Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.2003, Side 35

Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.2003, Side 35
34 rhlac) H>V LA.UGARDAGUR II. JANÚAR 2003 Sannfæring Ingibj argar Sólrúnar „Nú opna éq mitt Pandórubox,“ saqði Inqi- björq Sólrún Gísladóttir ísjónvarpsviðtali, spurð um hvað hún hefði fram að færa í stjórnmálum á landsvísu, skömmu eftir að hún ákvað að bjóða siq fram til Alþinqis. Nú laqðist að vísu eqmd oq volæði yfir mannkyn þeqar Pandóra hunsaði fyrirmæli Seifs oq opnaði boxið sem hann hafði qefið henni, þanniq að líkinqin var óheppileq. En hún átti við að þvíleyti að það sem íhefð- bundnum skilninqi myndi kallast pólitísk huqmyndafræði Inqibjarqar Sólrúnar hefur verið heldur lítt sijnileq undanfarin ár íRáð- húsinu. Nú hefur hún hins vegar skipt um vettvang og verður jafnvel pólitískur leiðtogi Samfylkingarinnar innan skamms. Hvaö hefur hún fram að færa? Hvar stendur hún í utanríkismálum, umhverfismálum, skattamálum, velferðarmálum, efnahagsmálum? Reynslan er vitanlega góð visbending um það. Við lestur þingskjala frá þingmannsferli hennar 1991 til 1994 kemur fram mynd af kvenréttindakonu sem er innblásin af vægast sagt eindreginni vinstri-hug- myndafræði en hverfur síðan inn í æ meira hlutleysi og gefur á endanum upp á bátinn hugmyndina um stjómmálamenn sem leiðsögumenn um völl hug- myndanna. Tekið skal fram að DV falaðist eftir viðtali við Ingi- björgu Sólrúnu en því miður reyndist henni ekki unnt að verða við því. Af nógu er hins vegar að taka. Á vinstri væng ■ „Pólitískur róluvöllur" Ingibjargar Sólrúnar, eins og Össur Skarphéðinsson hefur gjarnan kallað það, var stúdentapólitíkin. Hún var formaður Stúdenta- ráðs HÍ 1977-78 og svaraði þá Stúdentablaðinu því til um pólitíska sýn sína að lokatakmarkið væri sósíal- ismi „þar sem konur jafnt sem karlar eru lausar und- an arðráni og kúgun". í borgarstjórn sat hún fyrst fyrir í minnihluta | 1982-88 fyrir Kvennalistann. Hvað sem um hug- r myndafræði þess flokks má segja var einkavæðing og aukin samkeppni ekki efst á óskalistanum; Ingibjörg Sólrún sagði raunar á borgarstjórnarfundi 1987 að hún teldi að samkeppni væri „dýr og almennt til leið- inda“! Hugmyndum um rýmkaðan afgreiðslutíma verslana var svarað með hugmynd um eina „neyðar- verslun" í Reykjavík með rýmri afgreiðslutíma og miklum efasemdum var lýst um verslunarmiðstöð í Kringlunni. Síðar sagði Ingibjörg Sólrún á Alþingi að „hug- myndir um aukna neyslu, eyðslu og þar af leiðandi veltu og hagvöxt [væru] í hrópandi mótsögn við gild- ismat Kvennalistans". Áherslur á þingi Fyrstu þingmálin sem Ingibjörg Sólrún er skráð fyrir á Alþingi eru þrjár fyrirspurnir til utanríkisráð- herra 3. október 1991; allar um hugsanlegan flutning kjarnorkuvopna um íslenska lögsögu. Og þau þrjú ár sem hún sat á þingi snerust þau þingmál sem hún var fyrsti flutningsmaður að nær undantekningarlaust um utanríkismál eða félagsmál. Ýmsar breytingar á barnalífeyri, meðlagsgreiðslum og fæðingarorlofi voru henni mjög hugleiknar, sem og staða