Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.2003, Side 49

Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.2003, Side 49
LAUGARDAGUR II. JANÚAR 2003 53 H&lgarblad1 3l>"V Nokkuð miklar sveiflur milli ára hjá sumum umboðum Eins og flestir vita var síðasta ár slæmt í sölu bíla líkt og árið þar á undan og þrátt fyrir góðan enda- sprett seldust færri bílar árið 2002 en niðursveifluárið 2001. Þessar miklu sveiflur komu auðvitað mis- mikið niður á umboðunum og mörg þeirra hafa tapað nokkru fé á síðast- liðnum árum. Athyglisvert er að skoða tölur yfir hlutdeild umboð- anna og þegar fimm stærstu eru skoðuð kemur í ljós að þrjú þeirra, Brimborg, P. Samúelsson og Hekla, ná aö bæta við markaðshlutdeild sina. Ef árið hefur komið vel við einhvem verður ekki litið fram hjá Kia sem jók sölu sína um 107% á síðasta ári. Að sögn Sigurðar P. Sig- fússonar, sölustjóra Kia, geta þeir vel við unað og eru réttum megin við núllið. „Menn leita meira í öldu- dalnum eftir ódýrari merkjum eins og sést í sölu okkar og Skoda sem dæmi. Sportage hefur alltaf staðið upp úr hjá okkur en Sorento kemur sterkur inn og við selt alla þá bíla sem við höfum geta fengið,“ segir Sigurður. Um 30% af sölu Kia var til bílaleigufyrirtækja. Brimborg bætir viö sig Fleiri merki auka söluna eins og Volvo, Fiat og Skoda en mesti sam- drátturinn er hjá merkjum eins og Lada, Alfa Romeo og Saab. Reyndar er um svo fáa bíla að ræða í sumum tilvikum að hver bíll hefur stór áhrif á prósentutöluna. Brimborg bætir mest við markaðshlutdeild sína á síðasta ári og bætir við sölu í öllum merkjum sínum, nema Dai- hatsu sem þeir hafa hætt að selja í bili. „Við erum mjög ánægðir með okkar hlut á síðasta ári. Brimborg var með mestu aukninguna af fimm stærstu og aðeins Kia-umboðið óx meira. Einnig var mjög góður vöxt- ur í Volvo, Citroén og Ford og Volvo er langsterkastur á lúxusbílamark- aði eins og-tölumar sýna,“ segir Eg- ill Jóhannsson, forstjóri Brimborg- ar. -NG Fimm stærstu bílaumboöin - breyting á markaöshlutdeild milli áranna 2001 & 2002. Brlmborg P. Samúelsson | Hekla B&L IH/Bílhelmar -15% -10% -5% 0% 5% 10% 15% Tölur Innlfela fólksbíla, Jeppa, sendlbíla, mlnnl hópferðabíla og minnl vörubíla. SÖLUTÖLUR ÁRANNA 2001-2002 Teqund Sala 2002: Sala 2001 Mismunur: Tovota 2013 2031 -0,89% VW 981 944 +3,92% Nissan 571 732 -21,99% Hvundai 359 408 -12,01% Subaru 356 407 -12,53% Skoda 356 315 +13,02% Opel 352 444 -20,72% Ford 339 310 +9,35% Renault 329 397 -17,13% MMC 318 408 -22,06% Peuqeot 238 212 +12,26% Suzuki 227 242 -6,2% Kia 209 101 +106,93% Honda 165 164 +0,61 % Citroén 133 119 +11,76% Volvo 114 81 +40,74% Daewoo 101 166 -39,16% Lexus 84 77 +9,09% Audi 79 92 -14,13% Mercedes-Benz 64 100 -36% Isuzu 60 62 -3,23% Mazda 59 79 -25,32% Land Rover 53 78 -32,05% BMW 53 58 -8,62% Ssanqyonq 33 34 -2,94% Fiat 21 15 +40% Lada 16 29 -44,83% Alfa Romeo 6 16 -62,5% Saab 4 13 -69,23% Porsche 1 1 0% (Miðað er við sölu á öllum bílum, einnig vörubílum, sendibílum og hópferðabílum.) Lúxusbílamarkaðurinn á íslandi Janúar-desember 2002 29,9% © 0 25 Stykkl 50 75 100 125 Bogi Pálsson selur sinn hlut í Toyota-umboðinu Fækkar enn í fjölskyldu trjám bílafyrirtækjanna Sjóvá-Almennar tryggingar hf. keyptu á fimmtudag 25% hlutafjár í Eignarhaldsfélaginu Stofni. Stofn ehf. er móðurfélag P. Samúelssonar og fleiri tengdra félaga eins og Arctic Trucks og Kraftvéla, auk Fasteignafé- lags utan um húseignir. Fyrir kaupin átti Sjóvá-Almennar