Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.2002, Blaðsíða 6
6
FIMMTUDAGUR 19. DESEMBER 2002
DV
þakl bílsÍnSeruflórirkastararsemlýsa vel LæSÍHQUHIHIl er stjórnaö UoSCXQrÍndÍVt
umhverfl hans. með einum takka í mælaboröinu. * '*7 XX kösturu
er með tveimur
XX kösturum.
- í eigu Atla Bjarnasonar sem er a
oeins 18
ara
Atli Bjarnason er ungur aö árum, 18 ára, en
samt með jeppadelluna í blóðinu. Hann fékk bfl-
prófið í vetur og fékk sér strax Cherokee-jeppa
en var fljótlega kominn á 38 tomma Nissan
Patrol sem pabbi hans hafði átt. Núna vinnur
hann hjá Fjallasport-breytingarverkstæðinu og
er nýbúinn að láta breyta einum þriggja lítra
Terrano mikið og hafði hönd í bagga sjálfur með
breytingunni á honum.
Me& mikla jeppadellu
„Við erum nokkrir félagarnir á svipuðum
aldri sem erum saman í þessu,“ segir Atli en
þeir eru einnig með vélsleða og flórhjól til að
fullkomna delluna. „Ég er með einn Yamaha V-
Max 500 sleða og bíð því spenntur eftir snjónum
til að fara að prófa bæði jeppann og sleðann al-
mennilega." Áætlað er að fara jómfrúrferðina
upp í Þursaborgir á Langjökli áður en langt um
líður. Við spurðum Atla hvort það hefði ekki
verið erfitt að fara beint á svona stóran og mik-
ið breyttan bíl, nýkominn með prófið. „Ég er oft
spurður að þessu“ segir Atli. „Það venst ótrúlega
vel að keyra svona bíla og maður hefur líka betri
yfirsýn yfir umferöina. Maður getur líka sagt að
maður sé í læri hjá sérfræðingunum, bæði hvað
varðar smíðina og, aksturinn
þvi að maður hefur lært
mikið af því að fara
í fiallaferðir
með Reyni, eiganda Éjallasport, og félög-
um.
Bíllinn hans Atla er einn mest breytti Terra-
no-jeppi landsins og þótt víðar væri leitað. Búið
er að setja hann á 38 tomma dekk og var aftur-
hásing færð aftur um 140 mm til að auka jeppa-
eiginleika hans. Búið er að bæta aukaolíutanki
við og setja vacuum-dælu i bflinn fýrir læsingar
að framan og aftan. Bíllinn er lika vel búinn að
innan og má þar nefna GPS-tæki, tengt fartölvu,
og margt fleira. „Ég lét líka setja aukaloftdælu í
bílinn fyrir kraftmeiri ílautu," segir Atli og
glottir. „Vélin er óbreytt enda nógu öflug fyrir
og það eina sem við gerðum við hana var að
setja þriggja tomma púst.“ Aftan á bflnum er svo
varadekkshlíf sem breytt hefur verið í farang-
ursbox og að framan er vígalegasta ljósagrind.
Að sögn Atla er aldrei að vita nema meira verði
átt við bílinn en
fyrst er að prófa
p’ipinn áður en
það verður
gert.
-NG
Afturhásino «
svo að belgmikil 38 romn
var færð til
belgmikil 38 Wmmu dekkin
kæmust betur fyrir en þaö eykur líka
torfærueiginleikana, að sögn Atla.
Nissan Terrano II 3,0.
3ja lítra 153 hestöfl.
3ja tomma púst.
38 tomma dekk.
5,42:1 hlutfóll.
Afturhásing færð aftur
um 140 mm.
100 lítra aukabensíntank-
ur.
Meca vacuum-læsingar
framan og aftan.
Quick Air 3 loftdæla.
Ljósagrind.
Piaa-kastarar á grind og
Geymslubox.
Vindskeið.
Spilfestingar..
linkanómtri AHÍ 8 setur svo punktinn yfir i-iö.
Jeppinn er stórglæsilegur og til í tuskið.
Vélin er þriggja lítra dísilrokkur með 153 hesta i
hesthúsinu.
Varadekksboxinu hefur veriö breytt í farang-
ursbox fyrir tóg og aukaolíubrúsa.
Lœsingunum er stjórnað með
tökkum í nftojustokk bílsins á milll
framsætanna.
J
Mikið breyttur
Terrdno