samkyn- hneigðra og atvinnulausra, svo að dæmi séu tekin. EES-samningurinn Fyrstu ræðu sína á Alþingi hélt Ingibjörg Sólrún 16. maí 1991, í umræðum um stöðu viöræðna um evr- ópskt efnahagssvæði - og þær urðu ófáar eftir það. Hún sagðist í þess- ari fyrstu ræðu hafa efasemdir um þá „framtíðarsýn miðstýringar neyslu og fjár- magns sem birtist i þvi sem nú er unn- ið að innan Evr- ópska efnahags- svæðisins". Þessi framtíðarsýn væri „í grundvallarat- riðum í andstöðu við þaö sem gera þarf til aö tryggja hag íbúa heimsins, ekki bara Evrópu". Andstaða hennar var þvi í upphafi fyrst og fremst við það sem hún kallaði „peningaveldi og skrifræði". Heldur sagð- ist hún þó kjósa aðild að Evrópubandalaginu en EES ef aðeins þeir tveir „vondu kostir" stæðu til boða en afstaða hennar var dálítið sveiflukennd næstu vikur. í mars 1992 ítrekaði Ingibjörg Sólrún þó að hún væri „búin að gera upp [sinn] hug gagnvart Evrópubandalaginu“ og að hún hafnaði því fyrir sitt leyti. í ágúst, þegar um- ræða um sjálfan samn- inginn hófst á Alþingi, hafði hins vegar orðið breyting á. Hún taldi að vísu að rök um ýmis gæði sem EES-aðild hefði í för með sér væru ekki sannfærandi en mestu meðmælin með „Það duqa ekki lenqur huqmyndakerfi sem [...] qeta útskýrt hvers manns vanda á ein- hvern huqmyndafræðileqan réttan hátt eins oq frjálshyqqjan hefur qert.“ n. maí 1994 EES-aðild væru þau að Evrópubandalagið væri að verða eins og „virki“ sem lokaði æ meira að sér; það gæti skapað „umtalsverða erfiðleika fyrir smáríki eins og ís- land að verða viðskila við þá sem eru fyrir innan virkisveggina“. í nóvember lagði hún til ásamt fleiri að EES- samningurinn yrði bor- inn undir þjóðina í at- kvæðagreiöslu og sagði: „Ég er ekki sannfærð manneskja í þessu máli. [...] Það er í rauninni vafinn sem er mitt hlut- skipti í málinu og verð- ur það kannski alla tíð.“ í desember gekk hún lengra í átt til samþykk- is og sagðist telja „eðli- legt að ísland reyni að tryggja hagsmuni sina með samningi um aðild að Evrópsku efnahags- svæði“. Hins vegar mætti deila um hvort viðunandi samningur hefði náðst og því myndi hún ekki treysta sér til að mæla með samþykki samningsins. Nokkrum vikum seinna, 7. janúar 1993, sagði hún efnislega að hún væri sannfærð um að EES-samningurinn yrði hvorki sjálfkrafa til stórkostlegra heilla né óhjákvæmilega til óskaplegs tjóns; „miklu lengra nær sannfæring mín ekki og það verður að vera hlutskipti mitt í þessu máli.“ Tveimur dögum síðar gekk hún hins vegar lengst í Evrópuátt þeg- ar hún sagði: „En við getum ekki sagt okkur algjörlega úr lögum hvorki við EES né EB.