Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.2001, Side 9
9
FIMMTUDAGUR 12. JÚLÍ 2001_
PV__________________________ útiönd
Hækkandi hitastig
á tvöföldum hraða
Alþjóðleg nefnd á vegum Samein-
uðu þjóðanna, sem fjallar um loft-
lagsbreytingar á jörðinni, sendi í
gær frá sér sína nýja skýrslu um
stöðu mála í loftslagsmálum. Nið-
urstaða skýrslunnar er að hækkun
loftlagshita, oft kölluð gróðurhúsa-
áhrif, sé helmingi hraðari en áður
var talið. Talið er að hitastig jarðar
muni hækka um allt að 5,8 gráður
á næstu hundrað árum. Það er
helmingi hærra en talið var fyrir
fimm árum.
Fjölmargar rannsóknir sem gerð-
ar hafa verið undanfarið hafa sýnt
fram á geigvænlegar afleiðingar
hækkandi loftlagshita jarðar. Nið-
urstaða skýrslunnar er þess vegna
miður upplifgandi. Skýrsla sem
flestir virtustu veðurfræðingar
lögðu til vinnu sína í.
Samkvæmt rannsóknum mun
hækkandi hitastig valda miklum
uppskerubresti þar sem öll matar-
framleiðsla fátækari landa heims-
ins myndi minnka um allt að fjórð-
ung. Auk þess yrði veðurfar á jörð-
inni afar óstöðugt.
Einnig er bent á það í skýrslunni
að mengun af manna völdum sé
ástæða fyrir þessum öru loftlags-
breytingum, s.s. frá iðnaði og öðru
umstangi manna. Niðurstaða
skýrslunnar er því vatn á myllu
Evrópusambandsins og þeirra
landa sem vilja staðfesta Kyoto-
samkomulagið. Hún gerir í leið lít-
ið úr helstu ástæðunni fyrir því að
George W. Bush Bandaríkjaforseti
ákvað að staðfesta ekki samkomu-
lagið.
Hann dregur í efa tengslin milli
hækkandi hitastigs og mengunar.
Því fmnst honum og mörgum öðr-
um Bandaríkjamönnum það órétt-
látt að láta Bandaríkin og önnur
iðnríki axla ábyrgðina vegna
vandamálsins.
Útkoma skýrslunnar er vel tíma-
sett. í næstu viku hittast stjórn-
málamenn frá meira en 150 löndum
þar sem reynt verður að bjarga
Kyoto-samkomulaginu.
Þar verður reynt að fá Bandarík-
in til að endurskoða afstöðu sína og
staðfesta samkomulagið. Það er af-
ar mikilvægt þar sem sú staða er
komin upp að mörg lönd, s.s. Japan
og Ástralía, hafa sagt að samkomu-
lagið sé dautt án þátttöku Banda-
ríkjanna, sem eru stærsta iðnríkið
og standa á bak við fjórðung loft-
mengunar heimsins.
Saddam Hussein
Mótfallinn friöarsamkomulagi viö
ísraelsmenn.
Saddam hótar
ísraelsmönnum
Saddam Hussein, forseti íraks, hót-
aði því 1 gær að Arabar myndu grípa
til vopna gegn ísrael ef Palestína yrði
ekki frelsuð öðruvísi. „Það væri okk-
ur gleðiefni ef gyðinglegu innflytj-
endurnir yfirgæfu palestínskt land
án vopnaskaks til þess þá að bjarga
lífum,“ sagði Saddam. Samkvæmt op-
inberum tölum hafa 7 milljónir íraka
boðið sig fram til að berjast við hlið
Palestínumanna gegn ísraelum.
Saddam er mótfallinn hvers kyns
friðarsamkomulagi við ísrael.
Handagangur í öskjunni
Wða um heim eru menn uggandi um aiþjóöa efnahagsmái eftir aö tilkynnt
var um efnahagssamdrátt i Singapore. Skiptar skoðanir eru á málum, sumir
spá dómsdag, aörirgóöu. Viöskipti á veröbréfamörkuöum ganga þó eins og
venjulega, sama hvaö hagfræöisérfræöingar heimsins blaðra sín á milli.
Viðurkennir glæpi
Rússahers í Tsjetsjeníu
Yfirmaður í rússneska hernum
viðurkennir að sveit hans hafi
framið víðtæka glæpi í Tsjetsjeníu.
Itar-Tass fréttastofan hefur eftir Vla-
dimir Moltenskoi að rússneskir her-
menn hafi stundað lögleysu þegar
þeir framkvæmdu leitir á heimilum
Tsjetsjena. Þeir lögðu oft heimilin í
rúst og þóttust síðan ekkert vita um
athæfið. Auk þess voru allir karl-
kyns íbúar ákveðins þorps færðir yf-
ir á akur í nágrenninu og barðir af
hermönnum. Margir þeirra fengu
ekki að sleppa fyrr en þeir borguðu
hermönnunum lausnargjald.
Moltenskoi sagði herinn nú reyna
að endurvinna traust Tsjetsjena.
Talsmaður Kremlar lýsti því yfir í
kjölfarið að stefnubreytingar væri
þörf fyrir aðgerðir Rússa í héraðinu.
Hlutabréfarabb
- í Gardheimum Mjódd
o1
GARÐHEIMAR
I kvöld kl. 20-21 heldur hlutabréfarabb Islandsbanka - Eignastýringar áfram.
Yfir rjúkandi kaffibolla og smákökum njóta gestir líflegrar fræðslu og taka
þátt í umræðum um hlutabréfamarkaðinn í þægilegu umhverfi.
Umræðuefni fundarins verður til umfjöllunar í DV.
Létt djasssveifla frá kl. 19.30. Árni Heiðar Karlsson (píanó) og
Tómas R. Einarsson (kontrabassi).
Umræðuefni:
Heimslistinn
- nokkur frábær fyrirtæki á ffnu verði.
Friðrik Magnússon deildarstjóri Eignastýringar
Aðgangur er ókeypis og allir hjartanlega velkomnir.
GARÐHEIMAR
VIB ber nú heitið íslandsbanki - Eignastýring og
mun framvegis verða kynnt undir nýju merki bankans.
ISLANDSBANKI
EIGNASTYRING
www.isb.is
Sumargiaðningur fylgir öllum Brallarabrauðum í júlí
Boðsmiði í Fjölskyldu- oghúsdýmgarðinn
Brauðbömin eru í sumarskapi. Nú fylar boðsmiði Halli og Brauðbörnin bjóða þér að koma og
íFjöIskyidu-oghúsdýragarðinnmeðöllumBrallara- skemmta þér í frábærum leikcækjum og heilsa upp ýffapik
brauðum:Pyslu-hamboigara-ogsamlokubrauðum. áölldýrinígarðinum.Láttusjáþigfélagi! f -kgjSzbé
T'uirl*pTí*IIiÍTiTl■ hfli]<]|iiiVn F:MiFml