda ég kynnti eða hvaða
verk þeirra. Ég ber því einn alla
ábyrgð á þeim þáttum sem
ég hef séð um.
f afkynningu Sóleyjarkvæð-
is var þess getið, að starfs-
menn Ríkisútvarpsins hefðu
ekki annazt upptöku tónlistar-
efnis. Það var einföld stað-
reynd, sem ég hélt ekki að
þarfnaðist neinnar skýringar.
En úr því að hennar er óskað,
er mér ljúft að bregðast vel
við svo lítilli bón. Þannig stóð
á, að einn af flytjendum tón-
listarefnisins var staddur er-
lendis um þessar mundir. Því
varð nýrri upptöku á hluta
kvæðisins ekki við komið. Ég
fékk þá að láni segulbands-
upptöku sem tekin var'við
mun verri skilyrði en fyrir
hendi eru í útvarpinu. Af
þessum sökum varð upptak-
an í heild sinni talsvert mis-
lit eða blettótt, blærinn ósam-
felldari en æskilegt hefði ver-
ið. Magnaravörðum útvarpsins
er eðlilega annt um starfsheið-
ur sinn eins og öðrum mönn-
um, sem vandir eru að virð-
ingu sinni. Þess vegna var
ekki nema sjálfsögð kurteisi
við þá að geta þess að þeir
hefðu ekki annazt upptökuna
að öllu leyti.
Einar Bragi.
-4»
Kjöt til London
Kópaskeri, 25/10 — Sláturhús-
íii hér er af mörgum talið eitt
af fullkomnustu sláturhúsum á
landinu og er nú sláturtíð lok-
Ið. Meðalvigt reyndist 15,1 kg.,
— er það aðeins minna en í
fyrra, en nú var fleira tvílembt
hjá bændum og verður útkoman
bessvegna hagstæðari hjá mörg-
um. 1 sumar var innrcttuð sér-
stök deild til sláturgerðar og
pökkunar á dilkakjöti. Þannig
er nú í ráði að senda 3 búsund
dilkskrokka í neytendaumbúðum
til sölu í London. Dilkskrokk-
arnir eru teknir í sundur á sér-
stakan hátt, síðan látnir í lok-
aðar umbúðir, sem lofti er dælt
úr og svo brugðið í sjóðandi
vatn. Verða umbúðirnax bá eins
og húð á kjötinu og varnar
algjörlega þornun. Þetta kjöt
er svo fryst til hinnar nýju
íslandsbúðar í London, en þar
verður bæði verzlun og veit-
Ingastaður.
Þá erum við líka að pakka
diíkalifur í skrautlegar umbúð-
ir og verður það lika til sölu
i Lundúnabúðinni.
Slátrið sendum við hinsvegar
á Reykjavíkurmarkað, — það
verður í smekklegum umbúðum
og tilbúiA beint £ pottinn. Það
er geymt fryst og flutt þannig
í sérstöUi’m flutningabílnm á
Btarkaðinn.
■ ■■■■<•■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■•■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
íslenzka málverkasýningm
vekur athygli vestanhafs
■ Eins og áður hefur ver-
ið skýrt frá hefur mynd-
arleg sýning á verkum
fremstu listmálara á ís-
landi verið send til
Bandaríkjanna. Munu
málverkin verða sýnd
mjög víða vestra næstu
vikur og mánuði.
Hugmyndina að sýningunni
áttu Ellerton K. Jette og
kona hans frá Waterville.
Hann er fonnaður skóla-
nefndar Colby-menntaskólans
og kona hans er formaður
skólafélags, sem kallað er
„Listvinafélagið". Listasafn
Colby-skólans er orðið mikið
og merkilegt og eiga Jette-
hjónin mikinn þótt í vexii
þess, enda hefur aðalsaiur
safnhússins verið nefndur
þeim til heiðurs.
Þar sem þau hjónin höfðu
mikiar mætur á máláralist
var ekki nema eðlilegt, að
þau yrðu snortin af íslenzkri
málaralist, er þau heimsóttu ■
ísland sumarið 1963.
Með ómetanlegri aðstoð dr.
Selmu Jónsdóttur, forstöðu-
konu Listasafns Islands, hef-
ur draumur þeirra um sýn-
ingu á íslenzkri málaralist i
Bandaríkjunum orðið að
veruleika.
Dr. Sehna Jónsdóttir valdi
verkin á sýninguna í Banda-
ríkjunum, og Selmu til að-
stoðar voru listmálararnir
Gunnlaugur Scheving og
Þorvaldur Skúlason. Eigendur
margra listaverkanna sýndu
þá velvild að lána þau til
sýningarinnar.
Fru Jette og frú Gertrud
Mellon frá New York, sem
er einn af leiðbeinendum
„Listvinafélagsins,“ ferðaðist
til Islands snemma á þessu
ári, til að vinna að undir-
búningi sýningarinnar.
Á sýningunni voru 75 verk
eftir fremstu Iistmálara Is-
lendinga og voru þau til sýn-
is til 3. okt. sl. Þessi lista-
verk verða síðar sýnd í New
York og þaðan verða þau
flutt til ýmissa staða í land-
inu til sýningar á vegum the
American Federations of Arts
(Ameríska Listasambandsins).
Loftleiðir fluttu listaverkin
til Bandaríkjanna endur-
gjaldslaust,
Sýningin hefur vakið mikia
eftirtekt í Colby og annars
staðar. Robert Taylor, virtur
listgagnrýnandi við blaðið
Bosbon (Mass.) Herald, kail-
ar sýninguna „mjög eftir-
tektarverða“. Ummæli hans:
„Island á skilið, að því sé
gaumur gefinn, því það er
að reyna að vernda þjóðar-
einkenni sín umkringt al-
þjóðlegum stíl, sem náð hef-
ur inn yfir öll landamerki.“
Ummæli Jeane Cristiansen
við blaðið Bangor (Maine)
Daily News, voru á þessa )eið:
„Fyrir augað er þetta stór-
kostl'egt safn listaverka, sem
ekki leynir þvi að þau túlka
þjóðlega list og sýna tær og
lifandi litbrigði landsins.
Einn af sýningargestunum í Colby skoðar málverk eftlr Jón
Engilberts.
Andi allra listaverkanna er
sérstæður einvörðungu is-
lenzkur og gefur til kynna
fegurð landsins ..
Ef til vill er mestu viður-
kenninguna á íslenzkri Ust
að finna í orðum frú Jette
í garð Islendinga: j,Hið mik-
ilvægasta við íslenzka list“.
segir hún „er sú staðreynd,
að hún er þýðingarmikill
þáttur í þjóðlífinu. Það eru
ekki bara þeir riku og Rsta-
verkasafnaraTj sem áhuga
hafa á listinni — heldur fólk
i öllum stéttum,- bflstjórar,
þjónar, allir. Þetta fólk hef-
ur feikilega mikla þekkmgu á
Hstamönnum þjóðarinnar og
er hreykið af þeiir„“
(Að nokkru eftir fréttaiil-
kynningu frá Upplýsinga-
þjónustu Bandarí'kjanaaí.
!■■!■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■!
i