“ Vissulega væri sá kost- ur í stöðunni að standa utan við, „en mér finnst það ekki vænlegur kost- ur miðað við stöðuna sem uppi er í dag“. Samt sat hún hjá við atkvæðagreiðslu um EES-samninginn 12. janúar; það var annars vegar vegna kröfu um að hann yrði borinn undir þjóðaratkvæöi og hins vegar vegna vafa um að hann stæðist stjómarskrá. Eltki nuka kaupmátt Andúð á „neyslusam- félaginu" var áberandi í málflutningi Ingibjargar Sólrúnar þessi ár á þingi og gekk á tíðum býsna langt. í einni af fyrstu þing- ræðum sínum í maí 1991 sagði hún að lífskjör fólks væru mjög misjöfn á íslandi, en að því yrði „ekki breytt með því að auka það sem við höfum úr að spila, heldur með því að stokka .spilin og gefa upp á nýtt“. í sömu ræðu sagði hún framtíð okkar byggjast á að við „sætt- um okkur við að minna sé betra“. Evrópska efnahags- svæðið byggði tilveru sína á „aukinni framleiðslu, aukinni neyslu og auknum hagvexti; við verðum að snúa af þessari braut“. Lengst í þessum efnum gekk hún liklega í mars 1992 þar sem hún sagði að til þess að jörðin þyldi að þriðji heimurinn eignaðist allur bíla og ísskápa þyrftu Vest- urlandabúar að læra að minna væri betra: „Við þurf- um ekki að auka kaupmáttinn á Vesturlöndum, hann Senn borgarstjóri. Eftir nær þriggja ára setu á Al- þingi er Ingibjörg Sólrún árið 1994 á leið í kosn- ingaslag sem borgarstjóra- efni Reykjavíkurlistans. L/\UG/ er ærinn, en honum er bara misskipt." í mars 1993 sagði hún að á jörðinni rikti „lögmálið um takmarkaðan vöxt“ og „ef okkur skilst þetta ekki fljótlega hrynur hið vestræna velferðarríki senn til grunna líkt og alræðiskerfið fyrir austan". í apríl dró hún þó aðeins úr og sagði: „[...] það er ekki mín skoðun að við þurfum að afneita hagvexti. Hagvöxtur og hagvöxtur er sitt hvað en við þurfum að beygja hagvöxtinn undir sjálfbæra þróun og ef það er gert er hann ekki skaðlegur, en ef hann er ekki beygð- ur undir sjálfbæra þróun þá getur hann unnið óbæt- anlegt tjón.“ Umhverfismál Ingibjörg Sólrún mælti sem eindreginn umhverfis- verndarsinni á Alþingi. 16. apríl 1993 sagði hún að umhverfismálin væru orðin „alfa og ómega allra hluta og ég held að við þurfum að beygja pólitíska stefnumörkun á nær öllum sviðum undir umhverfis- málin“. Kvennalistinn hafði í kosningabaráttunni 1991 lýst afdráttarlausri andstöðu við fyrirhugað álver á Keil- isnesi. Eftir kosningar hóf flokkurinn hins vegar þreifingar um myndun vinstristjórnar og sagðist ekki myndu láta stranda á álversmálinu - og raunar ekki heldur á aðild aö EES, sem flokkurinn var þó andvíg- ur. Ingibjörg Sólrún sagði í viðtali við Morgunblaðið að samningsstaða flokksins væri veik í ljósi fylgistaps í kosningunum en að reynt yrði að hafa áhrif á bæði .þessi mál til góðs ef til stjórnarmyndunar kæmi. Nokkrum mánuðum eftir kosningar datt álverið upp fyrir og sagði þá Ingibjörg Sólrún á Alþingi: [...] við erum sannfærðar um, nú eins og áður, að meng- andi stóriðjustefna er ekki í þágu framtíðarinnar. Þessi stefna takmarkar þvert á móti möguleika okkar í framtíðinni." Velferð og sliattar Sem fyrr segir einbeitti Ingibjörg Sólrún sér hvað mest að úrbótum á sviöi barnalífeyris, meðlags, fæð- ingarorlofs og fleiri velferðarmála, sem náðu þó fæst- ar fram að ganga eins og títt er með tillögur stjórnar- andstæðinga. Vert er að hafa í huga að allan tímann var Ingi- björg Sólrún í stjórnarandstöðu við Alþýðuflokkinn og tókst þar oft á við Jóhönnu Sigurðardóttur félags- málaráðherra. í maí 1993 sagðist hún