tryggingar hf. engan hlut í Eignarhaldsfélaginu Stofni ehf. P. Samúelsson er umboðs- og söluaðili fyrir Toyota og Lexus bif- reiðar og er stærsti bílainnflytjandi landsins. Sjóvá-Almennar tryggingar hf. og P. Samúelsson hf. hafa átt traust samskipti um áratugaskeið og eftir því var leitað að Sjóvá-Almennar trygging- ar hf. kæmu að Stofrii ehf. sem kjöl- festufjárfestir. Að mati félagsins er um góðan fjárfestingarkost að ræða. Fjár- mögnun kaupanna er með eigin fé en viðskiptin eru fyrir milligöngu Lands- bankans. Bogi lengi viljað selja Að sögn Emils Grímssonar, fram- kvæmdarstjóra P. Samúelssonar hf., Emil Grímsson, fráfarandi framlo'æmd- arstjóri P. Samúelssonar, tók strax við starfi Boga PáLssonar sem forstjóri. hefur Bogi lengi stefht á að breyta til. „í því samhengi breyttum við skipu- laginu hjá okkur 1998 og þá tók ég við sem framkvæmdarstjóri með meiri ábyrgð á daglegum rekstri," segir EmO. Nú gafst tækifæri sem Bogi nýtti og mun Emil taka við af Boga sem for- stjóri. Emil vildi lítið annað láta hafa eftir sér um málið og sagði að ekki væri búið að ganga frá öllum endum sölunnar. Að mati manna í greininni er Emil einn af lykilmönnum fýrirtæk- isins og á stóran þátt í góðu gengi þess á síðustu árum. Allt aö þriggja milljarða virði í bókinni Ríkir Islendingar eftir Sig- urð Má Jónsson, blaöamann Viðskipta- blaðsins, kemur fram að Toyota í Jap- an eigi óverulegan hlut í P. Samúels- syni. Stofii á 96% I P. Samúelssyni og átti Bogi 29,9% hlut þar og Páll faðir hans 60%. Páll Samúelsson er starfandi stjómarformaður en hefúr að mestu dregið sig út úr daglegu starfi fyrirtæk- isins. Bogi hefur verið nákvæmur stjómandi af nýja skólanum og lyft grettistaki við endurskipulagningu fyr- irtækisins, sem var nánast gjaldþrota í upphafi tíunda áratugarins. Eiginfjár- staða hefur styrkst gífurlega á síðustu ámm undir hans stjóm. P. Samúelsson er metið á þrjá milljarða að mati Sig- urðar Más. Ætla má að hluturinn sem Sjóvá-Almennar tryggingar hf. keyptu sé þvi nokkurs virði, á bilinu 500-750 milljónir króna. -NG Brimborg frumsýnir Volvo XC90 Volvo XC90 lúxusjeppinn verð- ur frumsýndur hjá Brimborg um helgina. Opið verður frá kl. 12-16 laugardag og sunnudag. Boðið verður upp á kaffi og kleinur. Volvo XC90 er lúxusjeppi frá Vol- vo og er þetta frumraun Volvo á jeppamarkaði. Sala hófst í Banda- ríkjunum i nóvember síðastliðn- um en hófst í Evrópu í janúar á þessu ári. Volvo XC90 hefur hlot- ið mikið lof bílagagnrýnenda um allan heim og hefur þegar hlotið fjölda viðurkenninga. Sú stærsta kom fyrir aðeins nokkrum dögum þegar Volvo XC90 var valinn jeppi ársins í Bandaríkjunum 2003. Suzuki Sidekick Sport, ssk., skr. 2/96, ek. 115 þús. Verð kr. 860 þús. Suzuki Jimny JLX, bsk., skr. 6/02, ek. 15 þús. Verð kr. 1480 þús. Suzuki Jimmy JLX, bsk., skr. 6/99, ek. 49 þús. Verð kr. 990 þús. Skoda Octavia Elegance, ssk., skr. 10/02, ek. 1 þús. Verð kr. 1890 þús. Galloper 2,5, dísil, ssk., skr. 9/99, ek. 78 þús. Verð kr. 1490 þús. Sjáðu fleiri á suzukibilar.is $ SUZUKI ---////--------------- SUZUKI BÍLAR HF. Skeifunni 17, sími 568-5100 Suzuki Baleno GLX, 4 d., bsk., skr. 8/99, ek. 38 þús. Verð kr. 1100 þús. Suzuki Swift GLS, 3 d., bsk., skr. 9/99, ek. 23 þús. Verð kr. 750 þús. Suzuki Grand Vitara 2,0, bsk., skr. 11/98, ek. 87 þús. Verð kr. 1490 þús. Suzuki Grand Vttara 2,7 XL-7,33?, breyttur.skr. 9/01, ek. 4þús. Verð kr. 3690 þús.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.