orðin „þreytt á þulu“ Jóhönnu um tekjujöfnun, enda hefði láglauna- fólki snarfjölgað. „Það hefur gerst á því tímabili sem Jóhanna Sigurðardóttir var félagsmálaráðherra," sagði Ingibjörg Sólrún og bætti við að þótt Jóhanna vildi vel „þá getur hún ekki spilað fritt“. í heilbrigðismálum sagðist hún sammála því að draga þyrfti úr kostnaði, einkum með því að minnka lyfjanotkun og lækka lyfjakostnað. Hún taldi frjáls- ræði í lyfjaverslun hins vegar ekki leiðina til þess og sagði i febrúar 1994: „Því skyldu allir lyfsalar vera frjálsir að því að setja upp lyfjaverslun? Ég get ekki séð nein sérstök rök fyrir því.“ Henni þótti vegið að barnafólki í breytingum á skattkerfinu í desember 1991 og endaöi þrumandi gagnrýnisræöu á stjórnvöld með því að segja: „Og ég nenni ekki að hlusta í þingsalnum á hjal um velferð á varanlegum grunni þegar vegið er að sjálfum grunninum." „Breiöu bökin“ skyldu bera meira. í umræðum um fjárlög gagnrýndi hún að í þeim væri „enginn fjár- magnstekjuskattur, ekkert hátekjuskattsþrep, ekki hærri virðisaukaskattur á lúxusvörur; ekkert sem orða mætti við réttlæti". Um leið gagnrýndi hún „vel stönduga karlmenn með vinnukonuútsvar" og taldi löngu tímabært að á þessum „skattsvikum" væri „tekið af einhverri hörku“. Sighvatur, Össur o.fl. í umræðum um stefnuræðu forsætisráðherra 10. október 1991 skoraði Össur Skarphéðinsson á þing- konur Kvennalistans að „siða nú til óknyttadrengi stjórnarandstöðunnar í anda hinnar fornu mæðra- hyggju". Ingibjörg Sólrún svaraði að bragði: „Ég mun auðvitað leitast við að taka hann og aðra drengi móð- urlega á kné mér en hann verður svo að meta það hvort kné mitt er nógu virðulegt til þess að bera hann.“ Athyglisvert í ljósi tiðinda síðustu daga! í apríl 1992 sagði hún svo um Össur þegar hann hafði krafist þess af stjórnarandstöðunni að liðka fyr- ir afgreiðslu EES-samningsins: „Ég verð að segja að maðurinn er úr hófi fram léttúöugur, sem kemur kannski ekki að sök svona prívat, en það kemur svo sannarlega að sök í pólitík." Um Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra sagði Ingibjörg Sólrún í janúar 1993 að þegar hann hefði flutt mál sitt „fékk ég að reyna að það er ekki alltaf tekið út með sældinni að eiga tilfallandi mál- efnalega samstöðu með pólitískum villimönnum. Svo smekklaus er málflutningurinn stundum, ekki síst í garð kvenna." Snörpust voru þó orðaskiptin við Sig- hvat Björgvinsson FRAMHALD Á NÆSTU SÍÐl’ RDAGUR II. JANÚAR 2003 Helgarhlctö JöV 3o •> Þingmál Hér eru talin upp öll þingmál sem Ingibjörg Sólrún var fyrsti flutn- ingsmaður að, nema fyrirspumir til ráðherra, allt þingsetutímabil hennar, 13. maí 1991 til 13. júní 1994. Hún var vitanlega með- flutningsmaður að fleiri málum. 7.12.91: Staða samkynheigðra Þingsályktunartillaga þess efnis að skipuð yrði nefnd sem skyldi leggja til aðgerðir til að útrýma misrétti gagn- vart samkynhneigðum. Tillagan var samþykkt samhljóða á Alþingi í mai 1992 og nefndin skipuð af forsætisráðherra í mars 1993. (ISG, Össur Skarphéðinsson, Ólafur Þ. Þórðarson, Guðrún Helgadóttir, Einar K. Guðfinnsson) 16.3.92: Barnalífeyrir Frumvarp til laga um breytingu á lögum um almanna- tryggingar, þess efnis að barnalífeyrir - og þar með einnig upphæð meðlags - yrði hækkaður til samræmis við „raunverulegan framfærslukostnað", ekki sist til þess að tryggja að báðir foreldrar legðu jafnmikið af mörkum til framfærslu barns við sambúðarslit. Frumvarpið varð ekki útrætt. (ISG, Anna Ólafsdóttir Björnsson, Kristín Einarsdóttir, Kristín Ástgeirsdóttir, Jóna Valgerður Kristjánsdóttir) 8.4.92: Starfsmenntun í atvinnulífinu Breytingartillaga við lagafrumvarp er varðaði skipan starfsmenntaráðs. Tillagan var felld. (ISG) 29.4.92: Friverslunarsamningur EFTA við Tyrkland Tillaga til rökstuddrar dagskrár þess efnis að því yrði frestað að fullgilda fyrir íslands hönd fríverslunarsamn- ing EFTA við Tyrkland og í staðinn yrðu fordæmd mann- réttindabrot stjórnvalda í Tyrklandi gegn Kúrdum. Tillag- an var felld og samningurinn fullgiltur. (ISG, Ólafur Ragnar Grímsson) 9.5.92: Kynferðisbrot Breytingartillaga við lagafrumvarp dómsmálaráðherra um almenn hegningarlög, þess efnis að ekki yrði lengur refsivert að stunda vændi sér til framfærslu. Tillagan var felld. (ISG, Anna Ólafsdóttir Bjömsson) 24.8.92: Þjóðaratkvæðagreiðsla um EES-samninginn Þingsályktunartillaga um aö bera skyldi EES-samning- inn undir þjóðaratkvæði. Tillagan var felld. (ISG, Steingrímur Hermannsson, Ólafur Ragnar Grímsson, Kristin Einarsdóttir, Páll Pétursson, Ragnar Amalds.) 26.11.92: Meðlagsgreiðslur og barnalífeyrir Tvö lagafrumvörp, annars vegar um að ábyrgð hins op- inbera á greiðslum meðlags yrði ekki takmörkuð við lög- bundna lágmarksfjárhæð heldur fullt meðlag samkvæmt úrskurði og hins vegar tillaga um að barnalífeyrir yrði hækkaður til samræmis við „raunverulegan framfærslu- kostnað". Hvorugt frumvarpanna varð útrætt. (ISG, Anna Ólafsdóttir Björnsson, Ágústa Gísladóttir, Kristín Ástgeirsdóttir, Kristín Einarsdóttir) 7.12.92: Evrópska efnahagssvæðið Nefndarálit annars minnihluta utanríkismálanefndar - þ.e. ISG - þess efnis að EES-samningnum fylgdu bæði kostir og gallar og rétt væri að efna til þjóðaratkvæða- greiðslu um hann. (ISG) 19.12.92: Rekstrarframlög framkvæmdasjóðs aldraðra Nefndarálit annars minnihluta heilbrigðis- og trygg- inganefndar - þ.e. ISG - þar sem lýst var andstöðu við að verkefni Framkvæmdasjóðs aldraöra væru aukin án þess að tekjur hans væru jafnframt auknar. (ISG) 25.3.93: Staða brotaþola við meðferð kynferðisafbrotamála Þingsályktunartillaga um að dómsmálaráhðerra verði falið að leggja fram lagafrumvarp sem styrki stöðu brota- þola við meðferð kynferðisafbrotamála í samræmi við til- lögur nefndar sem fjallað hafði um málið. Alþingi sam- þykkti samhljóða að vísa málinu til ríkisstjórnar. (ISG, Ingibjörg Pálmadóttir, Rannveig Guðmundsdóttir, Mar- grét Frímannsdóttir, Þórhildur Þorleifsdóttir, Valgerður Sverris- dóttir, Guðrún Helgadóttir, Anna Ólafsdóttir Björnsson, Jóna Valgerður Kristjánsdóttir)

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.